Jeanne skrifaði:
Mijn vraag gaat over: HET RECHTER EN LINKER PAND VERBINDEN DOOR EXTRA STEKEN OP TE ZETTEN. Moeten die extra op te zetten steken niet aan de hals ipv aan de achterkant komen? Dus als je de extra steken moet opzetten aan de averechte kant moet je volgens mij eerst de linker schouder averecht in patroon breien en dan de extra steken opzetten en daarna de rechter schouder breien??
29.10.2025 - 19:55
Jeanne skrifaði:
Klopt de beschrijving van het patroon bij VOORPAND (rechter en linker deel samen)? Moeten de extra steken die je op moet zetten niet aan de hals zijde zijn? De beschrijving zegt: begin aan de averechte zijde van de rechter schouder te breien, zet dan extra steken op en brei de linker schouder averecht in patroon verder. Het motief past niet en de voorkant blijft open?? Moet dit zo of lees ik het verkeerd?
27.10.2025 - 22:25DROPS Design svaraði:
Dag Jeanne,
Op het rechter voorpand meerder bij een hoogte van 4-4-5-5-6-6 cm aan de kant van de hals. Dit doe je als je aan de goede kant bent. Je breit dan vanaf het armsgat richting de hals en aan die kant (dus aan het einde van de naald meerder je steken in 'NAALD 1').
29.10.2025 - 18:22
Annelie skrifaði:
Hej! Jag stickar storlek small och har börjat på bakstycket. Alla ökningar är gjorda, 32 varv mönster och rätt antal maskor. Enligt fortsättning ska mönstret fortsätta på A4 11:e varv. Jag har stickat 32 varv mönster, 12+12+8, och ska således börja på varv 9 och inte 11 som anges i mönstret. Börjar jag på varv 11 stämmer inte mönstret.
15.10.2025 - 19:27DROPS Design svaraði:
Hej Annelie, vi forstår hvad du mener og skal høre med design om hvad som stemmer. Du strikker selvfølelig så du får mønsteret til at stemme :)
23.10.2025 - 08:02
Pat Carpenter skrifaði:
Where can I find the sizes? I see these are S M L , etc. but what is the measurement for each of them, I.e. S (32”) , M (38”), L(40”) chest. I look forward to your response. Thank you.p
26.09.2025 - 18:56DROPS Design svaraði:
Dear Pat, you can find the measurements for each size in the size chart at the bottom of the pattern. This size chart shows the measurements of the finished garment in cm. For more information, you can check this lesson. Happy knitting!
05.10.2025 - 23:41
Diamond Love Sweater#diamondlovesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 260-10 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Merking í mynsturteikningu sýnir í hvaða umferð bakstykkið endaði – þetta auðveldar þegar prjóna á framstykki og handvegur er stilltur af. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í fyrir miðju undir ermi, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum Natur, prjónið 1 lykkju slétt með litnum Natur (merkið situr í þessari lykkju), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum Natur (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú bíður bakstykkið á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 39-39-39-39-39-39 lykkjur á hringprjón 4 með litnum Natur í DROPS Fiesta. Prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan JAFNFRAMT er prjónað eins og útskýrt er að neðan. ATH: Ystu 3 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar með litnum Natur þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 2-2-2-2-2-2 sinnum, prjónið A.3, aukið um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.3, A.2 alls 2 sinnum, A.1, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 16-19-22-22-25-28 sinnum (= 32-38-44-44-50-56 umferðir prjónaðar). Á eftir síðustu útaukningu eru = 103-115-127-127-139-151 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur, prjónið A.4 alls 8-9-10-10-11-12 sinnum (byrjið í umferð 9 í A.4 þannig að mynstrið passi yfir lykkjur frá A.1, A.2 og A.3), prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.4 og endið með 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 16-17-17-18-19-19 cm mælt frá merki yst meðfram handveg – endið eftir umferð frá röngu og fellið jafnframt af 1 kantlykkju í hvorri hlið í síðustu umferð = 101-113-125-125-137-149 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Notið litinn Natur og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl innan við ystu lykkju, prjónið síðan upp 1 lykkju í 2 næstu umferðir yst við handveg (prjónið upp innan við ystu lykkju) = 34-40-46-46-52-58 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur, prjónið 4-10-4-4-10-4 síðustu lykkjur í A.2, prjónið allt A.2 alls 2-2-3-3-3-4 sinnum, endið með 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, auki út þannig – athugið vel í hvaða umferð í mynsturteikningu þetta er: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur í litnum Natur, aukið út 1 lykkju til vinstri (í litnum Natur), haldið áfram með A.2 eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt í litnum Natur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið í litnum Natur, prjónið A.2 frá röngu þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið í litnum Natur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.2. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 40-46-52-52-58-64 lykkjur. Endið með umferð frá réttu án útaukninga. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Notið litinn Natur, byrjið 2 umferðum á undan síðustu útaukningu fyrir skáhallandi öxl á bakstykki, prjónið upp 1 lykkju í hvora af þessum umferðum innan við ystu lykkju, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl (innan við ystu lykkju) = 34-40-46-46-52-58 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur, prjónið A.4 alls 2-3-3-3-3-4 sinnum, prjónið -10-4-4-10-4 fyrstu lykkjur í A.4, endið með 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, passið uppá að útaukning byrjar við sömu umferð og á vinstra framstykki, aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt í litnum Natur, prjónið A.4 þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri (í litnum Natur), prjónið 3 lykkjur slétt í litnum Natur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið í litnum Natur, prjónið A.4 frá röngu þar til eftir eru 3 lykkjur, prjónið 3 lykkjur brugðið í litnum Natur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 40-46-52-52-58-64 lykkjur. Endið með umferð frá réttu án útaukninga. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Byrjið með lykkjur frá hægra framstykki: Prjónið 3 lykkjur brugðið með litnum Natur, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 37-43-49-49-55-61 lykkjur, fitjið upp 23-23-23-23-23 nýjar lykkjur í umferð með litnum Natur, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 37-43-49-49-55-61 lykkjur frá vinstri öxl, prjónið 3 lykkjur brugðið með litnum Natur = 103-115-127-127-139-151 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur, prjónið A.4 alls 8-9-10-10-11-12 sinnum, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjur í A.4 og endið með 3 lykkjur sléttprjón í litnum Natur. Prjónið þar til stykkið mælist 28-29-31-32-33-35 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir umferð frá röngu, stillið af að endað sé í sömu umferð í mynsturteikningu eins og á bakstykki og fellið jafnframt af 1 kantlykkju í hvorri hlið í síðustu umferð (til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá í lok umferðar, er hægt að prjóna síðustu 2 lykkjur í umferð brugðið saman) = 101-113-125-125-137-149 lykkjur. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið mynstur eins og áður yfir 101-113-125-125-137-149 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 7-7-7-19-19-19 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir 101-113-125-125-137-149 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 7-7-7-19-19-19 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 216-240-264-288-312-336 lykkjur í umferð. Nú er prjónað mynstur í hring yfir allar lykkjur, þ.e.a.s. haldið er áfram að prjóna mynstur hringinn yfir allar lykkjur – byrjun umferðar er á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi og framstykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 38-39-40-40-41-42 cm frá handveg – endið eftir 4. eða 10. umferð í mynstri. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 240-264-292-316-344-372 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 7 til 8 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum handveg, notið hringprjón 3 og litinn Natur og byrjið í miðjulykkju sem fitjuð var upp mitt undir ermi, setjið 1 merki í þessa lykkju og prjónið upp 99-103-107-125-129-133 lykkjur – stillið af að prjónuð sé upp 1 lykkja í lykkjuna mitt undir ermi og 1 lykkja við merki mitt ofan á öxl og prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við báðar lykkjur með merki í. Teljið út frá merki mitt ofan á öxl hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – merki mitt ofan á öxl á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.4. Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni og A.4 yfir allar lykkjur, en 3 miðjulykkjur undir ermi eru prjónaðar í litnum Natur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm mælt mitt undir ermi fækkið um 2 lykkjur 3-3-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum3-3-2½-1½-1½-1½ cm alls15-16-17-25-26-27 sinnum = 63-65-67-69-71-73 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur með 3 lykkjur í sléttprjóni í litnum Natur mitt undir ermi þar til ermin mælist 52-50-48-48-46-44 cm frá merki mitt ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff í litnum Natur (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9-7-9-7-9-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-72-76-76-80-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 56-54-52-53-51-49 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3 og litinn Natur. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 100 til 112 lykkjur innan við 1 lykkju, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondlovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.