Soft Spire Sweater#softspiresweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og skáhallandi öxl. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-28 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Ef ekki eru nægar lykkjur í heilan kaðal, prjónið kaðlalykkjurnar í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Axlasaumar eru felldir af með því að prjóna 1 lykkju frá framstykki og 1 lykkju frá bakstykki saman. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar í hring niður á við. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 180-200-220-230-250-270-300 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Nepal. Prjónið umferð 1 þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftrir, endið með 3 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff hringinn svona í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju með uppslætti í hverri einingu með sléttum lykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 216-240-264-276-300-324-360 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið mynstur frá byrjun umferðar þannig: Prjónið A.1 alls 18-20-22-23-25-27-30 sinnum, prjónið A.2 alls 18-20-22-23-25-27-30 sinnum. Haldið áfram með mynstur upp úr. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 27-29-31-32-33-34-35 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri (þá kemur snúningur í köðlum til með að vera frá réttu þegar prjónað er fram og til baka). Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 46-52-58-58-64-70-76 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), fellið af næstu 16-16-16-22-22-22-28 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 92-104-116-116-128-140-152 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 16-16-16-22-22-22-28 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 52-58-64-64-70-76-82 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 92-104-116-116-128-140-152 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Mynstrið er prjónað fram og til baka eins og áður, en í hvorri hlið er prjónuð 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan og 2 lykkjur í sléttprjóni (= 14-16-18-18-20-22-24 kaðlar alls). Síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu. Munið að ef ekki eru nægilega margar lykkjur í einn heilan kaðal (= 4 lykkjur slétt frá réttu) eru kaðlalykkjurnar prjónaðar í sléttprjóni. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur í sléttprjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-7-7-7-13-13-13 sinnum = 78-90-102-102-102-114-126 lykkjur (= 12-14-16-16-16-18-20 kaðlar alls). Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú er ekki lengur snúið í kaðli og lykkjum er fækkað yfir mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.3a, prjónið A.3b alls 11-13-15-15-15-17-19 sinnum, prjónið A.3c. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.3 er lokið á hæðina (= 8 umferðir prjónaðar) – síðasta umferð er prjónuð frá röngu = 54-62-70-70-70-78-86 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 16-20-24-24-24-24-28 lykkjur slétt (= hægri öxl), fellið af næstu 22-22-22-22-22-30-30 lykkjur, prjónið 16-20-24-24-24-24-28 lykkjur slétt (= vinstri öxl). Nú á að prjóna skáhallandi öxl, haldið áfram með vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Prjónið skáhallandi öxl þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Fellið af fyrstu lykkjuna (= 15-19-23-23-23-23-27 lykkjur fyrir öxl), prjónið slétt þar til eftir eru 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 6-8-10-10-10-10-12 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 9-12-15-15-15-15-18 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. Látið 15-19-23-23-23-23-27 lykkjur frá öxl hvíla á þræði eða á hjálparprjóni, þær eru felldar af síðar saman með vinstri öxl á framstykki. HÆGRI ÖXL: Prjónið skáhallandi öxl þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Fellið af fyrstu lykkjuna (= 15-19-23-23-23-23-27 lykkjur fyrir öxl), prjónið brugðið þar til eftir eru 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 6-8-10-10-10-10-12 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 9-12-15-15-15-15-18 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. Látið 15-19-23-23-23-23-27 lykkjur frá öxl hvíla á þræði eða á hjálparprjóni, þær eru felldar af síðar saman með hægri öxl á framstykki. FRAMSTYKKI: = 92-104-116-116-128-140-152 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-49-50-52-53-55 cm – síðasta umferð er prjónuð frá réttu = 78-90-102-102-102-114-126 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 27-33-39-39-39-39-45 lykkjur (= vinstri öxl), fellið af næstu 24-24-24-24-24-36-36 lykkjur, prjónið eins og áður yfir síðustu 27-33-39-39-39-39-45 lykkjur. Ekki klippa þráðinn, haldið áfram að prjóna hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: = 27-33-39-39-39-39-45 lykkjur. Nú er ekki lengur snúið í kaðli og lykkjum er fækkað yfir mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.4a, prjónið A.4b alls 2-3-4-4-4-4-5 sinnum, prjónið A.4c. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.4 hefur verið lokið á hæðina (= 8 umferðir prjónaðar) – síðasta umferð er prjónuð frá röngu = 15-19-23-23-23-23-27 lykkjur. Nú á að prjóna skáhallandi öxl, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 6-8-10-10-10-10-12 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur styttra en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 9-12-15-15-15-15-18 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur styttra en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. Nú á að fella af þær 15-19-23-23-23-27-31 lykkjur sem eftir eru saman með 15-19-23-23-23-27-31 lykkjum af hjálparprjóni á hægra bakstykki, haldið prjónunum saman með framstykki að þér og fellið af þannig: Prjónið 1 lykkju frá hægra framstykki og 1 lykkju frá hægra bakstykki slétt saman (= 2 lykkjur slétt saman), * prjónið 1 lykkju frá hægra framstykki og 1 lykkju frá hægra bakstykki slétt saman (= 2 lykkjur slétt saman), steypið annarri lykkju á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. VINSTRI ÖXL: = 27-33-39-39-39-39-45 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. Nú er ekki lengur snúið í kaðli og lykkjum er fækkað yfir mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.5a, prjónið A.5b alls 2-3-4-4-4-4-5 sinnum, prjónið A.5c. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.5 hefur verið prjónað á hæðina (= 8 umferðir prjónaðar) – síðasta umferð er prjónuð frá röngu = 15-19-23-23-23-23-27 lykkjur. Nú er prjónuð skáhallandi öxl, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 6-8-10-10-10-10-12 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur styttra en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 9-12-15-15-15-15-18 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-5-6 lykkjur styttra en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. Nú á að fella af þær 15-19-23-23-23-27-31 lykkjur sem eftir eru saman með 15-19-23-23-23-27-31 lykkjum af hjálparprjóni á vinstra bakstykki, haldið prjónunum saman með bakstykkið að þér og fellið af þannig: Prjónið 1 lykkju frá vinstra framstykki og 1 lykkju frá vinstra bakstykki brugðið saman (= 2 lykkjur brugðið saman), * prjónið 1 lykkju frá vinstra framstykki og 1 lykkju frá vinstra bakstykki brugðið saman (= 2 lykkjur brugðið saman), steypið annarri lykkju á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl. Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4,5. Byrjið fyrir miðju í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 66-66-66-70-74-78-82 lykkjur innan við 1 kantlykkju – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 22-22-22-22-24-24-24 sinnum (= 11-11-11-11-12-12-12 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 5½-7-8½-5½-4½-3½-3 cm alls 7-6-5-7-8-9-11 sinnum = 52-54-56-56-58-60-60 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 49-49-47-48-48-46-45 cm frá miðju ofan á öxl, ermin mælist 38-38-36-37-36-34-33 cm frá miðju undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-9-9-7-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-65-65-65-70-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 55-55-53-54-55-53-52 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu innan við ystu lykkju þannig: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 72-72-72-74-74-86-86 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4-4-4-4-4-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softspiresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.