Skyline Serenade Cardigan#skylineserenadecardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð stór / oversize peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum, ísaumuðum ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-10 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 4,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 6½-6½-6½-7-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. Síðan er prjónað með 2 þráðum í litnum natur að loka máli. RENDUR ERMI: 7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár. 7 cm með 2 þráðum í litnum natur. 7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnu kyrrahafsblár. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum natur að loka máli. LEIÐBEININGAR RENDUR: Til að fá fallega skiptingu í byrjun og lok umferðar þegar rendur eru prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkja í 2. umferð er prjónuð þannig: Takið upp fyrstu lykkju frá fyrri umferð á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (framstykki = 5 lykkjur): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan stroff eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið framstykki eins og áður og prjónið uppslátturinn slétt / brugðið, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir 4-5-5-5-5-5 hnappagötum þegar framstykkið mælist 1½ cm, þau eru staðsett með því að mæla frá neðri kanti á peysu: XS: 11, 23, 35 og 47 cm S: 8, 18, 28, 38 og 48 cm M: 9, 19, 29, 39 og 49 cm L: 10, 20, 30, 40 og 50 cm XL: 11, 21, 31, 41 og 51 cm XXL: 12, 22, 32, 42 og 52 cm (= fellið af fyrir síðasta hnappagatinu ca 1 cm neðan við skiptingu á milli framstykkis og hálsmáls, síðar á að taka upp lykkjur fyrir hálsmáli). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan eru ermarnar prjónaðar til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Prjónaður er upp kantur á hvoru framstykki. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 180-192-208-228-240-260 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum kyrrahafsblár í DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 7 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og 2 þræði í litnum natur og prjónið umferð 1 í sléttprjóni jafnframt því sem fækkað er um 44-48-52-60-60-64 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 136-144-156-168-180-196 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni eins og áður í hvorri hlið JAFNFRAMT er prjónað RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 33-34-36-38-39-41 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 2-4-6-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-68-72-76-78-82 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 2-4-6-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 33-34-36-38-39-41 lykkjur (= framstykki). Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 66-68-72-76-78-82 lykkjur. Haldið áfram með rendur og sléttprjón fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 22-23-25-26-27-29 lykkjur á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 33-34-36-38-39-41 lykkjur. Haldið áfram með rendur og sléttprjóni fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (= frá röngu) þannig: Fellið af 6 lykkjur 1 sinni (= ásamt lykkju í garðaprjóni) og 2 lykkjur 2-2-1-1-1-1 sinni. Fellið síðan af 1 lykkju 1-1-3-4-4-4 sinnum = 22-23-25-26-27-29 lykkjur fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, en úrtaka fyrir hálsmáli er gerð í gagnstæðri hlið (= frá réttu). ERMAR: Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 44-48-48-52-52-52 lykkjur á sokkaprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 6 og 2 þræði í litnum natur, prjónið umferð 1 slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 10-12-12-14-14-12 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 34-36-36-38-38-40 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er aukið út undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið hringinn í sléttprjóni með röndum – lesið RENDUR ERMI og LEIÐBEININGAR RENDUR. Þegar ermin mælist 12-12-10-12-10-9 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út lykkju fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 4½-4½-4-3-3-3 cm alls 8-8-9-10-11-11 sinnum = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með röndum þar til ermin mælist 46-46-45-43-42-41 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka í sléttprjóni þar til ermin mælist 47-48-48-47-47-47 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki frá réttu, þ.e.a.s. byrjið beint fyrir neðan kant í hálsmáli og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 76-80-80-80-84-84 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, þessar lykkjur eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið framstykkið á sama hátt meðfram hægra framstykki, en byrjið neðst á framstykki og prjónið upp lykkjur frá réttu upp að kanti í hálsmáli. Þegar framstykkið mælist ca 1½ cm, fellið af fyrir 4-5-5-5-5-5 HNAPPAGAT jafnt yfir – lesið útskýringu að ofan. Síðan heldur framstykkið áfram þar til það mælist eins og vinstra framstykki. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg – ATH – það er klauf fyrir miðju undir ermi og er saumuð við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorum lit (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við miðju að framan yst á framstykki og prjónið upp ca 78-82-82-86-90-90 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (prjónaðar eru upp 6 lykkjur meðfram hvoru framstykki) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 78-82-82-86-90-90 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 5 lykkjur = 68-72-72-76-80-80. Haldið áfram með stroff eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum. Saumið saman op við miðju framan á framstykki með smáu spori. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skylineserenadecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.