Rain Trail Cardigan#raintrailcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, köðlum, háum kraga og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-8 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á framstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni og mynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. það á að vera 7-7-8-9-10-11-9 lykkjur í sléttprjóni á milli kaðla fram að laskalykkjum á framstykkjum (1 kaðall = A.1 = 4 lykkjur). Á bakstykki og ermum eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð sem auka á út yfir (t.d. 40 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 2,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 2 cm frá uppfitjunarkanti, fellt er af fyrir næsta hnappagati í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-9-9-7½-8 cm milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns/mynsturs og stroffs á fram- og bakstykki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Það eru prjónaðir kaðlar á framstykkjum, fyrir miðju ofan á ermum og meðfram hverri laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-136-152-152-152-168-168 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff og MYNSTUR í kanti í hálsmáli – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-14-14-14-18-18 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 30-30-38-38-38-46-46 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur, A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-10-14-14-14-18-18 lykkjur, A.1, endið með 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið síðan áfram að prjóna stroff og mynstur svona – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Þegar kantur í hálsmáli mælist 8-9-9-10-10-11-11 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, er fækkað um 0-0-1-0-1-0-0 lykkju á hvoru framstykki (fækkið lykkjum með því að prjóna 12. og 13. lykkju frá kanti slétt saman – frá röngu) = 136-136-150-152-150-168-168 lykkjur. Kantur í hálsmáli hefur nú verið prjónaður til loka. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hlið á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 8 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett hvoru megin við 4 lykkjur (= A.1), þessar 4 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 21-21-24-25-24-29-29 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 30-30-38-38-38-46-46 lykkjur (= bakstykki), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= A.1 = laskalykkjur), setjið 8. merki á undan næstu lykkju. Nú eru 21-21-24-25-24-29-29 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón, kanta að framan og MYNSTUR fram og til baka eins og útskýrt er að neðan og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – sjá útskýringu að ofan með leiðbeiningum með hvernig auka á út og hvernig á að prjóna mynstur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1, prjónið A.2, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.1 – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 2-2-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur slétt), prjónið A.1, prjónið 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 2-2-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur slétt), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1, prjónið 30-30-38-38-38-46-46 lykkjur slétt (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1, prjónið 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 2-2-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur slétt), prjónið A.1, prjónið 10-10-10-10-10-10-10 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 2-2-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur slétt), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1, prjónið A.3, prjónið A.1 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 136-136-150-152-150-176-176 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1, haldið áfram með A.2 (útauknar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu – eftir því sem lykkjur eru auknar út eiga að vera 7-7-8-9-10-11-9 lykkjur í sléttprjóni á milli hverra eininga með A.1 fram að laskalykkjum á framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1, haldið áfram með sléttar lykkjur, A.1 og sléttar lykkjur yfir ermi eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1, prjónið sléttar lykkjur yfir bakstykki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1, haldið áfram með sléttar lykkjur, A.1 og sléttar lykkjur yfir ermi eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1, haldið áfram með A.3 (útauknar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu – eftir því sem lykkjur eru auknar út eiga að vera 7-7-8-9-10-11-9 lykkjur sléttprjón á milli hverra eininga með A.1 frá laskalykkjum á framstykki og fram að A.1 innan við kant að framan), prjónið A.1 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður (= 8 lykkjur fleiri) = 144-144-158-160-158-184-184 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 6-2-5-10-9-6-3 sinnum til viðbótar, þ.e.a.s. aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 8-4-7-12-11-8-5 sinnum (= 16-8-14-24-22-16-10 umferðir prjónaðar) = 192-160-198-240-230-232-208 lykkjur. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, kant að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður (uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og áður). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, kant að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 5. merki og á eftir 4. og 8. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður (uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og áður). Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 11-13-12-11-14-15-19 sinnum (= 44-52-48-44-56-60-76 umferðir prjónaðar = 11-13-12-11-14-15-19 sinnum fleiri á ermum og 22-26-24-22-28-30-38 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki). Öll útaukning fyrir laskalínu á nú að vera lokið, aukið hefur verið út 19-17-19-23-25-23-24 sinnum á ermum og 30-30-31-34-39-38-43 sinnum á framstykkjum/bakstykki = 324-316-342-372-398-412-436 lykkjur. Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-21-23-24-28-27-31 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 55-55-59-63-67-71-76 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-54-58-66-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-18-18-18-22-26-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 98-98-108-114-124-130-140 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 58-54-58-66-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-18-18-18-22-26-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 55-55-59-63-67-71-76 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 228-244-262-276-302-324-348 lykkjur. Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður, þ.e.a.s. A.1 heldur áfram eins og áður á framstykkjum og meðfram 4 laskalínum – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 39-41-43-44-46-46-48 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan), prjónið og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 40-40-44-48-52-56-61 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 14-14-18-18-22-22-25 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 54-54-62-66-74-78-86 lykkjur stroffprjón), prjónið A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-18-18-18-22-26-28 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 4-4-4-4-4-8-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 14-22-22-22-26-34-34 lykkjur stroffprjón), prjónið A.1 prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 90-90-100-106-116-122-132 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 28-28-34-36-42-44-50 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 118-118-134-142-158-166-182 lykkjur), prjónið A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 10-18-18-18-22-26-28 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 4-4-4-4-4-8-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 14-22-22-22-26-34-34 lykkjur stroffprjón), prjónið A.1, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 40-40-44-48-52-56-61 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 14-14-18-18-22-22-25 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 54-54-62-66-74-78-86 lykkjur), endið með A.1 og kant að framan eins og áður = 292-308-340-356-396-428-460 lykkjur í umferð (= 64-64-78-80-94-104-112 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 og stroffprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Prjónið svona fram og til baka. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-10-10 cm fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-55-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-54-58-66-70-70-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-18-18-18-22-26-28 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-72-76-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-18-18-18-22-26-28 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 fyrir miðju ofan á ermi – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig. Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 0-0-1-3-4-5-5 sinnum = 64-68-70-74-78-80-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-38-35-34-31-30-27 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-22-20-24-24-22-26 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 82-90-90-98-102-102-110 lykkjur – lykkjum er ekki aukið út yfir A.1 og útaukningu er stillt af þannig að stroffið gangi rétt upp með 2 lykkjur brugðið hvoru megin við A.1 (þ.e.a.s. A.1 heldur áfram í stroffprjóni). Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-10-10 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-46-43-43-40-40-37 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raintrailcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.