Marie skrifaði:
Ich schon wieder. Ich hänge am Vorderteil bei den Schultern und komme nicht weiter. Bei 64 Maschen und 14 stillgelegten Maschen (= 50 übrig) habe ich 25 Maschen pro Schulter. Jetzt soll ich je Schulter am Anfang der Reihe am Halsausschnitt 1x 2 Maschen abketten und 3x 1 Masche (=5 angenommene Maschen). D.h. 20 Maschen übrig pro Schulter anstelle der angegebenen 15 Maschen. Was mache ich falsch? :)
22.05.2026 - 21:45DROPS Design svaraði:
Liebe Marie, beachten Sie, daß die Armlöcher auch genauso wie beim Rückenteil bearbeitet sollen, so 2 Maschen 1 Mal beidseitig und 1 Masche 4 Mal beidseitig. Viel Spaß beim Stricken!
26.05.2026 - 08:52
Marie skrifaði:
Hey :) Wenn für die Halsblende wieder Maschen aufgenommen werden, warum kettet man die Maschen beim Rückteil ab? Beim Vorderteil werden sie ja auch nur stillgelegt. Hat das einen bestimmten Grund? :) Danke für eure Antwort 😊
18.05.2026 - 21:13DROPS Design svaraði:
Liebe Marie, beim Rückenteil braucht man mehr Stabilität, deshalb werden die Maschen abgekettet, beim Vorderteil wird man die Maschen stilllegen, damit die Arbeit etwas locker wird. Viel Spaß beim Stricken!
19.05.2026 - 11:36
Karina skrifaði:
Varför klippa tråden på bakstycket när man delat på fram och bakstycke?
01.01.2026 - 13:01DROPS Design svaraði:
Hei Karina. Trenger ikke å klippe tråden. Du er på bakstykket og starter nå å strikke fra vrangen. mvh DROPS Design
19.01.2026 - 14:06
Addison skrifaði:
I love this pattern! One question I have is how do I prevent the bottom of the sweater from curling? What did you do for this problem?
17.12.2025 - 06:24DROPS Design svaraði:
Hi Mrs Addison, you can cast on sts on the bottom hem which curls, then cast off them using I-cord edge like in the video HERE. The hem will be very neat and pretty. Happy knitting!
29.01.2026 - 11:57
Maria skrifaði:
I mönstret står det om i-cord avmaskning. På varv 2 står det att man ska lyfta tillbaka de två maskorna från höger sticka på vänster sticka, sticka en maska rät, sticka de 2 nästa maskorna vridna ihop. Ska man lyfta tillbaks de två maskorna hela varvet eller är det bara de två första maskorna på varvet?
25.11.2025 - 10:20DROPS Design svaraði:
Hei Maria. For å få en fin kant på stolpen strikkes det i-cord kant hele veien. Ta en titt på hjelpevideoen: Hur man stickar en i-cord kant, fram och tillbaka, så ser du bedre hva som er tenkt (Klikk på Videor til høyre for / eller under bildet). mvh DROPS Design
01.12.2025 - 10:31
Tuija skrifaði:
Jatkoa edelliseen kysymykseeni teen M koon neuletta.
08.08.2025 - 10:48
Tuija skrifaði:
Pitäisikö lankaa olla enemmän, kun teen pidemmän 60 cm paidan?
08.08.2025 - 10:43DROPS Design svaraði:
Hei, hanki varmuuden vuoksi yksi ylimääräinen kerä/lanka.
08.08.2025 - 16:29
Selma skrifaði:
Welk garen kan ik bij patroon 257-12 het beste combineren met Bomull-lin? Ik wil niet dat het erg uitzakt, zoals bij Bomull-lin solo. En hoeveel heb ik nodig van beide garens voor maat XL?
29.06.2025 - 21:31DROPS Design svaraði:
Dag Selma,
Bij het patroon, onder de materialenlijst staan linkjes naar hoe je een ander garen kunt gebruiken voor hetzelfde patroon en hoe je de hoeveelheid garen berekent.
30.06.2025 - 21:35
Han skrifaði:
Ik heb verkeerd gekeken. Sorry. Ik zie nu dat 58 cm de totale lengte is. Mvg Han
20.05.2025 - 15:18
Han skrifaði:
In het patroon staat dat je de armsgaten voor maat L bij 35 cm moet beginnen. Maar op de tekening is het stuk van beneden naar de armsgaten 58 cm. Wat is juist? Mvg Han
20.05.2025 - 15:10DROPS Design svaraði:
Dag Han,
Op de tekening is het stuk vanaf beneden tot de bovenkant van de schouder 58 cm. Het armsgat begint al eerder.
21.05.2025 - 17:08
Maple Mist Sweater#maplemistsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-12 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUM ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUM ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju á þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. I-CORD AFFELLING: Fitjið upp 2 lykkjur á hægri prjón. Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 2 lykkjur inn á vinstri prjón (þegar prjónað er þá herðið þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast lítinn hólkur /snúra ). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Á EFTIR UMFERÐ 2: Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 2 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð til loka fram og til baka út umferðina. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og neðst á ermu sem felldar eru af með i-cord. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 140-152-164-176-192-208 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón hringinn í 33-34-35-36-37-38 cm. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 6-6-8-10-10-12 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 64-70-74-78-86-92 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 6-6-8-10-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 64-70-74-78-86-92 lykkjur (= bakstykki). Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 64-70-74-78-86-92 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka, umferð 1 er prjónuð frá röngu jafnframt í byrjun hverrar umferðar eru lykkjur felldar af fyrir handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-1-1-1-2 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum í hvorri hlið. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í annarri hverri umferð innan við 3 lykkjur alls 4-6-5-6-7-6 sinnum í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 52-54-54-56-58-60 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fellið af miðju 20-20-22-22-24-24 fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 15-16-15-16-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. FRAMSTYKKI: = 64-70-74-78-86-92 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm. Nú eru miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 15-16-15-16-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 6. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= fyrir miðju undir ermi), merkiþráðurinn er notaður þegar auka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 11-8-7-6-6-6 cm, aukið út lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 10-8-6½-5½-4½-4½ cm alls 4-5-6-7-8-8 sinnum = 52-56-60-64-68-70 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 43-42-42-41-40-39 cm. Nú á að prjóna ermakúpuna eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Í næstu umferð eru felldar af 6-6-8-10-10-12 lykkjur fyrir miðju undir ermi, en til þurfa ekki að klippa þráðinn frá þá byrjar umferðin 3-3-4-5-5-6 lykkjum á undan merkiþræði fyrir miðju undir ermi, fellið af og prjónið síðan eins og áður út umferðina. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka JAFNFRAMT sem fellt er af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 5-6-7-8-10-10 sinnum í hvorri hlið = 22-24-24-24-24-24 lykkjur eftir, síðan eru felldar af 3 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 54-54-55-55-56-56 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru JAFNFRAMT sem allar lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 slétt saman. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg innan við 1 lykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ I-CORD: Notið hringprjón 6 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 60-60-64-64-72-72 lykkjur í kringum hálsmál – ásamt lykkjum af þræði. Prjónið I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan, hringinn. KANTUR Á ERMUM MEÐ I-CORD: Notið hringprjón 6 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp ca 1 lykkju í hverja af lykkjum frá uppfitjunarkanti í kringum ermi (= 44-46-48-50-52-54 lykkjur). Prjónið i-cord affellingu hringinn. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maplemistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.