Anne Marshall skrifaði:
People are selling your patterns complete with your photography etc on Etsy! But hiding reference to drops design AND the suggested yarn. Put a ‘not for resale’ on at least the new patterns? A watermark?
27.09.2026 - 15:08
Greet Luijmes skrifaði:
Kun je dit patroon ook van beneden naar boven breien.
16.08.2026 - 09:29
Anje skrifaði:
Bij de pas staat dat er verdeeld gemeerderd moet worden. Ik begrijp niet helemaal waar in het proces ik meerderen 1 of meerderen 2 moet gebruiken. Als ik de beschrijving lees gaat het steeds over verdeeld meerderen= dus 1. Waar gebruik ik dan meerderen 2
28.07.2026 - 14:59DROPS Design svaraði:
Dag Anje,
Tip 1 legt uit hoe je uitrekent waar op de naald je moet meerderen. Tip 2 legt uit hoe je de steken precies breit op het moment dat je een meerdering maakt.
29.07.2026 - 21:00
Ingela skrifaði:
Varför ska man göra ökningar samtidigt som man börjar med resåren, funkar det inte om man gör ökningar på sista varvet innan man börjar med resåren, vad är vitsen, har det någon betydelse?
18.07.2026 - 18:07DROPS Design svaraði:
Hei Ingela. Om du ønsker å øke på sista varvet innan man börjar med resåren, kan du fint gjøre det. I oppskriften er det valgt å gjøre det når resåren starter da overgangen med økning og resår får en penere overgang. mvh DROPS Design
04.08.2026 - 07:44
Doris Fimmers skrifaði:
Ich würde gerne diesen Pullover Dewy Dream stricken. Kann ich mir die Anleitung ausdrucken?
06.07.2026 - 21:31DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fimmers, um die Anleitung zu drucken, klicken Sie auf dem "Druck-Knopf" oben rechts der Seite. Viel Spaß beim Stricken!
07.07.2026 - 14:17
Heike skrifaði:
Hallo zusammen, ich denke, dass in der Beschreibung ein Fehler ist. Der Markierer wird direkt nach Aufnahme der Maschen gesetzt. Dann strickt man 3 cm 2 Maschen rechts und 2 Maschen links. Nach 3 cm wird auf glatt rechts gewechselt unter Zunahme von Maschen. Und nun soll man glatt rechts Stricken bis man 3 cm ab Markierer erreicht hat. Diese 3 cm sind aber bereits gestrickt worden. Muss es hier nicht heißen, weitere 3 cm Stricken bzw. Stricken bis 6 cm ab Markierer erreicht sind ?
28.06.2026 - 06:29DROPS Design svaraði:
Liebe Heike, nach dem Bündchen der Halsblende wird man eine Markierung einsezten, dann die Arbeit wird von hier gemessen, nicht ab Anschlagskante, so nache der 1. Runde glattrechts mit Zunahmen strickt man 3 cm glattrechts (3. und 4. Größe) ab Markierung, dh 6 cm ab Anschlagskante. Viel Spaß beim Stricken!
29.06.2026 - 11:16
Shannon skrifaði:
Hello, In the graphic it says to knit two together twisted, is this another way of writing knit two together through the back loop?
15.06.2026 - 20:06DROPS Design svaraði:
Dear Shannon, correct, when you knit 2 stitches together twisted, these two stitches should be knitted together into the back loop of both stitches - see also this technique in video, here. Happy knitting!
16.06.2026 - 08:09
Anna skrifaði:
Salve, ho intenzione di realizzare questo modello in BELLE. Purtroppo il colore numero 12 acquistato non corrisponde al ciliegia raffigurato in tabella... direi che piuttosto sia un fucsia... ormai lo tengo, ma per chi volesse comprare questa tonalità in futuro, potreste rettificare le foto? Grazie
26.05.2026 - 16:04DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, purtroppo le colorazioni variano anche a seconda dello schermo: ci sono diversi video anche di combinazioni di filati in cui può vedere i colori. In alternativa può consultare il suo rivenditore DROPS di fiducia e chiedere delle foto più accurate. Buon lavoro!
26.05.2026 - 22:31
ELISABETH skrifaði:
Bonjour, j'ai lu votre réponse, à une autre Elisabeth 😁, au sujet des 2 techniques d'augmentations. MAIS , j'ai relu les explications, et ne vois pas quand utiliser la 1ère et quand la 2ème. ? Merci
28.02.2026 - 07:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Elisabeth, les augmentations-1 expliquent comment augmenter augmenter à intervalles réguliers (le calcul - que vous pouvez vous épargner en utilisant la calculette, cf la clé à molette en bas à droite de la page) et les augmentations-2 expliquent comment augmenter = comment faire ces augmentations, retrouvez cette technique ici, en vidéo. Bon tricot!
02.03.2026 - 08:17
Marchand skrifaði:
Pourquoi n y a t il plus de compteur pour les augmentations dans les explications?
20.02.2026 - 12:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Marchand, la petite calculatrice est toujours disponible, faites légèrement défiler la page vers le bas, vous la trouverez dans le coin en bas à droite. Bon tricot!
23.02.2026 - 07:20
Dewy Dream#dewydreamsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-26 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 6. Í þessu dæmi er aukið út á eftir 6. hverja lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Þessi samhverfa útaukning gefur 1 nýja lykkju. Fylgið leiðbeiningum 1-4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjóna á með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið inn vinstri prjóni aftan frá í lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og fyrstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þráðinn utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndist 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið niður ysta hluta á lykkju frá vinstri prjóni og prjónið síðan hinn þráðinn á lykkjunni slétt í gegnum fremri lykkjubogann. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-136-140-148 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 43-44-45-49-50-52 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn, jafnframt sem í umferð 1 er aukið út um 20-20-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan = 140-144-152-160-164-172 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til berustykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm frá merki. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 alls 35-36-38-40-42-44 sinnum berustykkið hringinn, JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Ör-1: Aukið út 44-48-56-60-68-72 lykkjur jafnt yfir = 184-192-208-220-232-244 lykkjur. Ör-2: Aukið út 36-40-44-48-56-60 lykkjur jafnt yfir = 220-232-252-268-288-304 lykkjur. Ör-3: Aukið út 32-36-36-44-44-48 lykkjur jafnt yfir = 252-268-288-312-332-352 lykkjur. Ör-4: Aukið út 32-32-32-40-40-44 lykkjur jafnt yfir = 284-300-320-352-372-396 lykkjur. Ör 5: Aukið út 4-6-10-8-12-14 lykkjur jafnt yfir = 288-306-330-360-384-410 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá merki, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 60-62-68-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið næstu 84-91-97-106-116-127 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-62-68-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 84-91-97-106-116-127 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-202-218-240-264-290 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 39-41-43-44-45-47 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 24-30-30-32-36-42 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 208-232-248-272-300-332 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning). Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 42-44-46-48-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-62-68-74-76-78 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-42-43-41-40 cm frá skiptingunni. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2½-5 cm alls 7-7-6-6-4-2 sinnum = 54-58-68-76-84-92 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 17-16-16-14-15-14 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-8-8-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-64-76-84-96-104 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 20-19-19-19-18-17 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dewydreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.