Samira BRIKI skrifaði:
Bonjour Après la séparation corps manche, dans les explications vous dites à chaque fois " ajuster le nombre de mailles et c est toujours le même nombre, pour moi je fais la taille M donc 190 mailles. Je ne comprends pas. Pour tricoter A2, sur le diagramme il y a une flèche pour marquer le milieu de la manche, on doit faire quoi. Merci d avance pour l'aide Cordialement
18.03.2025 - 10:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Briki, dans votre taille, vous n'avez rien à faire, ni à augmenter, ni à diminuer. Vous avez suffisamment de mailles pour tricoter le diagramme A.2 (38 fois les 5 mailles). La flèche dans A.2 sert de repère pour le milieu de la manche, cette maille doit être celle avec le marqueur au milieu du haut de la manche, retrouvez ici comment centrer un diagramme. Bon tricot!
18.03.2025 - 16:19
Linda skrifaði:
Bonjour, pour le pull 255-26, j’ai beaucoup de difficulté à comprendre la signification de la flèche dans le diagramme A-2 au début du motif de la manche. Pourriez-vous me préciser davantage comment l’utiliser et pourquoi elle est située entre la première et la deuxième maille des 5 mailles? Merci à l’avance.
26.11.2024 - 12:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Linda, votre nombre de mailles pour la manche est un nombre pair et A.2 se tricote sur un nombre de mailles impair, ainsi, le milieu du dessus de la manche doit être entre la 1ère maille et la 2ème maille de A.2, pour savoir comment centrer ce motif, cette leçon pourra vous aider. Bon tricot!
26.11.2024 - 16:33
Linda skrifaði:
Pour le pull Artic Island (255-26), au niveau du col, après le rang de cassure, doit-on tricoter le jeté à l’endroit (trou) ou torse à l’endroit ( pour éviter le trou) ? Merci à l’avance
29.10.2024 - 19:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Linda, on tricote les jetés à l'endroit pour qu'ils forment un trou et ainsi une bordure picot comme dans cette vidéo par exemple. Bon tricot!
30.10.2024 - 08:12
Jo skrifaði:
Gallimaufry
08.08.2024 - 15:42
Valerie skrifaði:
Écume de mer.
08.08.2024 - 15:08
Arctic Island#arcticislandsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-26 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-94-98-102-106-108 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið sléttprjón hringinn í 5-5-5½-5½-6-6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Prjónið síðan sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 10-10-11-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli niður inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5½-5½-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 31-32-33-36-37-37 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 16-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 106-114-120-126-132-136 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út um 16-22-24-30-32-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 122-136-144-156-164-172 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar berustykkið mælist 4-5-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út 18-24-26-34-36-38 lykkjur jafnt yfir = 140-160-170-190-200-210 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 alls 14-16-17-19-20-21 sinnum berustykkið hringinn – jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 30-30-34-34-40-44 lykkjur jafnt yfir = 170-190-204-224-240-254 lykkjur. Ör-2: Aukið út 30-30-36-36-40-46 lykkjur jafnt yfir = 200-220-240-260-280-300 lykkjur. Fram að ör-3 er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 240-264-288-312-336-360 lykkjur í umferð á undan ör-3. Ör-3: Aukið út 12-10-4-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 252-274-292-324-340-368 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 20-21-22-22-25-26 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar frá réttu þannig: Setjið fyrstu 46-50-54-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 80-87-92-100-108-118 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-50-54-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið síðustu 80-87-92-100-108-118 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-190-204-220-240-260 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 175-190-205-220-240-260 lykkjur. Prjónið síðan mynstur, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 alls 35-38-41-44-48-52 sinnum hringinn á fram- og bakstykki JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til = 176-190-204-220-242-262 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 208-224-240-260-284-308 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-50-54-62-62-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn og setjið 1 merki mitt ofan á ermi (á milli 2 lykkja). Merkiþráðurinn mitt undir ermi er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi og merkið mitt ofa á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja. Nú er prjónað mynstur JANFRAMT því sem fækka á lykkjum mitt undir ermi – lestu því MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð. MYNSTUR: Munið eftir útaukning að neðan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki, þ.e.a.s. prjónið 2 umferðir sléttprjón, síðan er A.2 prjónað hringinn á ermi – A.2 kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja. Merkið mitt ofan á ermi á að passa við ör í A.2. Prjónið mynstur eins langt og hægt er mitt undir ermi, þær lykkjur sem eftir eru undir ermi eru prjónaðar slétt eða brugðið þannig að þær passi sem best við mynstrið. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið stykkið síðan í sléttprjóni. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-2-2-3-3-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2-1½-1½-1½ cm alls 3-3-5-7-8-8 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-39-40-37-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir í sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-46-45-47-44-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #arcticislandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.