Unicorn Speckles#unicornspecklessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Fiesta og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl. Stærð XS - XXL.
DROPS 264-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 22-22-24-26-26-26 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Fiesta og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-11-12-12-13-15 sinnum (= 20-22-24-24-26-30 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 8-9-9-9-10-10 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú eru lykkjur auknar út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-12-12-13-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju, prjónið upp innan við 1 lykkju, þannig að útaukningslykkjan í hvorri hlið verði ekki sýnileg = 20-22-24-24-26-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9-9-9-10-10-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum = (8-8-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 24-26-28-28-30-34 lykkjur (næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju, prjónið upp innan við 1 lykkju, þannig að útaukningslykkjan í hverri hlið verði ekki sýnileg = 20-22-24-24-26-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9-9-9-10-10-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8-8-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 24-26-28-28-30-34 lykkjur (= næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 24-26-28-28-30-34 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-14-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 24-26-28-28-30-34 lykkjur frá vinstra framstykki = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 20-21-23-23-24-26 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 4-4-4-6-6-6 umferðir prjónaðar) = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-28-30 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undi ermi) = 136-144-156-164-180-196 lykkjur í umferð. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 29-30-31-31-32-33 cm, mælt frá handvegi. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), jafnframt sem í fyrstu umferð er aukið út um 32-32-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 168-176-188-200-220-240 lykkjur. Prjónið stroff í 4-4-4-5-5-5 cm, fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 3 til 5 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 5 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 42-44-48-50-58-60 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 8-8-6-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 8-8-6-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Í stærð XS og S hafa stuttar umferðir verið prjónaðar til loka. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4 alls 4 0-0-2-2-4-4 sinnum til viðbótar. Snúið hefur verið við alls 4-4-6-6-8-8 sinnum (= 2-2-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm, mælt fyrir miðju undir ermi, fækkið um 2 lykkjur 0-0-0-0-2-2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 0-0-4-4-5-5 cm alls 0-0-1-1-2-2 sinnum = 42-44-46-48-52-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-42-41-40-39-37 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-8-10-8-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 48-48-47-47-46-44 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5 og 3 þræði. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp 84 til 92 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #unicornspecklessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.