DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15775.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Azure Bliss Cardigan

Prjónuð overzise / stór peysa úr 5 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, vösum, i-cord og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 259-28

#azureblisscardigan

DROPS Design: Mynstur as-200
Garnflokkur C + C + C + C + C eða F
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-150-150-175-175 gr litur 15, ljós sægrænn
125-125-150-150-175-175 gr litur 26, koboltblár
125-125-150-150-175-175 gr litur 28, kyrrahafsblár
125-125-150-150-175-175 gr litur 33, pistasíuís
125-125-150-150-175-175 gr litur 34, sæt orkidé

Ef óskað er eftir að hafa flíkina í einum lit þá þarf:
525-600-650-700-775-850 grömm

TÖLUR:
DROPS TALA NR 804: 4-4-5-5-5-5 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni með 5 þráðum með prjóna nr 8 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15775.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI (Á UNDAN MERKI):
Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón, prjóna aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI:
Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 130 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 9,8.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar aukið er út fyrir laskalínu í síðasta skipti á berustykki. Fellið síðan af fyrir 3-3-4-4-4-4 næstu hnappagötum með ca 11-11-9-8-8½-8 cm á milli hverra hnappagata.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar að framan, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður jafnframt því sem aukið er út fyrir v-hálsmáli og laskalínu.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Prjónaðir eru tveir lausir vasar sem saumaðir eru niður á framstykkin. Kantar að framan eru saumaðir saman = miðja að aftan, síðan er kantur að framan saumaður meðfram berustykki aftan í hnakka.
Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hverjum lit í DROPS Brushed Alpaca Silk (= 5 þræðir). Prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 3 lykkjur garðaprjón.
Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur að framan mælist ca 16-16-16-19-19-19 cm.
Endið eftir umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið vinstri kant að framan eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hverjum lit í DROPS Brushed Alpaca Silk (= 5 þræðir). Prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 3 lykkjur garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur að framan mælist ca 16-16-16-19-19-19 cm.
Endið eftir umferð frá röngu.

BERUSTYKKI:
Nú eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan.
Byrjið frá réttu og prjónið yfir vinstri kant að framan eins og áður (= 6 lykkjur), fitjið upp 34-34-34-40-40-40 nýjar lykkjur í umferð, prjónið hægri kant að framan eins og áður (= 6 lykkjur). Það eru 46-46-46-52-52-52 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður).
Setjið eitt merki að innanverðu við kantlykkjur að framan í annarri hliðinni, frá þessu merki er berustykkið mælt.

Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli lykkja.
Teljið 8-8-8-8-8-8 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 18-18-18-20-20-20 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 8-8-8-8-8-8 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki).

Nú er prjónað sléttprjón og kanta að framan eins og áður jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL – lestu báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram!

V-HÁLSMÁL:
Í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli.
Aukið út 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við 7 lykkjur í hvorri hlið á stykki.
Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og aukið út þannig:
Aukið út á eftir fyrstu 7 lykkjum í byrjun umferðar þannig: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI.
Aukið út á undan síðustu 7 lykkjum í lok umferðar þannig: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI.
Aukið er út í annarri hverri umferð alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð alls 4-4-4-4-4-4 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 7-7-7-8-8-8 sinnum fyrir v-hálsmáli.

LASKALÍNA:
Aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu á undan og á eftir 2 lykkjur sléttprjón við hvern merkiþráð (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja) í annarri hverri umferð.
Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverjum merkiþræði (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu).
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1
Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 alls 8-9-11-10-13-14 sinnum (16-18-22-20-26-28 umferðir prjónaðar).

Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverjum merkiþræði (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu).
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan 1. merkiþræði, á eftir 2. merkiþræði, á undan 3. merkiþræði og á eftir 4. merkiþræði, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri fyrir laskalínu).
UMFERÐ 4 (= ranga):
Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Endurtakið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-8-8-10-8-8 sinnum (= 16-16-16-20-16-16 umferðir prjónaðar = 4-4-4-5-4-4 sinnum útaukning á ermum og 8-8-8-10-8-8 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki).
Þegar öll útaukning fyrir laskalínu og v-hálsmáli er lokið, hefur verið aukið út 16-17-19-20-21-22 sinnum á framstykkjum/bakstykki, 12-13-15-15-17-18 sinnum á ermum og 7-7-7-8-8-8 sinnum fyrir v-hálsmáli. Það eru 172-180-196-208-220-228 lykkjur í umferð. Nú eru merkiþræðirnir teknir frá og síðan er prjónað eins og áður en án útaukninga, þar til stykkið mælist 23-25-27-29-30-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 28-28-32-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 52-56-60-64-68-72 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 28-28-32-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 32-34-36-38-40-42 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 128-140-148-160-168-180 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan þar til stykkið mælist 49-51-53-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-18-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir í umferð - lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 142-158-166-178-190-206 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist 57-59-61-62-64-66 cm frá merki fyrir miðju að framan ca 60-62-64-66-68-70 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 28-28-32-34-36-36 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 34-36-40-44-46-48 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 0-0-2-2-2-2 cm alls 0-0-1-2-2-2 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-33-32-29-29-28 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-4-2-4-6-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 36-40-40-44-48-48 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 42-41-40-38-38-37 cm frá skiptingunni.

VASAR:
Fitjið upp 16-16-18-18-20-20 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hverjum lit í DROPS Brushed Alpaca Silk (= 5 þræðir) – skiljið eftir ca 30-40 cm þráð í endanum (notað við frágang). Prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga):
Prjónið 1-1-2-2-1-1 lykkjur í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1-1-2-2-1-1 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= rétta):
Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm, endið eftir umferð frá röngu.
Prjónið 4 umferðir slétt (= 4 umferðir garðaprjón) og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – skiljið eftir ca 30-40 cm þráð í enda fyrir frágang.
Prjónið 1 vasa til viðbótar á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið niður 1 vasa á hvort framstykki, vasarnir eiga að sitja ca fyrir miðju á framstykkjum og ca 2 cm ofan við stroff. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = fyrir miðu að aftan, saumið síðan kanta að framan að lykkjum meðfram hálsmáli. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 259-28

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #azureblisscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.