Petra skrifaði:
Bei der ersten Runde soll man 2 Mal zwei zusätzliche Maschen (neben den Raglanzunahmen) aufnehmen. So kommt man dann auch auf die Summe (bei mir 100) Aber wie passen diese dann in das Muster in Runde 3? Danke!
08.12.2024 - 14:46DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, die Umschläge werden vor A.1 und nach A.3 gestrickt, bei der 2. Runde stricken Sie diese Umschläge wie im Diagram gezeigt, dann bei jeder Hin-Reihe stricken Sie die Umschläge vor A.1/nach A.3 und die neuen Maschen stricken Sie wie bei der 1. Masche A.3 /letzten Masche A.1 (- Rückreihe, liest man Diagramme links nach rechts). Viel Spaß beim Stricken!
09.12.2024 - 08:57
Esmée skrifaði:
Hallo, Als ik dit vest in 1 kleur zonder patroon maak, hoeveel garen zou ik dan nodig hebben voor maat XS/S? Dank alvast.
03.12.2024 - 19:52DROPS Design svaraði:
Dag Esmée,
Dat weet ik zo niet, maar om een idee te krijgen zou je zou kunnen kijken naar een ander vest met garencategorie C.
04.12.2024 - 20:07
Dorthe Hansen skrifaði:
Skal der strikkes 10 cm rib til halskant?så når den bukkes om er den 5 cm ca.
14.10.2024 - 08:26DROPS Design svaraði:
Hej Dorthe, ja 11 cm i de mindste størrelser og 13 cm i de største størrelser. Du finder al information i opskriften :)
16.10.2024 - 12:17
Rae skrifaði:
Transitions
08.08.2024 - 22:18
Cobblestone Cardigan#cobblestonecardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, norrænu mynstri, röndum í litatónum, tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 254-2 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9½-10-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli sléttprjón og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. RENDUR: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og rendurnar eru grunnlitur á flíkinni. ATH: Rendurnar eru prjónaðar í cm-máli og koma ekki til með að ganga jafnt upp með heilli mynstureiningu A.1 til A.3. Prjónið þannig: 10-11-12-12-12-13 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós himinblár. 6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós blár og 1 þæði Kid-Silk í litnum ljós himinblár. 6-6-6-6-7-7 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós blár og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur. 6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum þoka og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur. 6-6-6-6-7-7 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum blár vindur. 6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella. Prjónið síðan að loka máli með 1 þræði Alpaca í litnum kamel og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN LASKALYKKJU: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón frá bakhlið að framhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR LASKALYKKJU: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn frá framhlið að bakhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 182 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d.14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-92-92-108-108-108 lykkjur á hringprjón 4,5 með með 1 þræði DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum ljós himinblár (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-6 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn saman tvöfaldur). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 lykkjur fyrir kant að framan = 104-104-104-120-120-120 lykkjur í umferð. Prjónið síðan stroff, en ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 11-11-11-13-13-13 cm frá uppfitjunarkanti – endið með eina umferð frá röngu. Setjið 1 merki að innanverðu við kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt frá stroffi, þessar 2 lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni með grunnlit/lit í rönd sem er prjónuð. Teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 20-20-20-24-24-24 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). Prjónið síðan RENDUR og MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og byrjið á fyrstu röndinni, prjónið kant að framan eins og áður (með grunnlit), aukið út 0-0-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir fram að 1. merkiþræði og prjónið jafnframt A.2 alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, síðan A.3 yfir lykkjur frá vinstra framstykki, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.1, A.2, A.3 yfir lykkjur á ermi, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, aukið út 2-2-2-6-6-6 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. merkiþráða og prjónið jafnframt A.1, A.2 alls 2-2-2-4-4-4 sinnum, A.3 yfir lykkjur á bakstykki, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.1, A.2, A.3 yfir lykkjur á ermi, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, aukið út 0-0-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir fram að kanti að framan og prjónið jafnframt A.1 og síðan A.2 alls 1-1-1-2-2-2 sinnum yfir lykkjur á hægra framstykki, prjónið kant að framan eins og áður og fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 114-114-114-138-138-138 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón í röndum með kanti að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón í röndum með kanti að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón í röndum með kanti að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 11-14-17-20-23-20 sinnum (= 22-28-34-40-46-40 prjónaðar umferðir) = 202-226-250-298-322-298 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. ATH: Í hvert skipti sem A.1 til A.3 er prjónað 1 sinni á hæðina, er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.2 á breiddina. Haldið áfram í sléttprjóni í röndum, kanti að framan og mynstur eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu á undan / á eftir laskalykkjum þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón í röndum með kanti að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan 1. merkiþræði, á eftir 2. merkiþræði, á undan 3. merkiþræði og á eftir 4. merkiþræði, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið sléttprjón í röndum með kanti að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-12-12-9-9-12 sinnum (= 24-24-24-18-18-24 prjónaðar umferðir) = 250-274-298-334-358-346 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 24-27-30-30-33-33 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 12-15-18-21-24-21 sinnum á ermum. Mynstrið endar / byrjar annað hvort með heilli eða hálfri mynstureiningu A.2 við hliðina á hverri laskalínu. Prjónið síðan í sléttprjóni, kant að framan og mynstur eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-23-25-25-28-28 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-47-50-56-59-59 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-50-56-62-68-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 74-80-86-98-104-104 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-50-56-62-68-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 44-47-50-56-59-59 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 182-194-206-230-242-266 lykkjur. Prjónið sléttprjón í röndum og kant að framan og mynstur eins og áður (A.2 er einnig prjónað yfir 10-10-10-10-10-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið mitt undir ermum, þannig að mynstrið gangi jafnt upp meðfram öllu fram- og bakstykki), þar til stykkið mælist ca 43-45-47-48-50-52 cm frá merki mitt að framan – endið þegar prjónuð hefur verið 1 umferð með einum lit eftir heila rúðu á hæðina. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 30-30-30-38-38-42 6 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 212-224-236-268-280-308 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og notið 1 þráð Alpaca í litnum kamel og 1 þráð Kid-Silk í litnum karamella (= 2 þræðir), prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt af. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 44-50-56-62-68-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-10-10-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-72-78-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-10-10-10-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Haldið áfram með rendur og mynstur frá berustykki umferðina hringinn – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan, en mynstrið gengur jafnt upp þegar úrtöku er lokið. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2-2-1½-1½-1 cm alls 3-6-6-9-9-12 sinnum = 48-48-54-54-60-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 40-39-38-36-34-35 cm frá skiptingunni – endið á sama hátt og á fram- og bakstykki. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) með 1 þræði Alpaca í litnum kamel og 1 þræði Kid-Silk í litnum karamella JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-56-64-64-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-45-44-43-41-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cobblestonecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.