Mies skrifaði:
In dit patroon staat een fout. In het stukje, Verdelen voor het lijf en de mouwen. In een van de laatste regels staat 50-54-58-66-68-70 voor het achterpand. Dat moet 82-90-94-104-112-124.
12.11.2024 - 13:45
Leroux Michèle skrifaði:
Je ne trouve pas les explications du point fantaisie A1 et A2 ???
09.11.2024 - 13:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Leroux, vous trouverez ces 2 diagrammes entre la légende des symboles et le schéma des mesures. Bon tricot!
11.11.2024 - 08:24
Marianne Iversen skrifaði:
Når bære stykket måler 4 cm fra mærket tages ud ved at strikke mønster ? Er det ikke bare en dobbeltudtagning hver 5. maske ? ( str. L)
04.11.2024 - 20:32DROPS Design svaraði:
Hej Marianne, udtagningen strikkes over 2 masker og du har 3 masker imellem hver :)
05.11.2024 - 08:34
Helén Möller skrifaði:
Hej! Tror ni att kombinationen Fabel Skog och Kid-Silk Rost kommer att fungera eller kommer meleringen bli mindre tydlig? Fungerar det att kombinera Fabel med Melody eller det är för stor skillnad i rek stickstorlek?
31.10.2024 - 21:36DROPS Design svaraði:
Hej Helen, ja det fungerer, meleringen blir bara lite mindre tydlig. Här ser du våra kombinationer med DROPS Fabel: Kombinationer med DROPS Fabel
01.11.2024 - 12:00
Mies Van Lieshout skrifaði:
Ik wil graag deze trui breien. Maar voordat ik het garen bestel ben ik een proeflapje aan het breien om te kijken of me het gaat lukken. Nu struikel ik al over het meerderen met het patroon. Mijn vraag is nu is er een instructie video van deze manier van meerderen. Alvast bedankt.
26.10.2024 - 23:06DROPS Design svaraði:
Dag Mies,
Voor deze meerdering specifiek is er geen video voor zover ik weet. Wat je doet is het volgende: Je breit de 2 steken recht samen, maar je laat de 2 samen gebreide steken nog niet van de naald af glijden. Je maakt nu 1 omslag op de rechter naald waarna je dus 1 steek en 1 omslag op de rechter naald hebt. Vervolgens brei je in elk van de 2 steken die nog op de linker naald staan (omdat je ze nog niet van de naald af hebt laten glijden) 1 steek recht en dit doe je door de naald in de achterste lus van de steek te steken.
27.10.2024 - 14:10
Winter Poem#winterpoemsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-14 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur) og með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-106-110-116-122 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 4 umferðir sléttprjón, síðan eru prjónaðar 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm mælt eftir stroffi. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 35-36-37-38-42-44 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 24-25-29-30-34-38 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 120-125-135-140-150-160 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: * 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum hringinn á berustykki = 168-175-189-196-210-224 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum hringinn á berustykki = 216-225-243-252-270-288 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 12-13-13-15-15-16 cm frá merki. FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Síðan er mynstrið prjónað mismunandi eftir stærðum, prjónaðu eftir þinni stærð að neðan. STÆRÐ S, M og L: Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum hringinn á berustykki = 240-250-270 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 16-18-18 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum hringinn á berustykki = 264-275-297 lykkjur. Síðan er prjónað frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum hringinn á berustykki = 308-330-352 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 20-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 5 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum hringinn á berustykki = 336-360-384 lykkjur. Síðan er prjónað frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 264-275-297-336-360-384 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar berustykkið mælist 18-20-20-22-22-24 cm frá merki er aukið út um 0-13-7-4-0-4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 264-288-304-340-360-388 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-23-24-25-26-28 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 82-90-94-104-112-124 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 82-90-94-104-112-124 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-196-208-228-248-272 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 43-45-47-48-49-51 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-30-36-36-42-42 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 210-226-244-264-290-316 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-56-58 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-58-66-68-70 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2½-2-1½-1½-1½ cm alls 4-5-7-10-11-11 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-42-42-42-40 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 46-45-44-44-44-42 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterpoemsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.