Lena skrifaði:
Hallo, übersehe ich etwas oder fehlt die Anleitung, wo die Knopflöcher gestrickt werden sollen? Vielen Dank
01.02.2025 - 14:27DROPS Design svaraði:
Liebe Lena, die Knopflöcher werden unter dem Abszat KNOPFLÖCHER am 1. Teil der Anleitung beschrieben. Viel Spaß beim Stricken!
03.02.2025 - 08:29
Carla Von Ahn skrifaði:
Hallo. Teil: Rumpfteil. Zu Beginn des Rumpfteils sollen die Maschen des rechten Vorderteils gestrickt werden, dann sollen Maschen angeschlagen werden. Ich verstehe nicht ganz, was das für Maschen sind die angeschlagen werden sollen. Sind die dann später unter der Achsel? Soll ich die an einem bestimmten Teil anschlagen oder sollen die frei hängen? Über eine Antwort würde ich mich sehr freuen. LG Carla :)
31.10.2024 - 13:11DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Von Ahn, diese neuen Maschen (6, 10 oder 12 je nach der Größe) sind für die Seiten (Mitte under die Ärmel) - siehe diese Lektion, wo man für einen Pullover je 6 Maschen zwischen Vorder- under Rückenteil anschlägt. Viel Spaßb eim Stricken!
31.10.2024 - 15:53
Yvonne skrifaði:
Wenn ich der Anleitung folge und das Rückenteil stricke, wird der Armausschnitt ab Markierer auf der Schulter für Gr. Xl 15 cm lang bis die Maschen stillgelegt werden. Laut strickschrift sollte er aber für Grösse Xl 23 cm lang werden….\r\nÜberseh ich irgendwie etwas?\r\nDanke für die Hilfe🌸
20.10.2024 - 20:48DROPS Design svaraði:
Liebe Yvonne, bei solchen Modellen mit europäischen Schulter sind die Armausschnitt beim Rückenteil kürzer als beim Vorderteil, so hat man hier in XL 15 cm beim Rückenteil + 31 cm bei den Vorderteile = 46 cm/2 = 23 cm. Schauen Sie unter Tab "Videos" und "Lektion" oben im Kopfteil, so finden Sie passende Videos/Letkionnen wo diese Technik schön erklärt wird. Viel Spaß beim Stricken!
21.10.2024 - 09:21
PORTAL Odile skrifaði:
J'aimerai vraiment tricoter vos modèles mais je n'arrive pas à adoptervotre méthode de tricot "haut en bas". Ne pourriez-vous pas nous en donner les explications ? Merci, je suis une tricoteuse normale mais je pense que mon handicap vient du fait de mon âge : 75 ans. C'est difficile de me lancer et très perturbant.
13.10.2024 - 07:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Portal, cette constructions avec épaules européennes est effectivement particulière et pour vous permettre de bien comprendre comment on doit faire, nous avons réalisé plusieurs vidéos et leçons que vous retrouverez dans les onglets Vidéos/Leçons (à droite de l'onglet Explications) en haut de page. Vous pouvez également retrouver tous nos gilets et vestes tricotés de bas en haut ici. Bon tricot!
14.10.2024 - 08:32
Crossed Path Cardigan#crossedpathcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversized peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli og I-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 252-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 10½-10½-11-11-11-11½ cm á milli hverra hnappagata. Síðasta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og stroffs. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð. Á framstykkjum er fyrst prjónaður listi með í kanti að framan sem síðar er saumaður saman meðfram hnakka í frágangi í lokin, síðan er framstykkið prjónað með því að prjónaðar eru upp lykkjur meðfram annarri öxlinni á bakstykki. Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út að hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveginn eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman, saumur = mitt að aftan, saumið lista í kanti að framan við lykkjur meðfram hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 22-24-26-26-28-28 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Melody. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 11-12-13-13-14-15 sinnum (= 22-24-26-26-28-30 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 66-72-78-78-84-88 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 9-10-11-11-11-12 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 4-4-4-6-6-6 prjónaðar umferðir) = 70-76-82-86-90-94 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 12-13-14-15-15-16 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri listi í kanti að framan prjónaður og vinstra framstykki meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 8. Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 8-9-10-10-11-11 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan á vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrst 7 lykkjur frá lista í kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 22-24-26-26-28-30 lykkjur frá bakstykki) = 29-31-33-33-35-37 lykkjur. Öll mál á lengdina eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 7 lykkjur, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 7 lykkjur, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 8 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmál, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá betri yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur eins og áður, 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-12-13-13-14-14 sinnum (= 22-24-26-26-28-28 prjónaðar umferðir). Nú hefur verið aukið út alls 11-12-13-13-14-14 sinnum fyrir v-hálsmáli. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni og með kantlykkjum að framan eins og áður. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 23-24-25-25-27-28 cm, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-3-3 sinnum (= 4-4-6-6-6-6 prjónaðar umferðir). Þegar öll útaukning fyrir V-hálsmáli og handveg er lokið, eru 42-45-48-49-52-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-27-28-29-31-32 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 8. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur mælist 8-9-10-10-11-11 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það á að prjóna þær áfram yfir lista í kanti að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 22-24-26-26-28-30 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan 7 lykkjur frá lista í kanti að framan í umferð = 29-31-33-33-35-37 lykkjur í umferð. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 lykkjur frá kanti að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 7 lykkjur, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 8 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg, lestu því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram til að fá betri yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, 2 lykkjur slétt, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-12-13-13-14-14 sinnum fyrir v-hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og með kantlykkjur að framan eins og áður. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 23-24-25-25-27-28 cm, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 4-4-4-6-6-6 prjónaðar umferðir). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 42-45-48-49-52-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-27-28-29-31-32 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan ! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið lykkjur 42-45-48-49-52-54 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-10-10-12 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 70-76-82-84-90-94 lykkjur frá bakstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-10-10-12 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 42-45-48-49-52-54 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 186-198-214-230-246-266 lykkjur í umferð. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 28-29-29-30-30-32 cm frá handvegi. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 18-18-18-22-22-22 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 184-196-208-224-236-248 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Framstykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm mælt frá uppfitjunarkanti, framstykkið er nú ca 3 cm lengra en loka mál þar sem uppfitjunarkanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist 60-62-64-66-68-70 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 6 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 48-52-54-62-64-68 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-7-8-8-9 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-7-8-8-9 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-4-4-4-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-4-4-4-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-8-8-8-10-10 sinnum (= 4-4-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem snúið er við endar umferðin með því að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 6-4-4-3-2½-2½ cm alls 3-5-5-8-8-9 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-40-39-39-37-37 cm frá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 40-40-44-48-48-52 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-46-45-46-44-44 cm frá miðju ofan á öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman lista í kanti að framan og saumið þá niður við hálsmál að aftan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crossedpathcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.