Cherry Hill Sweater#cherryhillsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, háu hálsmáli og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-32-34-34-36-36-36 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Air (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-11-12-13-14-15 sinnum (= 18-20-22-24-26-28-30 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 68-72-78-82-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni - þar til stykkið mælist 9-9-10-9-10-8-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-4-4-6-7 sinnum (= 6-6-6-8-8-12-14 umferðir prjónaðar) = 74-78-84-90-96-104-110 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14-15 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við handveg þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 4-5-6-7-8-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 4-5-6-7-8-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 10 (= brugðið): Prjónið brugðið út umferðina = 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 14-14-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 68-72-78-82-88-92-96 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 25-27-28-29-30-30-30 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-4-4-6-7 sinnum (= 6-6-6-8-8-12-14 umferðir prjónaðar) = 74-78-84-90-96-104-110 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 28-30-31-33-34-36-37 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 74-78-84-90-96-104-110 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 4-6-6-6-8-8-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið síðan 74-78-84-90-96-104-110 lykkjur frá bakstykki eins og áður og fitjið upp 4-6-6-6-8-8-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 156-168-180-192-208-224-244 lykkjur í umferð. Stykkið er nú mælt héðan! Nú er prjónað í hring. Prjónið þar til stykkið mælist ca 18-18-19-19-19-19-20 cm frá handvegi. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 48-48-54-60-62-70-74 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 204-216-234-252-270-294-318 lykkjur. Þegar stroffið mælist 13-13-13-13-14-14-14 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66-68 cm, mælt innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 8 til 11 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund, byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 58-64-68-72-78-82-90 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2-2-3-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 14-14-14-14-14-16-18 sinnum (= 7-7-7-7-7-8-9 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-3-3-3-4-4-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 12-12-9-12-5½-5½-3½ cm alls 1-1-3-2-4-4-6 sinnum = 52-56-56-62-62-66-66 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-41-40-39-37-37-37 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið 1 umferð með stroffprjóni (= 4 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 32-35-35-36-36-39-39 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 84-91-91-98-98-105-105 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 12-13-13-14-14-15-15 mynstureiningar). Þegar stroffið mælist 13-13-13-13-14-14-14 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 54-54-53-52-51-51-51 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 90-96-102-102-108-114-114 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 6. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) í 12-12-12-12-13-13-13 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cherryhillsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.