Anne skrifaði:
Held på med ermene. Strikkar str L. Henta frå oppskrifta: "Når ermet måler 4-4-4-5-5-5 cm, økes det masker midt under ermet " Er det mål inkl vrangbord eller etter vrangboden?
30.07.2026 - 16:15DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Inkl. vrangborden. Om du ser på målskissen skal vrangborden på ermet måle 4 cm, deretter strikkes det 1 cm (arbeidet måler nå 5 cm). Nå starter økningen og det økes 2 masker 2 ganger pr 2. cm. Deretter strikkes det videre til arbeidet måler 9 cm, før ermetoppen strikkes. Om det skal ha vært målt fra vrangboden, skulle det ha stått i oppskriften (settes et merke, og det måles fra dette merke). mvh DROPS Design
10.08.2026 - 09:35
Anne skrifaði:
Om ein ønsker å plukke opp masker i armholet, hvor mange masker skal ein da plukke opp? Liker best å plukke opp i staten for å sy i til slutt. Tenker da å felle i staden for å øke fram til vrangborden.
29.06.2026 - 22:38DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Det kommer an på hvilken str. man strikker, men Design avd. har dessverre ikke mulighet til å tilpasse hver enkelt oppskrift / og størrelse etter ønsker. Men prøv å plukke opp 1 maske på hver pinne i høyden evnt. hopp over hver 4. - 5. pinne. mvh DROPS Design
30.06.2026 - 10:48
Helen skrifaði:
Thank you! x
27.06.2026 - 06:48
Kerstin skrifaði:
Warum wird die Mengenangaben Größe Schnittmuster Modell bei der Wolle nicht mehr angezeigt ?
17.06.2026 - 07:53DROPS Design svaraði:
Liebe Kerstin, Größe, Garn, Garnmenge, Nadelgröße und Maschenprobe finden Sie oben der Seite, unter Tab "Anleitung", wählen Sie Ihre Größe um sie zu markieren. Viel Spaß beim Stricken!
18.06.2026 - 08:09
Darlene skrifaði:
When it says you need 200 gms for size XXL does that mean of each strand for a combined total of 400 gms or is that for the total strands
30.04.2026 - 00:12DROPS Design svaraði:
Dear Darlene, you need only 200 g DROPS Kid-Silk (-= 8 balls) for XXL and you will work with 2 strands together. You don't have to double the amount of yarn so you don't need 400 g. Happy knitting!
30.04.2026 - 09:12
Chantal skrifaði:
Bonjour J'adore ce modèle et le coloris, mais je n'ai jamais utilisé d'aiguilles circulaires. Puis je tricoter ce modèle avec des aiguilles droites ? quel sera alors le nombre de mailles à monter et mes diminutions épaules, col seront elles les mêmes ? merci de vos précieux conseils. Bonne journée à tous Bien cordialement Une passionnée de tricot mais qui a encore besoin de conseils !!
07.04.2026 - 08:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Chantal, vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites; pour le col, faites d'abord la couture de l'une des épaules, tricotez le col et terminer par la couture du col et de la 2ème épaule. Bon tricot!
08.04.2026 - 13:36
Gosia skrifaði:
Cześć, odnośnie główki rękawa - zamykanie oczek tak naprawdę to np. dla roz. S : 4 razy 2 oczka, 10 razy 1 oczko, 4 razy 2 oczka i 2 razy 3 oczka (razem 32 oczka). Dla mnie opis nie był oczywisty i dopiero za drugim podejściem rękaw wyszedł tak jak powinien. Może komuś pomoże mój komentarz. Pozdrawiam :)
14.02.2026 - 13:20
Birgitta Bergqvist skrifaði:
Angående halskanten. På mönstret står att man ska sticka 4 varv rätstickning med rundsticka. Då man förstorar bilden ser de ut som rät och aviga varv. Men om man stickar med rundsticka blir ju alla varv räta?
02.02.2026 - 18:34DROPS Design svaraði:
Hej Birgitta, det skal vi få rettet på den svenske - tak for info :)
05.02.2026 - 12:16
Renata skrifaði:
Zrobiłam rękaw i nie pasuje główka do podkroju . Jest za mała w stosunku do obwodu podkroju w swetrze. Jak zrobiç główkę rękawa.
03.01.2026 - 22:50DROPS Design svaraði:
Witaj Renato, sprułabym główkę rękawa i wykonała ją jeszcze raz, zamykając oczka rzadziej niż w opisie, np. 2 razy na początku każdego rzędu, 1 raz co 2 rzędy, itd. Wtedy otrzymasz dłuższą główkę, która powinna pasować do podkroju. Musisz popróbować z jaką częstotliwością zamykać te oczka, trudno mi powiedzieć nie znając parametrów Twojej próbki. Na pewno da się to poprawić. W razie dodatkowych pytań pisz. Pozdrawiam!
04.01.2026 - 10:53
Debora skrifaði:
Buongiorno, come posso fare per la manica lunga?
22.12.2025 - 15:12DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
22.12.2025 - 23:33
Violet Reverie#violetreveriesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með stuttum ísaumuðum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-3 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 164 lykkjur) og deilið þessum lykkjum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 10,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 9. og 10. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í kringum hálsmál í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 166-184-198-214-232-246 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið hringinn í sléttprjóni, jafnframt sem í umferð 1 er fækkað um 18-20-22-22-24-26 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 148-164-176-192-208-220 lykkjur. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar og einn merkiþráð eftir 74-82-88-96-104-110 lykkjur (= hliðar), látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skipist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Fellið af fyrstu 3-3-3-3-3-3 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 68-76-82-90-98-104 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 6-6-6-6-6-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 68-76-82-90-98-104 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3-3-3-3-3-3 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 68-76-82-90-98-104 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni eins og áður og fellið af lykkjur fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 2-3-6-4-5-4 sinnum í hvorri hlið = 60-62-62-64-66-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 22-24-24-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 18-18-18-18-18-20 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. FRAMSTYKKI: = 68-76-82-90-98-104 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni eins og áður og fellið af lykkjur fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 2-3-6-4-5-4 sinnum í hvorri hlið = 60-62-62-64-66-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-49-50-51-52 cm, fellið af miðju 16-18-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2-3-3-3 sinnum = 18-18-18-18-18-20 lykkjur á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 52-56-62-68-74-82 lykkjur á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið umferð 1 slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 6-6-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 46-50-54-60-66-72 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er aukið út undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út lykkju fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 1½-2-2-2-2-1 cm alls 4-3-3-2-2-1 sinnum = 54-56-60-64-70-74 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 10-10-10-9-8-7 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur fyrir miðju undir ermi, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá þá byrjar affellingin 3 lykkjum á undan merkiþræði fyrir miðju undir ermi, fellið af og prjónið síðan eins og áður út umferðina. Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka í sléttprjóni JAFNFRAMT sem lykkjur eru felldar af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af í byrjun hverrar umferðar þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 4-5-7-5-7-8 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinnum í hvorri hlið = 18-18-18-18-20-22 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 19-20-21-21-22-22 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og 2 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 60-64-66-72-82-84 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði fyrir miðju að framan). Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af aðeins laust. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #violetreveriesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.