Dominika skrifaði:
Jestem na robieniu tył&przód. Zamknęłam oczka do 144 i zrobił mi się taki dziwny skos, przy którym dzianina się brzydko układa. Czy może być to spowodowane? Zamykałam każde 3 i 4 oczko od początku okrążenia, ale nie przesuwałam markera za każdym razem jak zmniejszałam okrążenie (nie było napisane, że tak trzeba zrobić i jestem początkująca, więc się nie domyśliłam). Czy to może być powód?
26.03.2025 - 21:37DROPS Design svaraði:
Witaj Dominiko, równomiernie zamknąć oczka oznacza, że w tym samym okrążeniu zamykasz oczka w mniej więcej równych odstępach. W Twoim przypadku przerabiasz to okrążenie dżersejem (nie ściągaczem) następująco: 2 oczka prawe, 2 następne oczka przerabiasz razem na prawo i tak do końca okrążenia, z 192 oczek zostanie 144. Jak równomiernie zamykać oczka znajdziesz TUTAJ. Nie rozumiem tylko o co chodzi z tym markerem. Pozdrawiam!
27.03.2025 - 10:15
Pia Jensen skrifaði:
Hvilken størrelse har modellen på?
14.03.2025 - 16:29DROPS Design svaraði:
Hei Pia. Hun har på seg str. M. For å finne den beste passformen til deg, så se på målene som er oppgitt på målskissen til plagget, finn et oversize plagg du allerede har og sammenlign med målene i målskissen, så ser du best hvilken størrelse du bør strikke etter. mvh DROPS Design
17.03.2025 - 12:58
Lena skrifaði:
Dzień dobry, ile powinnam użyć włóczki jeżeli nie chce łączyć ecru z błękitem tylko używać niezależnie dwóch kolorów?
14.03.2025 - 11:20DROPS Design svaraði:
Witaj Leno, należy wziąć 2 razy więcej włóczki w kolorze niebieskim i odpowiednio pomniejszyć ilość włóczki w kolorze ecru (czyli o tyle samo gramów ile dodaliśmy włóczki w kolorze niebieskim). Pozdrawiamy!
14.03.2025 - 13:39
Skyline Serenade#skylineserenadesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð stór / oversize peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum, ísaumuðum ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-9 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 4,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. Síðan er prjónað með 2 þráðum í litnum natur að loka máli. LEIÐBEININGAR RENDUR: Til að fá fallega skiptingu í byrjun og lok umferðar þegar rendur eru prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkja í 2. umferð er prjónuð þannig: Takið upp fyrstu lykkju frá fyrri umferð á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. RENDUR ERMI: 7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. 7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnu kyrrahafsblár. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum natur að loka máli. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan eru ermarnar prjónaðar til loka fram og til baka. Stykkið eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 180-192-208-228-240-260 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár í DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og 2 þræði í litnum natur og prjónið umferð 1 í sléttprjóni jafnframt því sem fækkað er um 44-48-52-60-60-64 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 136-144-156-168-180-196 lykkjur. Lesið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI OG LEIÐBEININGAR RENDUR og prjónið í hring í sléttprjóni þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá uppfitjunarkanti. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki: SKIPTING FYRIR HANDVEG: Prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 2-4-6-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-68-72-76-78-82 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 2-4-6-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-68-72-76-78-82 lykkjur (= bakstykki). Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 66-68-72-76-78-82 lykkjur. Haldið áfram með rendur og sléttprjón fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 22-23-25-26-27-29 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. FRAMSTYKKI: = 66-68-72-76-78-82 lykkjur. Haldið áfram með rendur og sléttprjón fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm frá uppfitjunarkanti, setjið miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 22-23-25-26-27-29 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 44-48-48-52-52-52 lykkjur á sokkaprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 6 og 2 þræði í litnum natur, prjónið umferð 1 slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 10-12-12-14-14-12 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 34-36-36-38-38-40 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er aukið út undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið hringinn í sléttprjóni með röndum – lesið RENDUR ERMI. Þegar ermin mælist 12-12-10-12-10-9 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út lykkju fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 4½-4½-4-3-3-3 cm alls 8-8-9-10-11-11 sinnum = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með röndum þar til ermin mælist 46-46-45-43-42-41 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka í sléttprjóni þar til ermin mælist 47-48-48-47-47-47 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg – ATH – það er klauf fyrir miðju undir ermi og er saumuð við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorum lit (= 2 þræðir), prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 68-68-72-72-76-76 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið niður með nokkrum sporum. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skylineserenadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.