Julie skrifaði:
Jeg forstår ikke helt hvordan man skal strikke diagrammet A1 samtidig som man øker til raglan. Hvordan strikker man raglanøkningene? Blir forvirra av at det står strikk 1 maske rett før raglan og raglanmaska rett. Strikker man da to sammen, kast, 1 maske rett, kast, raglan? Hva gjør man etter raglanmaska og kast? Kan du skrive hva man skal gjøre maskene før og etter raglanmaskene når man øker og strikker A1?
05.04.2025 - 02:23
Lavender Oasis Cardigan#lavenderoasiscardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri í röndum, rúllukanti og i-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-18 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10½-10½-11-9-9-9½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í línunni með síðustu rönd í mynstri. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með því að leggja þráðinn um hægri prjón aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Prjónið ca 6-6-6½-6½-6½-7 cm sléttprjón á milli skipta sem mynstrið er prjónað eins og útskýrt er að neðan (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) – stillið af að fyrsta umferð í A.1 sé prjónuð frá réttu og að mynstrið sé alltaf prjónað í umferð þar sem lykkjufjöldinn á framstykkjum sé með oddatölu á milli kanta að framan og laskalykkju (á við þegar mynstrið er prjónað á berustykki, á fram- og bakstykki og ermar er mynstrið prjónað eins og útskýrt er að neðan FRAM- OG BAKSTYKKI og ERMAR). ATH: Jafnframt sem mynstrið er prjónað eins og útskýrt er að neðan, heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu. PRJÓNIÐ ÞANNIG (lykkjufjöldinn á framstykkjum er með oddatölu á milli kanta að framan og laskalykkju): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan laskalykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið laskalykkju slétt, * prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu laskalykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið laskalykkju slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan kanti að framan, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 191 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d.14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 109-113-117-125-125-129 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 1 sinni til viðbótar (= 5 umferðir sléttprjón). Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til eftir eru 8 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til eftir eru 8 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið og kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til eftir eru 8 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Síðan er prjóna sléttprjón (brugðið frá röngu / slétt frá réttu) og kant að framan eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 merki innan við kant að framan í aðra hliðina á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 22-23-24-24-24-25 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 31-33-35-35-35-37 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 22-23-24-24-24-25 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Nú er prjónað sléttprjón með kanta að framan eins og áður og aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið eins og útskýrt er að neðan. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið leiðbeiningar að ofan. JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 6-6-6½-6½-6½-7 cm sléttprjón frá merki fyrir miðju að framan, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón (og e.t.v. mynstur) og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-11-9-11-12-16 sinnum (= 20-22-18-22-24-32 umferðir prjónaðar) = 189-201-189-213-221-257 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón (og e.t.v. mynstur) og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón (og e.t.v. mynstur) og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-6-8-7-8-7 sinnum (= 24-24-32-28-32-28 umferðir prjónaðar = 6-6-8-7-8-7 sinnum útaukning á ermum og 12-12-16-14-16-14 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 261-273-285-297-317-341 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út alls 16-17-17-18-20-23 sinnum á ermum, 22-23-25-25-28-30 sinnum á framstykkjum/bakstykki og stykkið mælist ca 20-21-23-23-25-27 cm frá merki fyrir miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-27 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-49-52-53-56-61 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-45-45-49-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 81-85-91-93-99-109 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 43-45-45-49-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 47-49-52-53-56-61 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 191-203-219-231-247-271 lykkjur. Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður, en þegar prjóna á mynstrið þá er það prjónað frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan kanti að framan, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. ATH: Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 rendur, prjónið sléttprjón og kanta að framan að réttu máli. Prjónið þar til stykkið mælist ca 48-51-52-53-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 42-46-48-52-56-62 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 233-249-267-283-303-333 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 52-55-57-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 57-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 43-45-45-49-53-55 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 51-55-57-65-71-75 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður hringinn – passið uppá að prjónaðar séu jafnmargar umferðir í sléttprjóni á milli hverra skipta sem A.1 er prjónað eins og á berustykki/fram- og bakstykki og síðasta lykkjan í umferð sem ekki gengur jafnt upp í mynstur er prjónuð slétt. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skipting, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1½ cm alls 3-4-4-7-9-10 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-37-38-36-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 44-44-42-43-42-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderoasiscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.