Tide Song Cardigan#tidesongcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-9-9-8-8½-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þessi samhverfa útaukning gefur 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1-4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni inn aftan í lyftu lykkjuna og síðan inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þráðinn utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndist 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboga af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hluta á hinum lykkjuboganum. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 89-91-95-99-103-105-109 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið þannig: Frá réttu: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Frá röngu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 75-77-81-85-89-91-95 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 10-17-19-24-23-27-32 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið kantlykkjur að framan eins og áður og munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 99-108-114-123-126-132-141 lykkjur í umferð. Prjónið 2-2-2-2-2-2-2 cm sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 4 lykkjur sléttprjón. * 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 6 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 124-136-144-156-160-168-180 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3½-4 cm sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón. * 3 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 7 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 149-164-174-189-194-204-219 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón. * 4 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 7 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 174-192-204-222-228-240-258 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón. * 5 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 7 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 199-220-234-255-262-276-297 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur sléttprjón. * 6 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 8 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 224-248-264-288-296-312-336 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan án þess að auka út þar til berustykkið mælist 19-20-23-23-23-25-26 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-41-43-47-50-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 64-70-74-82-84-92-100 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-41-43-47-50-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-192-204-220-236 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 23-23-25-27-25-29-33 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 175-187-201-219-229-249-269 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm er fellt af. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 48-54-60-64-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 15-11-5-4½-4-3½-3 cm alls 3-4-7-8-9-10-11 sinnum = 42-46-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-45-43-44-43-42-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-52-52-54-54-58-58 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af. Ermin mælist ca 48-47-45-46-46-45-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tidesongcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.