Sylvie skrifaði:
À quoi correspond la stature en cm afin de déterminer la taille à choisir pour un pull? Merci!
18.08.2025 - 01:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, la stature en cm permet de determiner la taille à choisir. Pour en savoir plus regardez aussi la lecon DROPS ICI. Bon tricot!
18.08.2025 - 07:51
Eva skrifaði:
Kan opskriften ikke blive udvidet med en beskrivelse af, hvordan der kan strikkes forhøjet nakke? Tak.
27.01.2025 - 21:47DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Ditt ønske er oversendt til design avdeligen, men kan dessverre ikke si om det blir gjort eller når. Men finn en annen lignende barnegenser med fornøyning bak og prøv å tilpasse det som står der til denne genseren. mvh DROPS Design
03.02.2025 - 09:44
Cocoa Comfort#cocoacomfortsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 49-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-88-96-96 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið stroff hringinn þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið þar til stykkið mælist 3-3-3-3-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur í umferð (= ca miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru settir 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur. Setjið 1. merkiþráðinn í byrjun umferðar, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 24-24-28-28-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru eftir 24-24-28-28-32-32 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). – ATH: Umferðin byrjar á milli 2 laskalykkja. Í byrjun umferðar er aukið út á eftir 1 lykkju og í lok umferðar er aukið út þegar eftir er 1 lykkja. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 18-19-20-21-22-23 sinnum (= 36-38-40-42-44-46 umferðir prjónaðar) = 224-232-248-256-272-280 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið á að prjóna 2-3-2-3-3-3 lykkjur slétt (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 48-48-52-52-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-4-6-4-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 64-68-72-76-82-84 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-48-52-52-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-4-6-4-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 62-65-70-73-79-81 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-152-164-172-180 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 4-6-4-6-4-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 26-29-33-37-40-42 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið JAFNFRAMT sem aukið er út um 24-28-32-32-36-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 160-176-184-196-208-216 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-32-36-40-44-46 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 32-35-39-43-47-49 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-48-52-52-54-56 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-4-6-4-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 52-54-56-58-58-62 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-4-6-4-6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 2-2½-2½-3-3½-3½ cm alls 8-8-9-9-10-10 sinnum = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 20-25-28-32-34-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-6-8-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 44-44-44-48-48-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-28-31-35-38-42 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cocoacomfortsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.