Helena skrifaði:
Hej. Er det med vilje at deling til ærmegab ikke er den samme som for sweateren? Som her: "På næste omgang deles arbejdet til forstykke og bagstykke, og omgangen strikkes således: Luk de første 8-10-12-20-22-26 masker på omgangen af til ærmegab, strik 106-110-114-116-130-136 masker som før (= forstykke), luk de næste 8-10-12-20-22-26 masker af til ærmegab, strik 106-110-114-116-130-136 masker som før (= bagstykke)."
04.03.2026 - 12:20
Morera Marie France skrifaði:
S'en sont sûrement pas aperçu et pour le coup, les diminutions pour enmanchures enpieteront sur les torsades et ça c pas logique, voilà je voulais vous le signaler, si besoin de plus d'explications, je suis prête à vous expliquer avec un dessin, bonne journée, cordialement
06.02.2026 - 11:56DROPS Design svaraði:
Merci pour l'info, nos stylistes vont vérifier cela dès que possible.
06.02.2026 - 17:16
Riet skrifaði:
Het werk wordt in het rond gebreid. Toch staat er na de mindersectie na de boord. Brei heen en weer.Lees ik dit nu verkeerd .
05.02.2026 - 13:01DROPS Design svaraði:
Dag Riet,
Dit lijkt inderdaad niet te kloppen. Je breit in de rondte totdat je het werk verdeeld bij de armsgaten. Ik heb het doorgegeven aan de ontwerpafdeling om na te kijken en aan te passen.
05.02.2026 - 19:59
Claude skrifaði:
Juste avant la division pour les emmanchures on mentionne de continuer en allers retours jusqu’à ce que l’ouvrage mesure 27 cm. Mais on tricote avec une aiguille circulaire il n’y a pas d’allers retours. Est-ce une erreur ou j’ai mal compris l’explication? Merci
04.02.2026 - 21:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Claude, c'est une erreur effectivement, on continue d'abord en rond jusqu'aux emmanchures puis on continue chaque partie séparément en allers et retours sur aiguilles circulaire. Merci pour l'info, une correction va être faite. Bon tricot!
06.02.2026 - 16:30
Inger skrifaði:
Mönstret beskrivs första varvet, sedan står det bara "fortsätt mönstret fram och tillbaka som förklaras ovan tills arbetet mäter.." Men det står inget om det ska vara något, eller några varv helt rätstickat mellan mönstervarven??? Det ser ut så på bilden av västen... Jag tycker inte det känns rätt att sticka mönster varje varv. Ska det verkligen vara så? (Jag stickar på rundsticka)
06.01.2026 - 21:49DROPS Design svaraði:
Hej Inger, du starter nederst i diagrammet, hver pind vises og strikkes ifølge diagrammet. Når du har strikket alle pinde i diagrammet, starter du nederst igen :)
26.01.2026 - 15:17
Ingrid Baeuerle skrifaði:
Liebes Dropstream, ich habe eine Frage zum Mustersatz A4. Der Pullunder wird ja in Reihen gestrickt. Wenn ich die Reihe 3 mit den beiden verschiedenen Zopfmustern stricke beginne ich dann mit dem rechten dickeren und danach mit dem dünneren linken Zopfmuster . Und das 6x , da ich ja 32 Maschen habe . Ingrid Baeuerle
11.11.2025 - 23:16
Ingrid Baeuerle skrifaði:
Liebes Dropstream, ich habe eine Frage zum Mustersatz A4. Der Pullunder wird ja in Reihen gestrickt. Wenn ich die Reihe 3 mit den beiden verschiedenen Zopfmustern stricke beginne ich dann mit dem rechten dickeren und danach mit dem dünneren linken Zopfmuster . Und das 6x , da ich ja 32 Maschen habe . Ingrid Baeuerle
11.11.2025 - 20:17DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bauerle, das Rumfpteil wird zuerst in Runden bis die Armlöcher gestrickt; bei der 1. Runde mit Nadel Nr 5 wird man regelmäßig verteilt abnehmen, und auch Diagramme ändern: A.3 über A.1, A.4 über A.2 und A.5 über A.1 je nach der Stelle; ich misverstehe aber vielleicht Ihre Frage, dann können Sie uns bitte mehr sagen? Danke im voraus für Ihr Verständnis.
21.11.2025 - 14:58
Marie skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas la hauteur qu’il faut tricoter avant les emmanchures. Il est indiqué 29 cm, mais ça me semble beaucoup trop court. Par ailleurs il est indiqué qu’il faut tricoter en « aller retour », alors que l’ouvrage vient de commencer en aiguilles circulaires. Pourriez-Vous me confirmer ce qu’il convient de faire ? Je vous remercie par avance, Bien cordialement
15.09.2025 - 22:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, vous pouvez toujours ajuster la longueur du gillet a vos besoins. Rappelez-vous que les emmanchures sont assez longues dans ce modele. Regardez le schema des mesures en bas de page. Vous commencez l'ouvrage en rond sur les aiguilles circulaires, a partir des emmanchures, vous divisez l'ouvrage et tricotez le dos et le devant en aller retour sur les memes aiguilles. Commenr tricoter en aller retour sur les aiguilles circulaires vous trouverez ICI. Bon tricot!
16.09.2025 - 09:00
Karen skrifaði:
Sheesh nevermind its too early for this just check the finished measurements vs the schematic. size small
12.09.2025 - 14:13
Karen skrifaði:
Well the second post i made had the correction of my typo.... Anyways... 112 does not equal 92 (not 96) ._. and 92cm definitely does not equal 36.5 inches.... your oattern states: Chest measurements: 92-120-128-138-150-162 cm = 36¼"-47¼"-50⅜"-54¼"-59"-63
12.09.2025 - 14:09DROPS Design svaraði:
Dear Karen, the measurements in the size chart are correct. There seems to be a typo in the finished measurements indicated in the US materials section; please follow the indications in the size chart to choose the desired size. Happy knitting!
15.09.2025 - 01:54
Stormy Ocean Vest#stormyoceanvest |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónað stórt / oversize vesti úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, skáhallandi öxl og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-26 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem á að fækka í / heildartölu lykkjufjölda í umferð (t.d. 22 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 4,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp í kringum handveg og kantar eru prjónaðar í handveg. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 244-244-268-284-324-332 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, A.2, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8-8-12-20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1, A.2, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1. Prjónið svona þar til stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm. Prjónið síðan þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið 10-10-14-22-22-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 8-10-12-20-22-26 lykkjur sléttprjón í hliðum á fram- og bakstykki), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið A.4 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 lykkjur (= yfir A.2), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 10-10-14-22-22-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (= 8-10-12-20-22-26 lykkjur sléttprjón í hlið á fram- og bakstykki), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið A.4 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 lykkjur (= yfir A.2), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.5 yfir A.1 = 228-240-252-272-304-324 lykkjur. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm. Munið að fylgja prjónfestunni. SKIPTING Á STYKKI FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Byrjið 3-3-3-4-4-5 lykkjum á undan byrjun umferðar, fellið af fyrstu 6-6-6-8-8-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 108-114-120-128-144-152 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 6-6-6-8-8-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 108-114-120-128-144-152 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka, hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 108-114-120-128-144-152 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 1-2-3-4-3-4 sinnum í hvorri hlið = 106-110-114-116-130-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en ysta lykkja í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellið af fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið ystu 3-3-3-4-4-4 lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð). Setjið 3-3-3-4-4-4 lykkjur á þráð alls 4 sinnum í hvorri hlið (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur á þráð í hvorri hlið). HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-26-26-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli eru 23-25-27-24-28-31 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl og stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Setjið til baka 12-12-12-16-16-16 lykkjur af þræði á prjóninn saman við 23-25-27-24-28-31 lykkjur í umferð = 35-37-39-40-44-47 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal (= 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri) = 29-31-33-34-36-39 lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Prjónið hina öxlina á sama hátt (klippið þráðinn og byrjið frá réttu þegar allar axlalykkjurnar hafa verið settar til baka á prjóninn). FRAMSTYKKI: = 108-114-120-128-144-152 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 1-2-3-4-3-4 sinnum í hvorri hlið = 106-110-114-116-130-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni. Þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 54-56-57-58-59-60 cm, fækkið 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4 = 100-104-108-110-122-128 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-16-16-16 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er fellt af fyrir hálsmáli og lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-3-3 sinnum. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, setjið ystu 3-3-3-4-4-4 lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð). Setjið 3-3-3-4-4-4 lykkjur á þráð alls 4 sinnum í hvorri hlið (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur á þræði í hvorri hlið). Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir hálsmáli og settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eru 23-25-27-24-28-31 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl og stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Setjið til baka 12-12-12-16-16-16 lykkjur af axla-þræði á prjóninn saman með 23-25-27-24-28-31 lykkjum af prjóni = 35-37-39-40-44-47 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal (= 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri) = 29-31-33-34-36-39 lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Prjónið hina öxlina á sama hátt (klippið þráðinn og byrjið frá réttu þegar allar axlalykkjurnar hafa verið settar til baka á prjóninn). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. KANTUR ERMAR: Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu fyrir miðju undir ermi og prjónið upp ca 112-116-120-124-128-132 lykkjur í kringum handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) í 4-4-4-5-5-5 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í miðju 12-12-14-14-16-16 brugðnu-einingum mitt ofan á kanti fyrir ermar (þetta er gert til að koma í veg fyrir að kantur á ermum brettist upp). Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust með garðaprjóni. KANTUR HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir) og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 84-84-88-88-100-100 lykkjur (ásamt lykkjum frá þræði að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6-6-7-7-8-8 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust með garðaprjóni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormyoceanvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.