Joanna skrifaði:
Zamiast zszywać dekolt na końcu, można od razu połączyć oczka drutami przerabiając razem jedno oczko z początku i jedno z końca robótki, wygląda to zdecydowanie lepiej.
01.09.2026 - 06:05DROPS Design svaraði:
Świetny pomysł :) Zachęcamy do modyfikowania wzorów, sama często to robię. Pozdrawiamy!
02.09.2026 - 08:58
Lisa skrifaði:
OK, I'll try again. When I'm dividing for body/sleeves and needing to CO 11 ST, what color yarn are they supposed to be? Under "BODY" in the pattern it also says that "The pattern will not fit in the sides...." I'm not sure what to make of that, either. Thank you.
05.08.2026 - 18:20DROPS Design svaraði:
Hi Lisa, You continue the colour pattern A.2 from the yoke and across the first half of the back piece, then continue the pattern as far as it will go across half the cast-on stitches under the sleeve. When you reach the middle cast-on stitch, this is worked in Dream Blue. Then you need to work out where to start the colour pattern in A.2 again so it is correct after the cast-on stitches on the front piece. Regards, Drops Team
06.08.2026 - 06:19
Lisa skrifaði:
Hello DROPS- I'm still looking for help with this pattern. Since you're usually so excellent about replying, I'm wondering if maybe you're on holiday? Thanks for any help....
29.07.2026 - 17:02DROPS Design svaraði:
Hi Lisa, We have all been on holiday for the summer month of July, so yes som answers have been a bit delayed. I had a look at your question but it is a bit hard to understand. Could you rewrite it a little more clearly? Regards, Drops Team.
30.07.2026 - 07:11
Lisa skrifaði:
I'm dividing for sleeves on R27 (sz L). When I stop at 55 ST of Chart A.2, I am ending w/ ST #7 (=24 St repeat x 2=48 + 7=55 ST) before placing 70 St on hold. When I CO 11 St ("=in the side under sleeve"), do I continue w/St 8 in the colorway w/these stitches in the chart? That seems like it would be the correct thing to do, but the math on the chart doesn't add up after that. Thanks for any help.
21.07.2026 - 22:35DROPS Design svaraði:
Dear Lisa, when dividing you can cast on the new stitches under sleeve with both colours as the same row worked on front/back piece but just note that the diagram will not fit on the sides, so you can just cast on the stitches with 2 colours together (so that you don't have to carry one of the colours), then work as many stitches as possible to the sides. Happy knitting!
11.08.2026 - 11:34
BAB skrifaði:
Bonjour, Pouvez-vous me dire quel motif je dois réaliser avec les mailles (9 pour la taille S) montées entre dos et devant après séparation des manches ? Merci beaucoup.
20.02.2026 - 13:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Bab, en commençant au milieu des mailles montées sous la manche, tricotez le jacquard comme avant en l'étendant sur ces mailles, avant celles du dos/du devant et jusqu'au milieu sous l'autre manche. Bon tricot!
23.02.2026 - 07:23
Jennifer Carvalho skrifaði:
If I only want to work A1, would I just go ahead and do the increases as indicated in A2 in the blue without working the pattern? Would that work?
28.04.2025 - 17:37DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Carvalho, yes that should work, this means just work A.2 with blue only but as explained in the written pattern and increase in each A.2 as shown in the diagram. Happy knitting!
29.04.2025 - 09:26
Jennifer Carvalho skrifaði:
If I only want to work A1, would I just go ahead and do the increases as indicated in A2 in the blue without working the pattern? Would that work?
28.04.2025 - 17:36
Emily Daub skrifaði:
Is there a size chart? I only see a tool to highlight the size, but not a size chart, finished measurements and expected ease! I could be missing it too, I just spent a while reading and didn’t see it
17.03.2025 - 10:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Daub, you will find a chart with all finished measurements in each size at the very bottom of the pattern; read more here. Happy knitting!
17.03.2025 - 15:27
Fiona skrifaði:
You say to do increases in A.2 but there are no increase arrows on pattern, so where do I increase
10.02.2025 - 08:39DROPS Design svaraði:
Hi Fiona, The arrows for increasing evenly (when the yoke measures 5 cm) are in A.1. When you have completed A.1, you continue with A.2. There are increases in A.2 but these are yarn overs which are drawn into the diagram as small black circles, i.e., in rows 2, 4, 6, 8 and 10. Happy knitting!
11.02.2025 - 06:58
Manuela Dietrich skrifaði:
In der Strickschrift A2 ist ein Fehler. 13 Reihe von oben, das 4. Feld von links muss in Natur ( schwarzes Quadrat) gestrickt werden
11.11.2024 - 13:30
Snow Maiden#snowmaidensweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-16 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-116-120-124-128-132 lykkjur á hringprjón 4 með litnum draumablár í DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjaðar er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 56-58-60-62-64-66 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 16-19-20-25-27-28 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 128-135-140-149-155-160 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón í litnum draumablár. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2,5 cm frá merki, aukið út um 16-19-20-25-27-28 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 144-154-160-174-182-188 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 5 cm frá merki, aukið út um 36-38-40-50-54-56 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 180-192-200-224-236-244 lykkjur. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 berustykkið hringinn – jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 36-40-40-48-52-60 lykkjur jafnt yfir = 216-232-240-272-288-304 lykkjur. Ör-2: Aukið út 32-32-44-52-56-56 lykkjur jafnt yfir = 248-264-284-324-344-360 lykkjur. Ör-3: Jafnið lykkjufjöldann út til = 247-266-285-323-342-361 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist berustykkið ca 14 cm frá merki. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í A.2 (það eru prjónaðar 13-14-15-17-18-19 mynstureiningar af A.2 umferðina hringinn). Þegar útaukning í A.2 er lokið eru 312-336-360-408-432-456 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá merki, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. ATH! A.2 er ekki lokið. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð með litnum ljós blár, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 48-52-55-62-67-73 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-64-70-80-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-11-11-11-15 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið A.2 yfir næstu 96-104-110-124-134-146 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-80-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-11-11-11-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið A.2 yfir síðustu 48-52-55-62-67-73 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-226-242-270-290-322 lykkjur. Prjónið síðan A.2, passið uppá að mynstrið passi yfir A.2 frá berustykki. ATH! Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum, prjónið mynstur eins langt og hægt er að hliðum á fram- og bakstykki og prjónið síðan með litnum draumablár. Prjónið þar til stykkið mælist 42-44-46-45-47-49 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 22-22-26-26-26-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 232-248-268-296-316-352 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-64-70-80-82-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-9-11-11-11-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-73-81-91-93-97 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 9-9-11-11-11-15 nýjar lykkjur undir ermi. Haldið áfram með A.2 umferðina hringinn (Mynstrið kemur ekki til ganga jafnt upp undir ermi þegar lykkjum er fækkað). JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5½-5½-4-2½-2½-2 cm alls 6-6-8-12-12-13 sinnum = 57-61-65-67-69-71 lykkjur. Þegar A.2 er lokið, prjónið í sléttprjóni og litnum draumablár. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-36-36-33-32-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 7-7-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-68-72-72-76-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-42-42-40-39-38 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowmaidensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.