Laustriat skrifaði:
Bonjour. Je fais ce charmant en taille 7/8. A la fin du raglan, j'obtiens bien 44 mailles pour le devant mais 58 mailles pour les manches. Est-ce qu'il y a une erreur dans le modèle ? Merci.
04.07.2025 - 06:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Laustriat, en taille 7/8 ans, les 3 premières mailles de la manche gauche vont appartenir au devant gauche, et les 3 dernières mailles de la manche gauche vont appartenir au devant, ainsi, vous aviez 41 m pour le devant (19 +22), vous tricotez 44 m lors de la division, vous mettez en attente pour la manche 54 m (les 60 m (soit 16+(2x22m)), les 3 dernières mailles appartiennent au dos. De même pour la manche droite: vous avez 72 m pour le dos (32+2x22); vous tricotez les 3 dernières m de la manche gauche + les 72 m du dos + les 3 premières m de la manche droite= 78 - et de même pour l'autre manche et le devant droit. Bon tricot!
04.07.2025 - 10:49
Cocoa Comfort Cardigan#cocoacomfortcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og i-cord. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 49-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 5-6-6½-6-6½-7 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja / mitt í þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-94-98-98-110-110 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-3-4-4 cm – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið 1 merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 19-19-19-19-23-23 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 24-24-28-28-32-32 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 19-19-19-19-23-23 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með kant að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri), jafnframt sem í fyrstu umferð er fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í hverri umferð frá réttu alls 18-19-20-22-22-22 sinnum = 238-246-258-274-286-286 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-40-41-44-48-48 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-50-52-54-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-4-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 64-66-72-78-82-82 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-50-52-54-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-4-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 39-40-41-44-48-48 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-154-162-174-186-194 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 26-29-33-37-40-42 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-28-32-36-32-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 178-182-194-210-218-230 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-32-36-40-44-46 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 32-35-39-43-47-49 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-50-52-54-54-54 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-4-4-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 52-54-56-58-58-62 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-4-4-4-4-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 2-2½-2½-3-3½-3½ cm alls 8-8-9-9-10-10 sinnum = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 20-25-28-32-34-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-6-8-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 44-44-44-48-48-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-28-31-35-38-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cocoacomfortcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.