Beatrix skrifaði:
Thanks for such a quick response. I understand it now.
07.06.2025 - 02:58
Beatrix skrifaði:
Hi, I have knitted the neck and am up to the yoke. I am knitting the large size and have 130 stitches on the needle. Now I'm upto "* 2 stockinette stitches, work A.1, 1 stockinette stitch *". Which should bring me to 182 stitches. I have used a chart and that just brings me to 163 stitches. I hope you can help me.
06.06.2025 - 09:40DROPS Design svaraði:
Dear Beatrix, note that you should increase 2 sts in each A.1 so that you will get: *2 sts stocking stitch, (A.1 = 2 sts increased to 4 sts), 1 st in stocking st*, repeat from *-* a total of 26 times n the round = you increase 2 sts x 26 = 52 sts + the 130 sts on needle = ther are now 182 sts. Happy knitting!
06.06.2025 - 13:01
Judith skrifaði:
Gibt es ein Tutorial für die Muster bzw, die Zunahmen? Ich finde das schwierig zu verstehen.
06.05.2025 - 00:02
Émilie skrifaði:
Bonjour je ne vois pas le diagramme merci d avance
10.03.2025 - 00:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Émilie, vous trouverez les diagrammes A.1 et A.2 à droite du schéma des mesures, sous la manche. Bon tricot!
10.03.2025 - 10:02
Whispering Sands#whisperingsandssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-32 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3½-3½-4-4 cm. Í næstu umferð er aukið út um 22-24-25-26-27-28 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri brugðinni einingu = 110-120-125-130-135-140 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo ekki myndist gat. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4½-4½-5-5 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 44-48-50-52-54-56 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 0-0-5-0-5-10 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 110-120-130-130-140-150 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá merki, lykkjur eru auknar út með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: * 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 154-168-182-182-196-210 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 198-216-234-234-252-270 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 12-13-13-15-15-16 cm frá merki. FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Prjónið síðan eftir mismunandi stærðum að neðan. STÆRÐ S, M og L: Prjónið * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 220-240-260 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið * 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 286-308-330 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 16-18-18-20-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4-4-4-5-5-5 lykkjur sléttprjón, A.2, 4-4-4-4-4-4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 242-264-286-312-336-360 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 18-20-20-22-22-24 cm frá merki er aukið út um 2-0-0-0-0-4 lykkjur jafnt yfir = 244-264-286-312-336-364 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-48-55-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 76-84-88-96-106-116 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-55-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 76-84-88-96-106-116 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-196-212-236-256 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 42-44-45-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 48-52-60-60-68-76 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 216-236-256-272-304-332 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið aðeins laust af. Peysan mælist 9-51-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-55-60-62-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-56-65-70-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-4-4-3-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 7-6½-3½-3-2½-2½ cm alls 5-5-9-10-11-12 sinnum = 44-46-47-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-34-36-34-33-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-14-13-14-16-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 56-60-60-64-68-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 44-41-43-42-41-39 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whisperingsandssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.