Davina skrifaði:
I can’t see the charts on this version of the design.
22.10.2026 - 18:20DROPS Design svaraði:
Hi Davina, The charts are at the bottom of the pattern. Regards, Drops Team.
23.10.2026 - 06:28
Annie skrifaði:
Comment augmenter deux mailles a intervalles réguliers montage 64 mailles pour obtenir 60 mailles en plus merci
29.09.2026 - 19:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Annie, cliquez sur la petite clé à molette en bas à droite de la page des explications et choisissez le calculateur d'augmentations/de diminutions, puis indiquez le nombre de mailles sur l'aiguille et le nombre d'augmentations à faire, cliquez sur "calculer" pour savoir comment obtenir les 66 mailles souhaitées. Bon tricot!
30.09.2026 - 08:11
Clara skrifaði:
Hej Drops. Kan i ikke lave en video, hvor I demonstrerer, hvordan man strikker den kongeblå boble i diagrammet MVH Clara
23.09.2026 - 08:42DROPS Design svaraði:
Hej Clara, hvis du klikker på video, så kan du se at vi har lavet en video med bobler og vi har flere. Når du kigger på den samtidig som du følger forklaringen, så får du den lille blå boble :)
23.09.2026 - 14:41
Thea skrifaði:
Ik wil deze trui in maat 86 breien. Als ik dan garengroep B kies, kan dat of klopt er dan niets meer van het patroon?
14.09.2026 - 09:11
Ingrid skrifaði:
Wieviel Runden zwischen Halsbündchen und A1?
20.08.2026 - 11:49DROPS Design svaraði:
Liebe Ingrid, man strickt nur eine Runde (mit Zunahmen) nach Halsbündchen, dann beginnt man A.1. Viel Spaß beim Stricken!
21.08.2026 - 06:32
Ingrid skrifaði:
Welches RECHTS?? angezogen,oder wenn er vor mir liegt?
19.08.2026 - 11:20DROPS Design svaraði:
Liebe Ingrid, die rechte hintere Schulter, wo die Runde beginnt, bezieht sich darauf, wenn der Pullover vor Ihnen liegt. Viel Spaß beim Weiterstricken!
19.08.2026 - 12:05
Jacelien skrifaði:
Why are there decreases in stitch count after the yoke? I mean the evenly spaced decreases, so not those for under rhe sleeves. I hope you can explain! Thanks in advance!
07.06.2026 - 20:10DROPS Design svaraði:
Dear Jacelien, we increased a few stitches before starting the charts and now decrease a few stitches after finishing it. This is done to adjust the number of stitches before and after working the chart, since the colourwork pattern will have a slightly different gauge to the stocking stitch pattern worked in Light Beige in the rest of the piece, so the increases before and after the chart help us work the colourwork chart better and then have the correct amount of stitches for working the desired measurements in stocking stitch. Happy knitting!
08.06.2026 - 00:26
Jacelien skrifaði:
Waarom worden er na het breien van de pas steken geminderd? Ik ben dit nog niet eerder tegen gekomen bij het breien van truien met een ronde pas en vraag emr af waarom dit is. Kunnen jullie dat uitleggen? Vriendelijke groet, Jacelien
22.05.2026 - 15:27
Julia Jones skrifaði:
Please send me the pattern
12.05.2026 - 15:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jones, you will find the English pattern here. Happy knitting!
12.05.2026 - 16:08
Annie Clement skrifaði:
Je n'arrive pas a comprendre l'empiecement de ce modele: je vais voir sur d'autres modeles du même type les explication merci de m'aider
17.12.2025 - 16:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Clement, pour l'empiècement, vous tricotez ici le diagramme A.1 tout le tour. Lisez le diagramme de bas en haut, et augmentez dans chaque A.1 tout le tour comme indiqué dans chacun des diagrammes. Ainsi, vous commencez chaque A.1 par 6 mailles et vous en aurez 16 quand il sera terminé, soit 11-12-13-13-14-14-15 x A.1 (= 6 m) = 66-72-78-78-84-84-90 m et 11-12-13-13-14-14-15 x A.1 (= 16 m) = 176-192-208-208-224-224-240 mailles. Bon tricot!
17.12.2025 - 18:07
Blue Holly Sweater#bluehollysweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með berjum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-4 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-68-72-76-76-80 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjón 3,5 með litnum Ljós Beige í DROPS Nepal. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-4-4-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 21-23-23-24-25-25-27 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-4-10-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Nú er prjónað A.1 alls 11-12-13-13-14-14-15 sinnum berustykkið hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 14-14-14-14-17-17-17 cm frá merki = 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón með litnum Ljós Beige jafnframt sem fækkað er um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-200-212-220-232 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með litnum Ljós Beige. Þegar berustykkið mælist 14-14-15-16-17-18-19 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar við merkið og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28-32-35-39-43-45-47 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem er aukið út um 20-20-24-24-24-24-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 132-140-152-156-164-168-176 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 32-36-40-44-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 36-40-44-48-52-54-56 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í litnum Ljós Beige – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-6-7-8-9-10-9 cm alls 4-4-4-4-4-4-5 sinnum = 34-36-38-38-40-42-44 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 19-24-27-30-34-38-42 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-6-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 40-44-44-44-48-48-52 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 23-28-32-35-39-43-47 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluehollysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.