Pistachio Drift Cardigan#pistachiodriftcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með axlarsæti og kanti sem prjónaður er upp að framan. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-15 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann án þess að taka lykkjuna af vinstri prjóni, prjónið síðan 1 lykkju í fremri lykkjubogann á sömu lykkju (= 2 lykkjur auknar út). AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, án þess að taka lykkjuna af vinstri prjóni, prjónið síðan 1 lykkju í aftari lykkjubogann á sömu lykkju (= 2 lykkjur auknar út). GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – fellið af fyrir 1 hnappagati þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og venjuleg lykkja þannig að það myndast hnappagat. Fellið af fyrir 6-7-7-7-8-8-8 hnappagötum þegar kantur að framan mælist 1½ cm, hnappagötin eru staðsett með því að mæla frá neðri kanti á peysu eftir mismunandi stærðum þannig: XS: 4, 14, 25, 35, 46 og 56 cm. S: 4, 13, 22, 31, 40, 49 og 58 cm. M: 4, 14, 23, 33, 42, 52 og 61 cm. L: 4, 14, 24, 34, 44, 54 og 64 cm. XL: 4, 13, 22, 31, 40, 49, 58 og 66 cm. XXL: 4, 13, 22, 31, 40, 49, 58 og 67 cm. XXXL: 4, 14, 23, 33, 42, 51, 60 og 69 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram og til baka til að forma hálsmálið. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á vi fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og meðfram framstykkjum fyrir kanta að framan, kantar að framan eru prjónaðir fram og til baka og saumaðir saman fyrir miðju að aftan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 69-71-73-73-75-77-79 lykkjur á hringprjóna 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Þessi merki eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti, ermar og berustykki. 1. merki: Byrjið að framan, teljið 2 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju. 2. merki: Teljið 19 lykkjur frá 1. merki, setjið 2. merki á undan næstu lykkju (= ermi). 3. merki: Teljið 27-29-31-31-33-35-37 lykkjur frá 2. merki (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju. 4. merki: Teljið 19 lykkjur frá 3. merki, setjið 4. merki á undan næstu lykkju (= ermi). Það eru 2 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta merki. Látið þessi 4 merki fylgja áfram með í stykkinu, lykkjur eru auknar út við hvert af þessum merkjum. Prjónið sléttprjón fram og til baka jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): - lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 19 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 75-77-79-79-81-83-85 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 77-79-81-81-83-85-87 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 19 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 83-85-87-87-89-91-93 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 85-87-89-89-91-93-95 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: * Prjónið fram að fyrstu/næstu lykkju, aukið út 2 lykkjur til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 19 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 2 lykkjur til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 96-98-100-100-102-104-106 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 99-101-103-103-105-107-109 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 19 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 5-6-7-7-8-9-10 nýjar lykkjur í umferð = 108-111-114-114-117-120-123 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 5-6-7-7-8-9-10 nýjar lykkjur í umferð = 113-117-121-121-125-129-133 lykkjur. Það eru 19-20-21-21-22-23-24 lykkjur á hvoru framstykki, 19 lykkjur á hvorri ermi og 37-39-41-41-43-45-47 lykkjur á bakstykki. Aukið hefur verið út alls 4 sinnum fyrir útaukningu fyrir axlarsæti. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni með kantlykkjur í garðaprjóni jafnframt því sem haldið er áfram að auka út fyrir axlarsæti: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 19 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta /næsta merki, aukið út 2 lykkjur til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 19 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 2 lykkjur til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 2. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 1 (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 2. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 þar til aukið hefur verið út 8-9-9-10-10-9-9 sinnum til viðbótar við 4 útaukningar frá hálsmáli – aukið hefur verið út alls 12-13-13-14-14-13-13 sinnum fyrir axlarsæti (= alls 24-26-26-28-28-26-26 umferðir prjónaðar og auknar hafa verið út alls 64-68-68-72-72-68-68 lykkjur fyrir axlarsæti) = 157-165-169-173-177-177-181 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Það eru 30-32-33-34-35-35-36 lykkjur á hvoru framstykki, 19 lykkjur á hvorri ermi og 59-63-65-67-69-69-71 lykkjur á bakstykki. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á bakstykki verður óbreyttur og framstykkið verður eins. Prjónið sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkju í hverri umferð frá réttu – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8-9-9-8-7-4-1 sinnum (= 16-18-18-16-14-8-2 umferðir prjónaðar) = 189-201-205-205-205-193-185 lykkjur. Það eru 30-32-33-34-35-35-36 lykkjur á hvoru framstykki, 35-37-37-35-33-27-21 lykkjur á hvorri ermi og 59-63-65-67-69-69-71 lykkjur á bakstykki. Síðan er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Nú er aukið út á ermum og á bakstykki og framstykki. Prjónið sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkju í hverri umferð frá réttu, aukið er út á undan og á eftir hverju merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 9-10-11-13-16-20-24 sinnum (= 18-20-22-26-32-40-48 umferðir prjónaðar) = 261-281-293-309-333-353-377 lykkjur. Það eru 39-42-44-47-51-55-60 lykkjur á hvoru framstykki, 53-57-59-61-65-67-69 lykkjur á hvorri ermi og 77-83-87-93-101-109-119 lykkjur á bakstykki. Stykkið mælist ca 21-23-24-25-27-28-29 cm frá yst á öxl og niður (= 6 cm útaukningsdýpt á axlarsæti og 15-17-18-19-21-22-23 cm útaukning fyrir ermi). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-42-44-47-51-55-60 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 53-57-59-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 77-83-87-93-101-109-119 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 53-57-59-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-41-43-46-50-54-59 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 163-179-191-207-223-243-263 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 32-32-33-34-33-34-35 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 20-20-22-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð = 183-199-213-233-249-271-293 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 56-58-60-62-64-66-68 cm frá yst á öxl. ERMI: Setjið til baka 53-57-59-61-65-67-69 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-63-67-71-75-79-81 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-4½-4-3½-3-2½-2½ cm alls 6-8-9-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55-57 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-34-34-33-31-31-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-7-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-40-39-37-37-37 cm frá skiptingunni. KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið 1 merki fyrir miðju aftan í hnakka. Notið hringprjón 4, byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp lykkjur fyrir kant að framan meðfram framstykki fram að merki fyrir miðju að aftan þannig: Prjónið upp 109-115-117-123-127-129-133 lykkjur innan við 1 lykkju garðaprjón meðfram öllum kantinum að framan upp að horni á milli berustykkis og hálsmáls (síðasta lykkjan á að vera í horninu á framstykki fyrir miðju að framan, setjið 1 merki í þessa lykkju), haldið áfram að prjóna upp 49-51-53-53-55-59-61 lykkjur áfram í kringum hálsmál fram að merki fyrir miðju að aftan = 158-166-170-176-182-188-194 lykkjur. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – passið uppá að lykkjan með merki sé prjónuð brugðið frá röngu. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) fram að sléttri lykkju með merki (= hornið framan á peysu), munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið lykkjuna með merki slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) fram að lykkju með merki, prjónið lykkju með merki brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2 (= 2 lykkjur fleiri) JAFNFRAMT sem fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2 (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 8 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2 (= 2 lykkjur fleiri) JAFNFRAMT sem slegið er 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með merki. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – uppslátturinn er felldur af eins og slétt lykkja. KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI VINSTRA FRAMSTYKKI: Notið hringprjón 4, byrjið á að prjóna upp lykkjur frá merki fyrir miðju aftan í hnakka og niður meðfram vinstra framstykki þannig: Prjónið upp 49-51-53-53-55-59-61 lykkjur í kringum hálsmál frá merki fyrir miðju að aftan og niður í hornið á milli berustykkis og hálsmáls, síðan eru prjónaðar upp 109-115-117-123-127-129-133 lykkjur innan við 1 lykkju garðaprjón meðfram öllum kanti að framan og niður að botni á framstykki (fyrsta lykkjan á að vera í horninu á framstykki fyrir miðju að framan, setjið 1 merki í þessa lykkju) = 158-166-170-176-182-188-194 lykkjur. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) – passið uppá að lykkjan með merki sé prjónuð brugðið frá röngu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) fram að sléttri lykkju með merki (= hornið á peysu), munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið lykkjuna með merki slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) fram að lykkju með merki, prjónið lykkjuna með merki brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur út umferðina. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2 (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2 (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið eins og UMFERÐ 3. UMFERÐ 8 (= rétta): Prjónið eins og UMFERÐ 2 (= 2 lykkjur fleiri) JAFNFRAMT sem slegið er 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með merki. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan fyrir miðju að aftan – saumið lykkju í lykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
|
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pistachiodriftcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.