Frost Bloom Cardigan#frostbloomcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni ofan frá og niður með laskalínu, blöðruermum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca ca 9½-10-8½-8½-9-9½-9½ cm á milli hverra hnappagata. I-CORD AFFELLING-1 (á við um fram- og bakstykki): Þegar síðasta umferðin hefur verið prjónuð frá röngu byrjar affellingin þannig: BYRJUN (= ranga): Í lok umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón. Snúið stykkinu. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu (þegar prjónað er svona þá herðist á þræðinum sem prjónað er með, þannig að það myndast snúrukantur). Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun / lokin á i-cord kantinum við stykkið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). I-CORD AFFELLING-2 (á við um ermar): Þegar síðasta umferðin er prjónuð byrjar affellingin þannig: BYRJUN (= rétta): Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið þessum 3 nýju lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast lítill snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 79-79-83-83-89-93-93 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju að framan), stykkið er núna mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt jafnframt því sem fækkað er um 9-9-9-9-11-11-11 lykkjur jafnt yfir = 70-70-74-74-78-82-82 lykkjur. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við þessar laskalykkjur. Teljið 16-16-17-17-18-19-19 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-22-24-26-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru nú 16-16-17-17-18-19-19 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 14-15-17-18-18-18-19 sinnum = 182-190-210-218-222-226-234 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 2-3-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar = 190-202-218-226-234-242-254 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-24-25-27-28-30-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 33-35-37-38-40-42-44 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 35-37-41-43-43-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 54-58-62-64-68-72-76 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 35-37-41-43-43-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 33-35-37-38-40-42-44 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-144-152-160-172-184-192 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Fellið af með I-CORD AFFELLING-1 – lesið leiðbeiningar að ofan. Peysan mælist 51-53-55-57-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 35-37-41-43-43-43-45 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 7 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 41-45-49-53-55-57-59 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-12-14-14 lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-6-4-3½-3-4-3 cm alls 3-3-4-4-4-3-3 sinnum = 35-39-41-45-47-51-53 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 18-17-16-15-14-13-12 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir = 38-42-44-48-50-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21-20-19-18-17-16-15 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 42-46-48-52-54-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-39-38-37-36-35 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er fækkað um 13-15-15-16-16-16-17 lykkjur jafnt yfir = 29-31-33-36-38-42-43 lykkjur. Fellið af með I-CORD AFFELLING-2 – lesið leiðbeiningar að ofan. Ermin mælist ca 42-41-40-39-38-37-36 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostbloomcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.