Marioli skrifaði:
Chaqueta muy elegante en un color pastel encantador.
10.08.2024 - 23:28
Osanna Cremonesi skrifaði:
Fiori in rilievo
09.08.2024 - 09:35
Lisa skrifaði:
Elegant Eve
08.08.2024 - 18:44
Veela skrifaði:
Krumeluuri
08.08.2024 - 13:40
Maggie Seal skrifaði:
It looks like spiders web and lovely weight for the winter
08.08.2024 - 12:25
Arctic Island Cardigan#arcticislandcardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, áferðamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-25 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 6,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju, (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-9-9-9½-9½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 93-97-101-105-109-111 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 4½-4½-5-5-5½-5½ cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn saman tvöfaldur). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 lykkjur fyrir kant að framan = 105-109-113-117-121-123 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord (= uppábrot). Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist 10-10-11-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti – endið með eina umferð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 91-95-99-103-107-109 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 15-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 120-128-134-140-146-150 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út um 18-24-26-32-34-38 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 138-152-160-172-180-188 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan. Þegar berustykkið mælist 4-5-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út 18-24-26-34-36-38 lykkjur jafnt yfir = 156-176-186-206-216-226 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með kanta að framan eins og áður. Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 14-16-17-19-20-21 sinnum meðfram berustykki, prjónið A.2, prjónið kant að framan eins og áður. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 30-30-34-34-40-44 lykkjur jafnt yfir = 186-206-220-240-256-270 lykkjur. Ör-2: Aukið út 30-30-36-36-40-46 lykkjur jafnt yfir = 216-236-256-276-296-316 lykkjur. Fram að ör-3 er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 257-281-305-329-353-377 lykkjur í umferð á undan ör-3. Ör-3: Aukið út 10-9-4-11-3-7 lykkjur jafnt yfir = 267-290-309-340-356-384 lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 20-21-22-22-25-26 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 40-44-47-50-54-59 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 81-88-93-102-110-120 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 40-44-47-50-54-59 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 191-206-221-236-256-276 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með kant að framan eins og áður. Prjónið síðan mynstur, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.3 alls 35-38-41-44-48-52 sinnum, prjónið A.4 og kant að framan eins og áður. Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 49-51-52-53-55-57 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 32-33-38-39-43-47 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 223-239-259-275-299-323 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 53-55-56-58-60-62 cm frá merki mitt að framan og ca 58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-50-54-62-62-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn og setjið 1 merki mitt ofan á ermi (á milli 2 lykkja). Merkiþráðurinn mitt undir ermi er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi og merkið mitt ofa á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja. Nú er prjónað mynstur JANFRAMT því sem fækka á lykkjum mitt undir ermi – lestu því MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð. MYNSTUR: Munið eftir útaukning að neðan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki, þ.e.a.s. prjónið 2 umferðir sléttprjón, síðan er A.3 prjónað hringinn á ermi – A.3 kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja. Merkið mitt ofan á ermi á að passa við ör í A.3. Prjónið mynstur eins langt og hægt er mitt undir ermi, þær lykkjur sem eftir eru undir ermi eru prjónaðar slétt eða brugðið þannig að þær passi sem best við mynstrið. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið stykkið síðan í sléttprjóni. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-2-2-3-3-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2-1½-1½-1½ cm alls 3-3-5-7-8-8 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-40-39-37-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir í sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-46-46-46-44-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #arcticislandcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.