Britt-Louise Olsson skrifaði:
Hjälp mig att byta ut detta mönstret mot något annat. Har ju garnet och vill sticka något md det. 266-1 är alldeles för invecklat. Allt blir bara fel. Tacksam för alla förslag
17.03.2026 - 10:14DROPS Design svaraði:
Hej Britt-Louise Kanske du kan göra DROPS 250-1 istället? Mvh DROPS Design
18.03.2026 - 11:51
Tatiana skrifaði:
Bonjour, Pour la taille M, j’arrive au tour où je dois augmenter uniquement le devant et le dos. Pour les les manches, il est indiqué de fair A4 puis A2 jusqu’au 6 derniers mailles et enfin A5. Je suis au 9ieme rang du motif. Si je suis les instructions, je casse le motif car, après les 5 mailles de A4, je le retrouve au milieu d’un dessin et cela décale tout. Pouvez-vous m’aider s’il vous plaît? Merci d’avance.
14.03.2026 - 20:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Tatiana, comme vous avez tricoté 1/2 motif en hauteur vous avez déjà créé un décalage d'un demi motif sur les côtés, ainsi, il vous suffit de tricoter simplement les diagrammes au 1er rang, ainsi, en commençant par le 1er rang de A.4, votre motif va continuer le demi-motif commencé auparavant, répétez ensuite A.2 et terminez par pA.5. Bon tricot!
16.03.2026 - 09:22
Andrea skrifaði:
Liebes Drops-Team, mich würde als Anhaltspunkt interessieren, welche Größe das Model trägt. Vielen Dank für die Information.
14.03.2026 - 11:22DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, die Models in unseren Bildern tragen normalerweise Größe S oder M. Da wir jedoch alle unterschiedlich gebaut sind, empfehlen wir, die Größe anhand der Maßtabelle am Ende der Anleitung auszuwählen. Am besten ermitteln Sie die richtige Größe, indem Sie einen gut sitzenden Lieblingspullover ausmessen und die Maße mit der Maßskizze in der Anleitung vergleichen. Viel Spaß beim Stricken!
14.03.2026 - 14:28
Marge skrifaði:
Tere! Pärast L suurusel 2,5 korda mustri kudumist nihkub muster paigast. Kui teha pärast raglaanisilmust 5 silmust A4 mustrit ja sealt edasi A2, siis läheb muster lappama. Kuidas edasi?
14.03.2026 - 09:44
Åse Moberg skrifaði:
Er det noe galt i omg 9 i mønsteret?
13.03.2026 - 20:11DROPS Design svaraði:
Hei Åse. Hva mener du? Det har vært en rettelse som ble publisert 9. mars. Om du har printet ut oppskriften har du kanskje ikke fått med deg den. Oppskriften online er OK (fra 9. mars). (Oppdatert informasjon om mønsteret på ermene etter at økningene til raglan på ermene er ferdig). Om det er noe annet, skriv kort og nøyaktig hvor i oppskriften du mener er feil og husk oppgi hvilken str. du strikker. mvh DROPS Design
16.03.2026 - 11:57
Alina skrifaði:
Welches Diagramm verwende ich für die Maschenprobe?
11.03.2026 - 10:42DROPS Design svaraði:
Liebe Alina, Sie können z.B. das Diagramm A.2 2 oder Mal mit Randmaschen beidseitig stricken, dann messen Sie die gewünschte Maschenanzahl in der Breite/Höhe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
11.03.2026 - 15:46
Sandra skrifaði:
Tere! Kududes S suurust: Kui esi- ja seljaosa moodustavad mõlemad 61 silmust, siis tundub olevat teskstis viga sektsioonis: koo skeemi A.1 järgmised 5 silmust, korda skeemi A.2 järgmised 40 (5 korda laiuses), skeemi A.3 järgmised 6 silmust (= esiosa). 5x8(A.2)+5(A.1)+6(A.3)+2(raglaanisilmused) = 53 silmust. Eeldan, et tegelikkuses tuleb mustrikordust A.2 teha hoopis 6 korda. 6x8(A.2)+5(A.1)+6(A.3)+2(raglaanisilmused) = 61 silmust (esiosa suurus).
07.03.2026 - 22:31
Karin skrifaði:
Skrev under fel rubrik! Gällande ärmmönstret: Jag får det till att det när första varvet med mönsterstickning är klart finns det 6 räta maskor i slutet på varvet. Skall dessa maskor alltid stickas räta, jag förstår ju att de ”försvinner” allteftersom man gör minskningar på var sida av den markerade maskan mitt under ärmen.
05.03.2026 - 20:17DROPS Design svaraði:
Hei Karin. Ja :) se også vårt forrige svar til deg. mvh DROPS Design
09.03.2026 - 12:55
Karin skrifaði:
Gällande ärmmönstret: Jag får det till att det när första varvet med mönsterstickning är klart finns det 6 räta maskor i slutet på varvet. Skall dessa maskor alltid stickas räta, jag förstår ju att de ”försvinner” allteftersom man gör minskningar på var sida av den markerade maskan mitt under ärmen.
05.03.2026 - 20:13DROPS Design svaraði:
Hei Karin, Ja, maskene midt under ermet strikkes i glattstrikk til alle fellingene er gjort. Bruk eventuelt markører om det er vanskelig å se hvor mønsteret starter/slutter i siden på ermene. Etter fellingene vil mønsteret gå opp rundt ermet. mvh DROPS Design
09.03.2026 - 12:54
Marta skrifaði:
Hi, how much positive ease does the pattern have?
05.03.2026 - 17:59DROPS Design svaraði:
Dear Marta, read how to find your size and the desired ease here. Happy knitting!
06.03.2026 - 07:13
Lace Diamond Sweater#lacediamondsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-1 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LASKALÍNA: Laskalykkjan er prjónuð í sléttprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-96-96-96-112-112-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 30-34-34-34-37-37-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 19-27-27-27-35-35-35 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 19-27-27-27-35-35-35 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið MYNSTUR hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan fyrir mynstur og útskýringu hvernig auka á út. Prjónið mynstur þannig: Prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8 lykkjur, A.3 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8-16-16-16-24-24-24 lykkjur (= 1-2-2-2-3-3-3 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6 lykkjur (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8 lykkjur, A.3 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8-16-16-16-24-24-24 lykkjur (= 1-2-2-2-3-3-3 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6 lykkjur (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina hefur verið aukið út fyrir laskalínu 8 sinnum, þegar mynstrið er prjónað síðar þá er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á milli A.1 og A.3 í hvoru stykki á flíkinni. Haldið áfram með mynstur og útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 16 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð 2 sinnum á hæðina) = 208-224-224-224-240-240-240 lykkjur í umferð. Lykkjurnar skiptast niður þannig: 51 lykkjur á hvorri ermi, 53-61-61-61-69-69-69 lykkjur á framstykki/bakstykki (meðtaldar laskaykkjur á framstykki/bakstykki). Í stærð XS og S er útaukningu á ermum lokið, í stærð M og L er prjónað og aukið út á sama hátt 4 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. mynsturteikningin er prjónuð ½ sinnum til viðbótar á hæðina) og í stærð XL, XXL og XXXL er aukið út 8 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. mynsturteikningin er prjónuð 1 sinni til viðbótar á hæðina). Aukið hefur verið nú fyrir laskalínu alls 16-16-20-20-24-24-24 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð alls 2-2-2½-2½-3-3-3 sinnum á hæðina frá byrjun á stykki) = 208-224-256-256-304-304-304 lykkjur í umferð. Lykkjum er skipt niður þannig: 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á hvorri ermi, 53-61-69-69-85-85-85 lykkjur á framstykki/bakstykki (meðtaldar laskalykkjur á framstykki/bakstykki). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið í öllum stærðum og nú á að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Í stærð M og L er prjónað að miðju í mynstureiningu á mynstri á hæðina, þegar prjóna á afram á mynstrið að halda áfram á framstykki og bakstykki, en á ermum á mynstrið að byrja á ermum í 1. umferð í mynsturteikningu eins og í hinum stærðunum. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki og prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið laskalykkju eins og áður, prjónið A.4 yfir 5 lykkjur, A.1 yfir 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7-7 sinnum á breiddina), A.5 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5-5-9-9-5-5-5 lykkjur, A.2 yfir 40-40-48-48-74-74-74 lykkjur (= 5-5-6-6-9-9-9 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6-6-10-10-6-6-6 lykkjur (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju, prjónið laskalykkju eins og áður, A.4 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7-7 sinnum á breiddina), A.5 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, A.1 yfir 5-5-9-9-5-5-5 lykkjur, A.2 yfir 40-40-48-48-74-74 lykkjur (= 5-5-6-6-9-9-9 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6-6-10-10-6-6-6 lykkjur (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju. Haldið áfram með mynstur og aukið út á þennan hátt þar til aukið hefur verið út 8 sinnum fyrir laskalínu á framstykki/bakstykki (aukið hefur verið út alls 24-24-28-28-32-32-32 sinnum fyrir laskalínu á framstykki/bakstykki frá byrjun umferðar). Mynsturteikning hefur verið prjónuð 3-3-3½-3½-4-4-4 sinnum á hæðina – endið þegar eftir eru 1-1-9-9-1-1-1 umferðir í mynsturteikningu þannig að næsta umferð sé án mynsturs = 240-256-288-288-336-336-336 lykkjur í umferð. Í stærð XS, S, M, XL og XXL er útaukning á framstykki/bakstykki lokið. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR eins og útskýrt er að neðan. Í stærð L og XXXL er prjónað og aukið út eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ L OG XXXL: Haldið áfram með mynstur og aukið út á sama hátt fyrir laskalínu 4-4 sinnum til viðbótar á framstykki/bakstykki (þ.e.a.s. mynsturteikningin hefur verið prjónuð ½-½ sinnum til viðbótar á hæðina) – endið þegar eftir eru 1-9 umferðir í mynsturteikningu þannig að næsta umferð sé án mynsturs = 304-352 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 24-24-28-32-32-32-36 sinnum á framstykki/bakstykki frá byrjun umferðar. Mynsturteikning hefur verið prjónuð alls 3-3-3½-4-4-4-4½ sinnum á hæðina frá byrjun umferðar (mínus 1 umferð). Í stærð M og XXXL hefur verið prjónað ca að miðju í mynstureiningu á mynstri á hæðina - því skal gæta þess sérstaklega þegar prjónað er áfram, svo að mynstrið passi. Það eru 240-256-288-304-336-336-352 lykkjur í umferð. Lykkjur skiptast þannig: 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á hvorri ermi, 69-77-85-93-101-101-109 lykkjur á framstykki/bakstykki. Stykkið mælist ca 20-20-23-27-27-27-30 cm frá merki fyrir miðju að framan, í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð í mynsturteikningu er prjónuð án mynsturs, þ.e.a.s. það er prjónað þannig: Prjónið laskalykkju slétt (tilheyrir bakstykki), fitjið upp 11-11-11-11-11-19-19 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), setjið næstu 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið slétt yfir næstu 69-77-85-93-101-101-109 lykkjur (= framstykki), fitjið upp 11-11-11-11-11-19-19 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), setjið næstu 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi og prjónið síðustu 68-76-84-82-100-100-108 lykkjur slétt (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-176-192-208-224-240-256 lykkjur. Setjið eitt merki fyrir miðju í 11-11-11-11-11-19-19 lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun fyrri umferðar. Til að byrja mynstrið rétt, prjónið slétt þar til 4-4-1-4-4-1-4 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki og prjónið A.2 hringinn héðan – byrjið í 1-1-9-1-1-1-9 umferð í A.2. Haldið áfram með mynstur A.2 hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 35-37-39-41-42-44-46 cm frá merki fyrir miðju að framan – endið eftir 1 heila eða ½ mynstureiningu af mynstri á hæðina. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 178-196-214-232-250-268-286 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1-1-1-1-2-2-2 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 37-39-41-43-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 42-44-46-48-50-52-54 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4. Prjónið síðan upp lykkjur undir ermi þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja af 11-11-11-11-11-19-19 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið mynstur eins og áður yfir lykkjur frá ermi – passið uppá að byrja í réttri umferð í mynstri – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-62-70-70-78-86-86 lykkjur. Setjið eitt merki í miðjulykkju sem prjónuð var upp undir ermi, prjónið fram til og með lykkju með merki í og prjónið þannig: Prjónið 5-5-5-5-5-9-9 lykkjur sléttprjón, A.4 yfir 5 lykkjur eins og áður – passið uppá að mynstrið passi yfir lykkjur frá berustykki, prjónið A.2 yfir næstu 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur eins og áður, A.5 yfir 6 lykkjur eins og áður og prjónið 6-6-6-6-6-10-10 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 1-1-1-1-1-1½-1½ cm alls 7-7-7-7-7-11-11 sinnum = 48-48-56-56-64-64-64 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu úrtöku kemur mynstur A.2 til með að ganga jafnt upp í umferð, byrjið umferðina á undan lykkju með merki í og prjónið A.2 umferðina hringinn. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 44-44-42-39-37-38-36 cm frá skiptingunni – endið eftir 1 heila eða 1 hálfa mynstureiningu á hæðina. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 54-54-62-62-70-70-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1-1-1-1-2-2-2 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 46-46-44-41-40-41-39 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lacediamondsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.