Alison skrifaði:
Is there an error in the instructions for the yoke when the increases change to a 4 row repeat? Row 4 sets 4 increases on front and back only so A3 and A4 repeated twice gives 4 increases but there is also an instruction to increase 1 stitch to raglan. Thanks
17.10.2025 - 19:04
Grey Feather Sweater#greyfeathersweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-21 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna – jafnframt eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið á prjóni að tilgreindum lykkjufjölda og hálsmálið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 58-60-62-66-70-72-74 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í umferð (= miðja að aftan), merkiþráðurinn er notaður til að merkja hvar umferðin byrjar þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka. Að auki eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og merkin eru notuð þegar mynstrið er prjónað og aukið er út fyrir laskalínu. teljið 4 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= vinstra framstykki), teljið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= ermi), teljið 30-32-34-34-34-36-38 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= bakstykki), teljið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= ermi), það eru 4 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka – JAFNFRAMT eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli og SAMTÍMIS er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. það er prjónað mynstur með útaukningu á framstykki/bakstykki, aukið er út fyrir laskalínu á ermum og lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið til að forma hálsmál. Munið að fylgja prjónfestunni. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1 (= 4 lykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2 (= 4 lykkjur), prjónið 22-24-26-26-26-28-30 lykkjur slétt (= bakstykki), prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur fleiri) = 67-69-71-75-79-81-83 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið (munið að uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA og í útskýringu í mynsturteikningu), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja aukin út) = 68-70-72-76-80-82-84 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, 1 lykkja slétt, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur auknar út) = 77-79-81-85-89-91-93 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja aukin út) = 78-80-82-86-90-92-94 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.1 (í þessari umferð í A.1 er prjónaður kaðall með útaukningu), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2 (í þessari umferð í A.2 er prjónaður kaðall með útaukningu), prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt út umferðina, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur auknar út) = 88-90-92-96-100-102-104 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur auknar út) = 90-92-94-98-102-104-106 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt út umferðina, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur auknar út) = 100-102-104-108-112-114-116 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur auknar út) = 102-104-106-110-114-116-118 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt út umferðina, fitjið síðan upp 10-12-14-14-14-16-18 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 18-20-22-22-22-24-26 lykkjur auknar út) = 120-124-128-132-136-140-144 lykkjur í umferð. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merki (ásamt útaukningu í mynstri), það eru 40-42-44-44-44-46-48 lykkjur á framstykki/bakstykki og 20-20-20-22-24-24-24 lykkjur á ermum. Klippið þráðinn. Stykkið er nú prjónað í hring frá miðju að aftan, færið því lykkjurnar af vinstri prjóni yfir á hægri prjón fram að merkiþræði fyrir miðju að aftan (lykkjurnar eru ekki prjónaðar, heldur bara færðar til) og prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu). UMFERÐ 2: Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur auknar út). Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-13-14-13-12-11-10 sinnum (= 24-26-28-26-24-22-20 umferðir prjónaðar), þ.e.a.s. aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 17-18-19-18-17-16-15 sinnum (A.3 og A.4 er endurtekið á hæðina) = 34-36-38-36-34-32-30 umferðir prjónaðar. Nú eru 64-68-72-70-68-68-68 lykkjur á framstykki/bakstykki og 44-46-48-48-48-46-44 lykkjur á ermum = 216-228-240-236-232-228-224 lykkjur í umferð. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu). UMFERÐ 2: Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur auknar út). UMFERÐ 3: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur auknar út, þ.e.a.s. lykkjur eru einungis auknar út á framstykki/bakstykki, ekki á ermum). EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2-3-3-4-6-8-10 sinnum (= 8-12-12-16-24-32-40 umferðir prjónaðar), aukið hefur verið út 2-3-3-4-6-8-10 sinnum á ermum og 4-6-6-8-12-16-20 sinnum á framstykki/bakstykki. Öll útaukning hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 21-24-25-26-29-32-35 sinnum á framstykki/bakstykki og 19-21-22-22-23-24-25 sinnum á ermum = 72-80-84-86-92-100-108 lykkjur á framstykki/bakstykki og 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur á ermum = 240-264-276-284-304-324-344 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út og gera kaðal þar til stykkið mælist 17-18-20-20-22-25-28 cm frá hálsmáli fyrir miðju að framan, stykkið mælist ca 24-25-27-28-30-33-36 cm frá öxl þegar stykkið liggur flatt. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 36-40-42-43-46-50-54 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 72-80-84-86-92-100-108 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 36-40-42-43-46-50-54 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-196-216-236-256 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 6-6-8-12-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 38-40-41-42-44-45-47 cm frá hálsmáli mælt fyrir miðju að framan (stykkið mælist ca 45-47-48-50-52-53-55 cm frá öxl). Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 28-32-32-36-40-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 184-204-216-232-256-276-300 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-7-7 cm er fellt af með ítalskri affellingu eða með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 43-45-47-48-50-52-54 cm frá merki mitt að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-12-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-58-62-68-76-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-12-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 1-1-1-2-2-2-2 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 8-7-5-4½-3-2-1½ cm alls 3-4-5-6-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-34-31-32-31-26-23 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-18-20-20-22-22-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-66-70-72-74-76-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 10-10-12-12-12-14-14 cm er fellt af með ítalskri affellingu eða fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-43-44-43-40-37 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við eina laskalínu og prjónið upp ca 93-97-101-105-109-111-119 lykkjur í kringum hálsmál – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 og passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar upp í fallega línu innan við uppfitjunarkantinn í kringum hálsmálið þannig að hálsmálið fái fallegan boga. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-5-5-6-6-7-7 cm. Fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greyfeathersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.