Silver Thistle Vest#silverthistlevest |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-17 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Byrjið við ör í réttri stærð (á við um A.1, A.2, A.3, A.6 og A.7). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Nú eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan og framstykkin eru sett saman. Þegar framstykkið er tilbúið er stykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum handveg, síðan er prjónaður kantur hringinn. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 27-27-27-27-29-29-29 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 11-11-12-13-13-14-15 sinnum (= 22-22-24-26-26-28-30 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 71-71-75-79-81-85-89 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni - þar til stykkið mælist 12-11-11-12-11-9-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-5-6-8-10-12 sinnum (= 6-10-10-12-16-20-24 umferðir prjónaðar) = 77-81-85-91-97-105-113 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-18-19 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 22-22-24-26-26-28-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 13 lykkjur brugðið = 24-24-26-28-28-30-32 lykkjur. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): A.1, A.2, A.3, A.4, 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón, A.4, prjónið A.3, A.2, A.1 – frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni, stykkið mælist nú ca 11-11-13-13-15-15-15 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. = 37-37-39-41-41-43-45 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 22-22-24-26-26-28-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 13 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur brugðið = 24-24-26-28-28-30-32 lykkjur. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón, A.5, A.6, A.2, A.7. UMFERÐ 2 (= ranga): A.7, A.2, A.6, A.5, 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón – frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni, stykkið mælist nú ca 11-11-13-13-15-15-15 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. = 37-37-39-41-41-43-45 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 37-37-39-41-41-43-45 lykkjur frá hægra framstykki þannig: 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón, A.5, A.6, A.2, A.2, A.3, fitjið upp 13 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli (= A.8) í lok umferðar, prjónið 37-37-39-41-41-43-45 lykkjur frá vinstra framstykki þannig: Prjónið A.6, A.2, A.2, A.3, A.4, 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón = 87-87-91-95-95-99-103 lykkjur í umferð. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í A.8 - A.8 er snúið í kaðli í sömu umferð og A.4 og A.5. Prjónið mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 28-27-29-30-29-29-28 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-5-6-8-10-12 sinnum (= 6-10-10-12-16-20-24 umferðir prjónaðar) = 93-97-101-107-111-119-127 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 31-32-34-35-36-38-39 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 93-97-101-107-111-119-127 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 4-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðan 77-81-85-91-97-105-113 lykkjur frá bakstykki eins og áður og fitjið upp 4-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 178-194-206-222-236-256-276 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring í mynstri eins og áður – nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni eins og á bakstykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 20-21-21-22-23-23-24 cm frá handvegi – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð án þess að snúa í kaðli. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-18-22-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kaðla) = 192-208-224-244-260-284-308 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vestið mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm, mælt innst við hálsmál. KANTAR Í HANDVEGI: Kantar í handvegi eru prjónaðir frá handvegi og niður á við á hringprjón 3,5. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handvegi = fyrir miðju ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 8 til 10 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3,5 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 92-96-100-104-108-112-116 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í umferð 1 jafnframt sem fækkað er um 2 lykkjur hvoru megin við merki fyrir miðju ofan á öxl með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Prjónið þar til kanturinn mælist 2½ cm. Prjónið síðustu umferð þar sem lykkjum er fækkað við merki fyrir miðju ofan á öxl 1 sinni til viðbótar með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri) – þetta er gert til að forma kant í handvegi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við annan kantinn þar sem lykkjur voru prjónaðar upp og prjónið upp ca 84-84-88-88-94-94-94 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverthistlevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.