Waterline Cardigan#waterlinecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með útaukningu í axlarsæti, rúllukanti og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL HÆGRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að lykkjur fyrir kant að framan hafa verið fitjaðar upp. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 10½-10½-9-9-9½-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er fyrst prjónað fram og til baka til að forma hálsmálið, síðan er berustykkið prjónað til loka áður en því er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. BERUSTYKKI: Fitjið upp 66-68-70-70-72-72-74 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan, merkin eru sett á milli 2 lykkja - þetta er gert án þess að lykkjurnar séu prjónaðar. Þessi merki eru notuð þegar auka á út lykkjur fyrir axlarsæti, ermar og berustykki. Teljið 2 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 18 lykkjur frá 1. merki, setjið 2. merki á undan næstu lykkju (= ermi), teljið 26-28-30-30-32-32-34 lykkjur frá 2. merki (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 18 lykkjur frá 3. merki, setjið 4. merki á undan næstu lykkju (= ermi). Það eru 2 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta merki. Prjónið sléttprjón fram og til baka jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar. Lykkjur eru einungis auknar út á bakstykki og framstykkjum, lykkjufjöldinn á ermum verðu sá sami. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 72-74-76-76-78-78-80 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: * Prjónið brugðið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 78-80-82-82-84-84-86 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 84-86-88-88-90-90-92 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 90-92-94-94-96-96-98 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 97-99-101-101-103-103-105 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 104-106-108-108-110-110-112 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 11-12-13-13-14-14-15 nýjar lykkjur í umferð = 119-122-125-125-128-128-131 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD yfir fyrstu 7 lykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan, * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 11-12-13-13-14-14-15 nýjar lykkjur í umferð = 134-138-142-142-146-146-150 lykkjur. Það eru 28-29-30-30-31-31-32 lykkjur á hvoru framstykki, 18 lykkjur á hvorri ermi og 42-44-46-46-48-48-50 lykkjur á bakstykki. Aukið hefur verið út alls 8 sinnum fyrir axlarsæti. ÚTAUKNING AXLARSÆTI: Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og kant að framan með i-cord í hvorri hlið jafnframt sem haldið er áfram að auka út fyrir axlarsæti. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út 10 sinnum oftar en 8 útaukningar frá hálsmáli – aukið hefur verið út alls 18 sinnum fyrir útaukningu fyrir axlarsæti = 174-178-182-182-186-186-190 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Það eru 38-39-40-40-41-41-42 lykkjur á hvoru framstykki, 18 lykkjur á hvorri ermi og 62-64-66-66-68-68-70 lykkjur á bakstykki. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki verður sá sami. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður - JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-10-10-10-8-5-3 sinnum (= 20-20-20-20-16-10-6 umferðir prjónaðar) = 214-218-222-222-218-206-202 lykkjur. Það eru 38-39-40-40-41-41-42 lykkjur á hvoru framstykki, 38-38-38-38-34-28-24 lykkjur á hvorri ermi og 62-64-66-66-68-68-70 lykkjur á bakstykki. Aukið síðan út bæði á fram- og bakstykki og á ermum eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Nú er aukið út bæði á ermum og á bakstykki og framstykki. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður – JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur í hverri umferð frá réttu, aukið er út á undan og á eftir hverju merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, aukið út til hægri, prjónið 1 lykkju, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-8-10-12-15-20-23 sinnum (= 12-16-20-24-30-40-46 umferðir prjónaðar) = 262-282-302-318-338-366-386 lykkjur. Það eru 44-47-50-52-56-61-65 lykkjur á hvoru framstykki, 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur á hvorri ermi og 74-80-86-90-98-108-116 lykkjur á bakstykki. Stykkið mælist ca 20-21-23-25-26-28-29 cm frá yst á öxl og niður (= 5 cm dýpt á útaukningu fyrir axlarsæti og 15-16-18-20-21-23-24 cm útaukning á ermum). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-47-50-52-56-61-65 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið yfir næstu 74-80-86-90-98-108-116 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-6-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 44-47-50-52-56-61-65 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-186-198-210-230-250-270 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-50-52-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT því sem aukið er út um 29-29-31-35-35-39-43 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 199-215-229-245-265-289-313 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. ERMAR: Setjið til baka 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-60-64-70-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 1-3-4-6-7-8-9 sinnum í hverjum 4-4-4-3½-3-3-2 cm = 48-50-52-54-56-58-60 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-35-34-33-31-30-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-56-58-60-62-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 39-39-38-37-36-35-35 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 113 til 133 lykkjur í kringum hálsmál, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og kant að framan eins og áður. Prjónið stroff svona fram og til baka í 2-2-2-2-2½-2½-2½ cm, endið með umferð frá réttu. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með kant að framan eins og áður (= rúllukantur), notið hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterlinecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 43 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.