Eugenia skrifaði:
Grazie mille buona serata
17.04.2025 - 18:19
Eugenia skrifaði:
Buongiorno vorrei un parere posso fare questo modello col cotone e se e si mi cambiano le misure cordiali saluti Eugenia
16.04.2025 - 13:26DROPS Design svaraði:
Buonasera Eugenia, potrebbe lavorare con 2 capi del filato Safran o 1 capo del filato Paris. Buon lavoro!
16.04.2025 - 22:42
Agnieszka skrifaði:
Niestety nie widzę schematu do wzoru, czy załączą go Państwo?
01.03.2025 - 12:45DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, schemat A.1 znajduje się na dole wzoru, po prawej stronie schematycznego rysunku swetra. Pozdrawiamy!
03.03.2025 - 11:15
Ulla Worsøe skrifaði:
Diagrammet mangler. Kun symbolforklaringen er kommet med.
27.02.2025 - 17:23DROPS Design svaraði:
Hej Ulla. Du hittar diagrammet lite längre ned, till höger om måttskissen. Mvh DROPS Design
28.02.2025 - 07:58
Lavender Oasis#lavenderoasissweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri í röndum og rúllukanti. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-17 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með því að leggja þráðinn um hægri prjón aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Prjónið ca 6-6-6½-6½-6½-7 cm sléttprjón á milli skipta sem mynstrið er prjónað eins og útskýrt er að neðan. ATH: Jafnframt sem mynstrið er prjónað eins og útskýrt er að neðan, heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu. UMFERÐ 1: Prjónið laskalykkju slétt (= 1. merki), prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu laskalykkju (= 2. merki), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu laskalykkju (= 3. merki), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu laskalykkju (= 4. merki), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.1 þar til eftir er 1 lykkja í umferð, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 178 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 40) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-112-112-116 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna svo uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 5 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-33-34-38-38-39 lykkjur í umferð (= ca miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 31-33-35-35-35-37 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 31-33-35-35-35-37 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= bakstykki). UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Nú er prjónað sléttprjón og aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 6-6-6½-6½-6½-7 cm sléttprjón frá merki fyrir miðju að framan, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. LASKALÍNA: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón (og e.t.v. mynstur) og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur með merki í (= 8 lykkjur fleiri) – ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-11-9-11-12-16 sinnum (= 20-22-18-22-24-32 umferðir prjónaðar) = 176-188-176-200-208-244 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón (og e.t.v. mynstur) og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur með merki í (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón (og e.t.v. mynstur) og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki (= 4 lykkjur). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-6-8-7-8-7 sinnum (= 24-24-32-28-32-28 umferðir prjónaðar = 6-6-8-7-8-7 sinnum útaukning á ermum og 12-12-16-14-16-14 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 248-260-272-284-304-328 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út alls 16-17-17-18-20-23 sinnum á ermum, 22-23-25-25-28-30 sinnum á framstykki/bakstykki og stykkið mælist ca 20-21-23-23-25-27 cm frá merki fyrir miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón og mynstur framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-27 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3-3-3-4-4-6 lykkjur eins og áður (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 43-45-45-49-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 81-85-91-93-99-109 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-45-45-49-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 78-82-88-89-95-103 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-190-206-218-234-258 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-10-12-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, en þegar mynstrið er prjónað, prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur í umferð. ATH: Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 rendur með mynstri, prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 48-51-52-53-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 40-46-50-50-56-58 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 218-236-256-268-290-316 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 52-55-57-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 57-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 43-45-45-49-53-55 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 51-55-57-65-71-75 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður hringinn – passið uppá að prjónaðar séu jafnmargar umferðir í sléttprjóni á milli hverra skipta sem A.1 er prjónað eins og á berustykki/fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skipting, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½ cm alls 3-4-4-7-9-10 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-37-38-36-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 44-44-42-43-42-40 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderoasissweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.