Erin skrifaði:
Thanks so much for the response. With the A1 pattern though, how is this worked with the rows with the raglan increases? Are you stopping the pattern at the increases and then picking back up after the increases? The K2 P2 gets cut off when working to the increases, so if you end on the first purl of p2 and need to move to increases, are you picking up the second purl immediately after or restarting with the knit 2? That is what is not clear. Thanks!
12.03.2026 - 13:43DROPS Design svaraði:
Dear Erin, you should incorporate the new stitches into the pattern, This means read the diagram from the right towards the left when working the increases at the end of body/sleeves (before marker) and read diagram from the left towards the left to enlarge pattern at the beg of body/sleeves (after marker). Happy knitting!
12.03.2026 - 16:01
Erin skrifaði:
Hi there, I have been trying very hard to start the yolk and understand the stitch process but am struggling. Is there a video that shows the first setup round after finishing the collar to properly understand where to place all raglan stitch markers, and how to knit with the A1 pattern while working with the raglan? Since the collar is finished I am at my BOR which makes it feel like the raglan starts immediately. I did try looking a the lessons too - this was not enough help for this pattern.
11.03.2026 - 15:26DROPS Design svaraði:
Hi Erin, The markers are inserted without working the stitches, so you count stitches and insert the markers between the next stitch after each count. 1 stitch before each marker and 1 stitch after each marker are the raglan stitches which are always knitted on each round onwards. You increase for raglan before and after these 2 stitches by making yarn overs. The yarn overs are then worked as described under Raglan (in Explanations at the top of the page), before being worked into pattern A.1. The 2 knitted raglan stitches are not affected by these increases. Hope this helps. Regards, Drops Team.
12.03.2026 - 06:20
Henriette skrifaði:
När ska man använda A1 A2 mönstret
01.03.2026 - 09:25DROPS Design svaraði:
Hei Henriette. Se vårt forrige svar til deg :) mvh DROPS Design
03.03.2026 - 11:10
Henriette Philipson skrifaði:
När vet man när man ska använda A1A2
01.03.2026 - 09:23
Henriette Philipson skrifaði:
När vet man när man ska använda A1A2 mönstret
01.03.2026 - 09:22DROPS Design svaraði:
Hei Henriette. Når du starter på oket og har byttet til større pinne str, skal du strikke etter MØNSTER. Les da forklaringen øverst i oppskriften. ( A.1 / A.2 = Mönstret stickas så här (mönstret fortsätter från oket över på fram- och bakstycke och ärmar): Sticka A.1 i 8-9-10-11-12-13 cm, sticka A.2. Sticka A.1 i 9-10-10-11-12-13 cm, sticka A.2. Sticka A.1 i 9-10-10-11-12-13 cm, sticka A.2. Sedan stickas arbetet i slätstickning). mvh DROPS Design
03.03.2026 - 11:08
Anna VT skrifaði:
Hej. Stickar medium. När stickar man A2 mönster första och tredje gången? Jag ser bara där det står andra gången. Och var på ärmen? Har jag missat något? Anna VT
14.01.2026 - 20:51
Patricia skrifaði:
Bonjour Faut il faire la séparation su corps et des manches sur le dernier tour de A2 ou sur le premier tour de A1 ? bien cordialement.
17.11.2025 - 18:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia, A.2 doit avoir été tricoté 2 fois avant la division, vérifiez vos mesures, et ajustez si besoin pour diviser soit au dernier tour de A.2 soit en tricotant A.1. Bon tricot!
18.11.2025 - 08:35
Patricia skrifaði:
Bonjour Faut-il faire la séparation du corps et des manches sur le dernier rang de A2 ou sur le premier rang A1 ? Bien cordialement
17.11.2025 - 18:17
Simona skrifaði:
Hello, when I continue to increase for raglan on front piece and back piece, without sleeves, the raglan seam is crooked. What I am doing wrong, please? Thank you for your help. Simona
11.10.2025 - 17:36DROPS Design svaraði:
Hi Simona, it looks like this. It will be slightly visible when you join after you divide for the body and sleeves. Happy knitting!
16.11.2025 - 08:37
Evelyne Serpollier skrifaði:
Combien de cm dois t on faire en jersez avant le point fantaisie
19.09.2025 - 14:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Serpollier, on tricote le point fantaisie dès le début de l'empiècement, directement après le col. Bon tricot!
24.09.2025 - 07:04
Harbor Horizon#harborhorizonsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S – XXXL.
DROPS 251-2 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynstrið er prjónað þannig (mynstrið heldur áfram frá berustykki yfir á fram- og bakstykki og ermar): Prjónið A.1 í 8-9-10-11-12-13 cm, prjónið A.2 prjónið A.1 í 9-10-10-11-12-13 cm, prjónið A.2 prjónið A.1 i 9-10-10-11-12-13 cm, prjónið A.2. Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir/undan 2 lykkjum í sléttprjóni (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja). í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvern merkiþráð þannig – munið eftir að stilla úrtöku eftir mynstri: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt / brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri), endurtakið úrtöku við hinn merkiþráðinn (= alls 4 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig – munið eftir að stilla úrtöku eftir mynstri: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið saman, merkiþráðurinn situr hér, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt / brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumað niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-112-120-120-128-136 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima eða DROPS Fiesta. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram hringinn með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 9-9-9-10-10-10 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4½-4½-4½-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 40-40-42-42-44-46 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt og þessar 2 lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merkiþráðinn í byrjun umferðar, teljið 24 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 32-32-36-36-40-44 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 24 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru eftir 32-32-36-36-40-44 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan MYNSTUR hringinn – lesið útskýringu að ofan, jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir að laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið hringinn í mynstri og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-24-26-26-28-30 sinnum = 288-304-328-328-352-376 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 6-8-6-10-10-12 sinnum til viðbótar = 312-336-352-368-392-424 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá merki eftir kant í hálsmáli – passið uppá að A.2 hefur verið prjónað til loka í annað skiptið. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Mynstrið heldur áfram yfir á fram- og bakstykki og ermum – laskalykkjurnar eru nú prjónaðar inn í mynstrið. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, setjið næstu 66-70-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-14-18-18-22 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 90-98-102-110-118-130 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-14-18-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 89-97-101-109-117-129 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-256-272-304 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 10-10-14-18-18-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið síðan merkiþræðina fylgja með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram að fyrri merkiþræðinum, umferðin byrjar hér. Prjónið síðan mynstur eins og áður, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-11-11-12-13 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri) = 196-212-228-252-268-300 lykkjur. Munið eftir að þegar A.2 hefur verið prjónað 3 sinnum, prjónið fram- og bakstykkið síðan í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22-22-22-22-23-24 cm, fækkið lykkjum í hliðum 1 sinni til viðbótar = 192-208-224-248-264-296 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 54-56-57-59-61-63 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 40-44-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 232-252-268-296-316-352 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 59-61-63-65-67-69 cm frá merki mitt að framan og ca 64-66-68-70-72-74 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 66-70-74-74-78-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-14-18-18-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-80-88-92-96-104 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-14-18-18-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Haldið áfram með mynstur frá berustykki hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3½-3-2½-2-2-1½ cm alls 12-13-16-17-19-22 sinnum = 52-54-56-58-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-46-44-43-41-39 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-10-12-14-14-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-64-68-72-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 52-51-50-49-47-45 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harborhorizonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 251-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.