Anne Plechinger-Hermann skrifaði:
Ich verstehe es leider trotzdem nicht. 😢 Ich beginne vorne mit A1, dann stricke ich A2. Stricke ich das nur bis zur mittleren Masche unterm Arm, die in der Grundfarbe, und fange dann wieder mit A2 von vorne an bis zur nächsten Mittelmasche Arm. Und dann? Am Ende passt ja dann gar nichts. Hilfe 😞
27.01.2025 - 14:49DROPS Design svaraði:
Liebe Anne, stricken Sie die Diagramme genau so wie zuvor, dh das linke Vorderteil wie zuvor bis die mittlere Masche unter die 1. Ärmel, die mittlere Masche mit der Hauptfarbe stricken, dann das Rückenteil genauso wie zuvor weiterstricken (die neuen Maschen wie die vorigen Maschen im Diagram stricken) bis die mittlere Masche vor rechtem Vorderteil, diese mittlere Masche mit der Hauptfarbe stricken und das linke Vorderteil genauso wie zuvor stricken, die letzten von den neuen Maschen wie die vorigen Maschen vom Vorderteil stricken; so werden die Diagramme nicht verschoben. Viel Spaß beim Stricken!
27.01.2025 - 17:55
Anne skrifaði:
Hallo, Wie stricke ich die Muster A1 A2 und A3 nach der Teilung in Rumpf und Arme? Ich möchte doch die beiden Vorderteile im gleichen Muster haben. Danke und freundliche Grüße Anne Plechinger-Hermann
26.01.2025 - 22:08DROPS Design svaraði:
Liebe Anne, Muster stricken Sie wie zuvor bei der Passe, nun wird das Muster nicht in den Seiten passen, dh unter die Ärmel stricken Sie die mittlere von den neuen Maschen mit der Hauptfarbe der Reihe und die Maschen davor/danach im Muster wie bei den Vorderteile/dem Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!
27.01.2025 - 09:51
Gro skrifaði:
Comfy
08.08.2024 - 14:26
Winter Swirl Cardigan#winterswirlcardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri með stórum stjörnum, i-cord og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-28 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt í grunnlit (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 93-97-101-107-111-117 lykkjur á hringprjón 5 með litnum morgunþoka úr DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-6 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn tvöfaldur). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 lykkjur fyrir kant að framan = 105-109-113-119-123-129 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff fram og til baka eins og áður, en ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 10-10-10-12-12-12 cm – endið með umferð frá röngu. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 91-95-99-105-109-115 lykkjur sléttprjón jafnframt er aukið út um 20-24-26-28-28-30 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 125-133-139-147-151-159 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-2-2-2-2-2 cm frá merki, aukið út um 24-28-26-24-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 149-161-165-171-179-191 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-4-4-4½ cm frá merki, aukið út um 24-28-26-24-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 173-189-191-195-207-223 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 6-6-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út um 24-28-26-24-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 197-217-217-219-235-255 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 7-8-8-8-8-9½ cm frá merki, aukið út um 25-28-28-26-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 222-245-245-245-263-287 lykkjur. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Aukið út í 3 stærstu stærðunum eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XL, XXL OG XXXL: Þegar berustykkið mælist 10-10-12 cm frá merki, aukið út um 23-28-27 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 268-291-314 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 222-245-245-268-291-314 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 8-9-10-11-11-13 cm frá merki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, lesið LEIÐBEININGAR RENDUR og prjónið þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 8-9-9-10-11-12 sinnum, prjónið A.3 og prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út í mynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Prjónið þar til berustykkið mælist ca 21-22-23-24-24-26 cm frá merki mitt að framan. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar – ATH: Stillið af þannig að skiptinginn sé á þeim stað í mynstri eftir að aukið hefur verið út 3 sinnum á hæðina í A.1, 5 sinnum á hæðina í hverri einingu með A.2 og 2 sinnum á hæðina í A.3 (þ.e.a.s. það er eftir 1 útaukning í A.1 og A.3 og 2 útaukningar í A.2 – þessar útaukningar eru gerðar á fram- og bakstykki) = 267-295-295-323-351-379 lykkjur í umferð. Ef prjónfestan passar á hæðina kemur stykkið til með að skiptast mitt í rönd þegar sem grunnliturinn er í litnum bleikur marmari. Mynstrið er prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-51-51-54-60-65 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 49-53-53-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-11-11-11-11 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 77-87-87-93-105-115 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 49-53-53-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-11-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 46-51-51-54-60-65 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 183-203-211-223-247-267 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki – merkið er sett í miðju af 7-7-11-11-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 7 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður - ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hvorri hlið undir ermum, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er fram að lykkju með merki í og prjónið lykkjuna með merki í grunnlit. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 195-215-223-239-263-283 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan fram og til baka eins og áður í litnum morgunþoka þar til stykkið mælist 45-47-49-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 30-34-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 225-249-257-277-305-329 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 49-53-53-61-63-67 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-11-11-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merki í miðjulykkju undir ermi. Merkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Nú á að prjóna mynstur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi – lesið þess vegna MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku að neðan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merki mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki, þ.e.a.s. prjónið A.2 til loka til og með umferð merktri með ör í A.2, prjónið síðan A.4 hringinn á ermi – ATH: Stjarnan er ekki samhverf á erminni, en stjarnan í A.4 á að halda áfram beint yfir stjörnu í A.2 – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir erminni, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er inn að lykkju með merki í og prjónið lykkju með merki í grunnlit. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan sléttprjón með litnum morgunþoka. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-1½-1½-1-1-1 cm alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 48-50-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-40-38-39-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-58-62-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-46-46-45-46-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterswirlcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.