Emery Stone Cardigan#emerystonecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í uppsláttinn, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-8½-9-8-8 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, prjónið stuttar umferðir til að forma hálsmálið – jafnframt er aukið út fyrir laskalínu. Þegar búið er að forma kant í hálsmáli, prjónið berustykkið fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-104-108-116-116-128-128 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3½-3½-4-4-5 cm. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= fyrir miðju að aftan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru núna kallaðar laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 20-20-20-20-20-24-24 lykkjur (= vinstra framstykki, setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-28-28-28-32-32 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 20-20-20-20-20-24-24 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn í hvoru framstykki er jafnaður út til 11-11-13-13-13-15-15 lykkjur á milli kanta að framan og 2 laskalykkjurnar = 102-102-110-118-118-126-126 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. það eru 19-19-21-21-21-23-23 lykkjur á hvoru framstykki fram að merkjum, 20-20-20-24-24-24-24 lykkjur á hvorri ermi á milli merkja og 24-24-28-28-28-32-32 lykkjur á bakstykki á milli merkja. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT sem hálsmálið er formað með því að prjóna stuttar umferðir og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan með leiðbeiningum um hvernig auka á út og prjónið eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. HÁLSMÁL: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 1. merki sem var sett (= í vinstri hlið í hálsmáli frá réttu, séð þegar flíkin er mátuð), snúið stykkinu og herðið á þræði – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, prjónið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 4. merki sem var sett í stykkið (= í hægri hlið í hálsmáli, séð þegar flíkin er mátuð = 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, prjónið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, prjónið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti (= 8 lykkjur fleiri), snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið kant að framan eins og áður. Hálsmálið hefur nú verið formað til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar = 126-126-134-142-142-150-150 lykkjur. Prjónið síðan berustykkið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir laskalínu eins og áður. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið leiðbeiningar að ofan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-10-8-12-16-13-17 sinnum (= 14-20-16-24-32-26-34 umferðir prjónaðar) = 182-206-198-238-270-254-286 lykkjur. Prjónið og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-5-7-5-4-7-6 sinnum (= 24-20-28-20-16-28-24 umferðir prjónaðar = 6-5-7-5-4-7-6 sinnum útaukning á ermum og 12-10-14-10-8-14-12 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 254-266-282-298-318-338-358 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, það hefur verið aukið út 16-18-18-20-23-23-26 sinnum á ermum og 22-23-25-25-27-30-32 sinnum á framstykkjum/bakstykki. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-46-49-51-54-58-62 lykkjur eins og áður (= framstykki, setjið næstu 46-48-50-54-58-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 74-78-84-88-94-102-110 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-48-50-54-58-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-46-49-51-54-58-62 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-190-206-218-234-254-274 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-46-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 26-30-30-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 204-220-236-252-272-296-316 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 45-47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-50-54-58-60-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-58-62-68-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-2-2-2-0 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig. Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-0 cm alls 2-2-2-2-1-1-0 sinnum = 50-54-58-64-72-76-82 lykkjur. ATH: Lykkjum er ekki fækkað í stærð XXXL. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-15-14-15-13-10-9 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-10-10-12-12-16-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = = 56-64-68-76-84-92-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 18-18-17-18-17-14-13 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #emerystonecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.