Mary skrifaði:
There are 84 stitches for the neck and when you insert the markers as follows 1 in the first stitch, count 13 stitches (= sleeve), Insert marker-2 in the next stitch, count 23-25-27-29-29-31-33 stitches (= front piece), Insert marker-3 in the next stitch, count 13 stitches (= sleeve), Insert marker-4 in the next stitch, there are 23-25-27-29-29-31-33 stitches left after the last marker (= back piece). Stitch count is 80 with 4 left over. Is this an error as I’m do the age 5-6.
23.10.2026 - 22:49DROPS Design svaraði:
Dear Mary, are you taking into account the stitches where you inserted the markers? You insert the 4 markers in 4 stitches in total, so you have: 1st stitch with marker (= 1) + 13 sleeve stitches + 2nd stitch with marker (= 1) + 27 front piece stitches + 3rd stitch with marker (= 1) + 13 sleeve stitches + 4th stitch with marker (= 1) + 27 back piece stitches = 80+4 = 84 stitches. Happy knitting!
25.10.2026 - 20:14
Gertraud skrifaði:
Hallo, ich stricke Größe 9-10 Jahre und hab 88 Maschen angeschlagen und das Bündchen gemacht, aber beim Aufteilen muss euch ein Fehler passiert sein oder? 2x 29 für Vorder - und Rückenteil, und 2x 13 für die Ärmel sind 84 und nicht 88.
04.08.2026 - 13:47DROPS Design svaraði:
Liebe Gertraud, Sie müssen die markierten Raglanmaschen noch hinzurechnen, das sind die fehlenden 4 Maschen, dann kommen Sie auf die genannten 88 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
04.08.2026 - 23:11
Hanne Vilgren skrifaði:
Vejledningen ved deling af arbejdet i for og bagstykke samt ærmer er helt misvisende. Det anvises IKKE HVOR omgangen skal påbegyndes. - jeg måtte selv tælle frem fra raglan til raglan af ærmedelen, for at få noget til at passe. - ærgerligt fordi jeg måtte trevle en del op efter først at have fulgt anvisningen i opskriften
31.03.2026 - 23:44
Heidi Andersen skrifaði:
Hei, skal merket foran (som arbeidet skal måles fra) settes på første omgang av vrangborden, eller etter at vrangborden er ferdig?
10.10.2025 - 13:57DROPS Design svaraði:
Hei Heidi. Merket settes etter att vrangborden er ferdig. Mvh DROPS Design
10.10.2025 - 14:23
Gentle Day Sweater#gentledaysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 49-7 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 134 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-88-92-96 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 26-27-28-29-29-30-31 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju frá stroffi, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 23-25-27-29-29-31-33 (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 23-25-27-29-29-31-33 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-18-19-20-21-22-23 sinnum = 212-224-236-248-256-268-280 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18-19 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkinu er skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2-2-2-2-3-3-3 lykkjur sléttprjón (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 45-47-49-51-51-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 61-65-69-73-77-81-85 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-51-51-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 59-63-67-71-74-78-82 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 134-142-150-158-170-178-186 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27-30-34-38-41-43-45 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-30-32-34-32-34-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 162-172-182-192-202-212-222 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 30-33-37-41-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-47-49-51-51-53-55 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 51-53-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-4-5-6-6½-7-8 cm alls 6 sinnum = 39-41-43-45-47-49-51 lykkjur. Prjónið síðan þar ermin mælist 20-24-28-33-37-40-44 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 46-48-50-52-54-56-58 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-27-31-36-41-44-48 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gentledaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.