Annemie Peeters skrifaði:
In de beschrijving is sprake van kabels. Geen kabels zichtbaar op foto. Misschien achterkant van het model? Kan ik dit model breien met een lichter (langere garen per bol) garen? Welk garen suggereert u dan?
25.09.2025 - 10:12DROPS Design svaraði:
Dag Annemie,
De kabels zitten in de raglanlijnen. Als je dit patroon met een ander garen breit, bijvoorbeeld van categorie B, dus een dunnere draad met een langere looplengte, zal de stekenverhouding anders zijn als je ook dunnere naalden neemt (zoals aangegeven op het betreffende garen). Het is belangrijk dat de stekenverhouding overeenkomt zodat je het patroon kan volgen. Je kan ook dikkere naalden nemen waardoor het werk opener wordt met wel de juiste stekenverhouding.
27.09.2025 - 19:44
Elizabeth skrifaði:
Would like this pattern
24.09.2025 - 16:52
Gray Feather Cardigan#grayfeathercardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, köðlum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-22 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu frá réttu þegar prjónaðar hafa verið 7½-8-8-8½-8½-7½-8 cm eftir að hálsmál hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4-4-5-5 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-8½-8½-7½-8 cm á milli hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna – jafnframt eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið á prjóni að tilgreindum lykkjufjölda og hálsmálið formað til loka. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 58-60-62-66-70-72-74 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og merkin eru notuð þegar mynstrið er prjónað og aukið út fyrir laskalínu. Teljið 4 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= vinstra framstykki), Teljið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= ermi), Teljið 30-32-34-34-34-36-38 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= bakstykki), teljið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju (= ermi), það eru 4 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka – JAFNFRAMT eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli og SAMTÍMIS er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. það er prjónað mynstur með útaukningu á framstykki/bakstykki, aukið er út fyrir laskalínu á ermum og lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið til að forma hálsmál. Munið að fylgja prjónfestunni. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1 (= 4 lykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2 (= 4 lykkjur), prjónið 22-24-26-26-26-28-30 lykkjur slétt (= bakstykki), prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-10-12-14-14-14 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir lasaklínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmál í lok umferðar (= 9 lykkjur auknar út) = 67-69-71-75-79-81-83 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA og mynsturteikningu), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja aukin út) = 68-70-72-76-80-82-84 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, 1 lykkja slétt, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur auknar út) = 77-79-81-85-89-91-93 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja aukin út) = 78-80-82-86-90-92-94 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.1 (= kaðall með útaukningu), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2 (= kaðall með útaukningu), prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt út umferðina, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur auknar út) = 88-90-92-96-100-102-104 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur auknar út) = 90-92-94-98-102-104-106 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt út umferðina, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur auknar út) = 100-102-104-108-112-114-116 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur auknar út) = 102-104-106-110-114-116-118 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.2, prjónið slétt út umferðina, fitjið síðan upp 11-12-13-13-13-14-15 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 19-20-21-21-21-22-23 lykkjur auknar út) = 121-124-127-131-135-138-141 lykkjur í umferð. UMFERÐ 10 (= ranga): prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina, fitjið síðan upp 11-12-13-13-13-14-15 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 132-136-140-144-148-152-156 lykkjur. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin (meðtalin útaukning í mynstri), það eru 26-27-28-28-28-29-30 lykkjur á framstykkjum, 40-42-44-44-44-46-48 lykkjur á bakstykki og 20-20-20-22-24-24-24 lykkjur á ermum. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 7 kantlykkjur að framan með i-cord (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu). Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-13-14-13-12-11-10 sinnum (= 24-26-28-26-24-22-20 umferðir prjónaðar), þ.e.a.s. aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 17-18-19-18-17-16-15 sinnum (A.3 og A.4 er endurtekið á hæðina) = 34-36-38-36-34-32-30 umferðir prjónaðar. Nú eru 38-40-42-41-40-40-40 lykkjur á framstykkjum, 64-68-72-70-68-68-68 lykkjur á bakstykki og 44-46-48-48-48-46-44 lykkjur á ermum = 228-240-252-248-244-240-236 lykkjur í umferð. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 7 kantlykkjur að framan með i-cord (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og kanta að framan eins og áður (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kanta að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, prjónið A.3, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið kant að framan eins og áður (= 4 lykkjur fleiri), þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum/bakstykki – ekki á ermum). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið og kanta að framan eins og áður. Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2-3-3-4-6-8-10 sinnum (= 8-12-12-16-24-32-40 umferðir prjónaðar), aukið hefur verið út 2-3-3-4-6-8-10 sinnum á ermum og 4-6-6-8-12-16-20 sinnum á framstykkjum/bakstykki. Öll útaukning hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 21-24-25-26-29-32-35 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 19-21-22-22-23-24-25 sinnum á ermum = 42-46-48-49-52-56-60 lykkjur á framstykkjum, 72-80-84-86-92-100-108 lykkjur á bakstykki og 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur á ermum = 252-276-288-296-316-336-356 lykkjur í umferð Prjónið síðan án þess að auka út og gera kaðal þar til stykkið mælist 21-22-24-24-26-29-32 cm frá uppfitjunarkanti aftan í hnakka, stykkið mælist ca 24-25-27-28-30-33-36 cm frá öxl þegar stykkið liggur flatt. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 35-39-41-42-45-49-53 lykkjur sléttprjón (= framstykki, setjið næstu 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 72-80-84-86-92-100-108 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 35-39-41-42-45-49-53 lykkjur sléttprjón og prjónið kant að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-196-208-228-248-268 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist ca 37-39-40-42-43-44-46 cm mælt frá hálsmáli að innanverðu við kant við miðju að framan (stykkið mælist ca 45-47-48-50-52-53-55 cm frá öxl). Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 29-33-33-37-41-41-45 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 197-217-229-245-269-289-313 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-7-7 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 42-44-46-48-49-51-53 cm frá hálsmáli fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-52-54-56-60-62-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-12-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-58-62-68-76-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-12-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 1-1-1-2-2-2-2 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 8-7-5-4½-3-2-1½ cm alls 3-4-5-6-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-34-31-32-31-26-23 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-18-20-20-22-22-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-66-70-72-74-76-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 10-10-12-12-12-14-14 cm er fellt af með ítalskri affellingu eða fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-43-44-43-40-37 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp lykkjur þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja i-cord-lykkju (hér er mikilvægt að prjóna upp lykkjurnar þannig að i-cordinn haldi réttur áfram), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja af 5 lykkjum í garðaprjóni frá kanti að framan (= alls 7 kantlykkjur að framan), prjónið upp ca 91-95-99-103-107-113-115 lykkjur í kringum hálsmálið fram að kanti að framan í hinni hliðinni – þessi lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 2 + 1 og passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar upp í fallega línu innan við uppfitjunarkantinn í kringum hálsmálið þannig að hálsmálið fái fallegan boga, síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja af 5 lykkjum í garðaprjóni frá kanti að framan, í lokin er prjónuð upp 1 lykkja í hvora af 2 i-cord-lykkjum = ca 105-109-113-117-121-127-129 lykkjur. Prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord eins og áður. UMFERÐ 2 (= rétta): Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2, en eftir ca 1½-2 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-7-7 cm. Fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – ATH: Ef fellt er af með ítalskri affellingu, fellið kantlykkjur að framan af eins og venjulega með sléttum lykkjum frá réttu, síðan er fellt af með ítalskri affellingu yfir stroff, áður en fellt er af með sléttum lykkjum yfir kantlykkjur að framan í hinni hliðinni. FRÁGANGUR. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #grayfeathercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.