KVACICA skrifaði:
Bonjour. Je constate que beaucoup de modèles comme celui-ci n’ont pas de rehausse de col . Est-ce que c’est normal car de ce fait, le pull n’a ni devant ni derrière ! Je vous remercie de bien vouloir me répondre. Bien cordialement
18.02.2026 - 14:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Kvacica, c'est exact, nombreux modèles de ce type n'ont pas d'encolure devant/dos, toutefois, libre à vous d'en ajouter une si vous le souhaitez, cette vidéo pourra vous inspirer. Bon tricot!
19.02.2026 - 08:29
Cindy McCabe skrifaði:
It says to cast on 80 stitches for the 3-4 year old size. Is that going to fit over the head?
21.01.2026 - 17:11DROPS Design svaraði:
Hi Cindy, As long as you don't cast on too tightly, the neck will fit over the child's head. Or you can cast on more stitches for a wider neck-edge if you wish. Regards, Drops Team.
22.01.2026 - 07:21
Easy Chill Sweater#easychillsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og sléttprjóni. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 49-9 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-84-88-88-92-96 lykkjur á hringprjón eða sokkaprjóna 3 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 27-27-28-29-29-31-32 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 16-20-20-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-100-104-108-112-116-120 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni og aukið út eins og útskýrt er að neðan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3-3 cm frá merki er aukið út um 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju umferðina hringinn = 120-125-130-135-140-145-150 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-5-5½-5½ cm frá merki er aukið út um 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju umferðina hringinn = 144-150-156-162-168-174-180 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-8 cm frá merki er aukið út um 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju umferðina hringinn = 168-175-182-189-196-203-210 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-9-10½-10½ cm frá merki er aukið út um 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 7. hverja lykkju umferðina hringinn = 192-200-208-216-224-232-240 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-11-13-13 cm frá merki er aukið út um 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur jafnt yfir, þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju umferðina hringinn = 216-225-234-243-252-261-270 lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 0-1-0-1-0-1-0 lykkjur = 216-226-234-244-252-262-270 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 13-14-15-16-17-18-18 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem í næstu umferð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-48-48-50-51-52-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 62-65-69-72-75-79-82 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-48-50-51-52-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 62-65-69-72-75-79-82 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-142-154-160-166-178-184 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-6-8-8-8-10-10 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 26-29-33-37-40-42-43 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 24-30-30-32-34-34-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 160-172-184-192-200-212-220 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-32-36-40-44-46-47 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-48-50-51-52-53 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 52-54-56-58-59-62-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-4-5-5½-7½-7-10 cm alls 6-6-6-6-5-6-5 sinnum = 40-42-44-46-49-50-53 lykkjur. Prjónið síðan þar ermin mælist 20-25-29-32-35-39-44 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-8-6-7-10-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 48-48-52-52-56-60-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-28-32-35-39-43-48 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #easychillsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.