Gettemans skrifaði:
Merci . votre explication m'a bien aidée. Françoise
07.11.2024 - 16:12
Gettemans skrifaði:
Bonjour, Je suis occupée à lire les explications de ce modèle mais pour le col je ne vois pas où sont notées les augmentations. Merci de m'éclairer. Françoise
06.11.2024 - 15:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gettemans, les augmentations figurent dans le diagramme A.1 où on va augmenter 4 mailles dans chaque A.1 (soit 16 mailles au total) pour préparer les torsades de A.2 et A.3. Bon tricot!
06.11.2024 - 16:14
Donna skrifaði:
Thank so much for clarifying the diagram for me.
08.10.2024 - 19:54
Donna skrifaði:
The 1st row of A1 is 10 stitches. How do I work that and the 7 Icord stitches over 13 stitches at the end of the row? Sorry I'm a little confused.
08.10.2024 - 01:10DROPS Design svaraði:
Hi Donna, The diagrams are read bottom up (right to left from the right side and left to right from the wrong side), even though you are working top down. So A.1 starts with 6 stitches. Happy knitting
08.10.2024 - 07:03
Ana María skrifaði:
Aclarado, muchas gracias.
06.10.2024 - 21:50
Ana María skrifaði:
Hola, en el comienzo de la labor cuando dice 1 hilo de DROPS Brushed Alpaca Silk y 1 hilo de DROPS Alpaca (2 hilos, ¿ cómo hacerlo? Hay que comprar dos hilos diferentes y cómo? A ver si me puede aclarar la duda. No entiendo como hay que comprar 2 tipos de hilo. Yo no distingo 2 tipos en el modelo. Gracias Gracias Gracias
06.10.2024 - 21:00DROPS Design svaraði:
Hola Ana María, sí, se trabajan con dos hilos diferentes juntos. Compras cada hilo por separado y luego los trabajas juntos, cogiendo 1 hilo de cada calidad y juntándolos, trabajando ambos como si fueran 1 hilo gordo. Se trabaja con doble hilo para que el tejido tenga mayor volumen; Alpaca sólo es demasiado fino y Brushed Alpaca Silk aporta el volumen extra.
06.10.2024 - 21:22
Mimi skrifaði:
Hello, What is the recommended method for blocking the Brushed Alpaca Silk yarn? Is it better to wet block my finished sweater or is steam blocking better? Thank you.
01.10.2024 - 02:48DROPS Design svaraði:
Dear Mimi, some knitters block, some other never block, anyway remember to always follow the care instructions; you can probably wet block to keep cables nice. Happy knitting!
01.10.2024 - 09:40
Ilse skrifaði:
Kan dit ook gewoon met 2 naalden gebreid worden ? Indien ja, is er een werkbeschrijving van ?
20.09.2024 - 11:33DROPS Design svaraði:
Dag Ilse,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Dit is helaas niet voor alle patronen geschikt.
25.09.2024 - 08:46
Veerle Van Coillie skrifaði:
Geen antwoord meer nodig ! Inmiddels al iets anders uitgezocht. !
18.09.2024 - 16:58
Veerle Van Coillie skrifaði:
Welk garen kan ik gebruiken i.p.v. deze twee garens, en die wel machine wasbaar zijn ? Door de twee draden wordt nl een dikkere naald gebruikt.
13.09.2024 - 20:31DROPS Design svaraði:
Dag Veerle,
Alle garens waar 'superwash' bij staat moeten in de wasmachine gewassen worden, dus hier kun je op letten bij het kiezen van een garen.
19.09.2024 - 22:16
Skyfall Road Cardigan#skyfallroadcardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, kaðli og rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón frá bakhlið að framhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn frá framhlið að bakhlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). I-CORD AFFELLING-1 (á við um neðst á fram- og bakstykki): Fitjið upp 2 lykkjur á hægri prjón. Lyftir þessum 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 2 lykkjur af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 2 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun / lokin á I-cord kantinn við stykkið í hvorri hlið. I-CORD AFFELLING-2 (á við um neðst á ermum): Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftir þessum 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinn. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 11½-12-10-10-9-9½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-96-96-100-100 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 13-13-13-13-15-15 lykkjur eru eftir, prjónið A.1 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 5-7: Haldið áfram með kant að framan, A.1 og stroff eins og áður þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 96-96-104-104-108-108 lykkjur. UMFERÐ 8 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1, prjónið stroff eins og áður þar til 17-17-17-17-19-19 lykkjur eru eftir, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.1, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið áfram með kant að framan, A.2/A.3 og stroff eins og áður þar til A.2/A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina – kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-6-7-7 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðir eru settir á milli 2 lykkja – þessar 2 lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni (það er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við þessar laskalykkjur). Teljið 22-22-22-22-24-24 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-20-20-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-20-28-28 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-20-20-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 22-22-22-22-24-24 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). Nú er prjónað MYNSTUR og LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.2, prjónið 4 lykkjur slétt og aukið jafnframt út 0-0-1-2-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 4-4-5-6-5-6 lykkjur slétt), aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 laskalykkjum), prjónið 14-14-18-18-14-14 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 18-18-18-18-26-26 lykkjur slétt og aukið jafnframt út 2-2-4-6-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 20-20-22-24-26-28 lykkjur slétt), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 14-14-18-18-14-14 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 4 lykkjur slétt og aukið jafnframt út 0-0-1-2-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 4-4-5-6-5-6 lykkjur slétt, prjónið A.3 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 106-106-118-122-118-122 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan, A.3, prjónið brugðið þar til 17-17-17-17-19-19 lykkjur eru eftir (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), prjónið A.2 og 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kanta að framan, A.2/A.3 og sléttprjón eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 6-6-5-7-9-8 sinnum (= 12-12-10-14-18-16 prjónaðar umferðir) = 154-154-158-178-190-186 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Síðan er prjónað og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan, A.3, prjónið brugðið þar til 17-17-17-17-19-19 lykkjur eru eftir (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), prjónið A.2 og 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kant að framan, A.2/A.3 og sléttprjón eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan, A.3, prjónið brugðið þar til 17-17-17-17-19-19 lykkjur eru eftir (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), prjónið A.2 og 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið kant að framan, A.2/A.3 og sléttprjón eins og áður og aukið út fyrir laskalínu Á UNDAN 1. og 3. merkiþræði og Á EFTIR 2. og 4. merkiþræði (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-8-9-9-9-11 sinnum (= 28-32-36-36-36-44 prjónaðar umferðir). Prjónið síðan UMFERÐ 1 einu sinni til viðbótar. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 21-23-24-26-28-31 sinnum á framstykkjum og bakstykki og 14-15-15-17-19-20 sinnum á ermum = 238-250-266-286-298-318 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-24-26-28-31 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-46-48-51-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-44-48-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 66-70-74-80-86-94 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 42-44-48-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 44-46-48-51-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-178-190-206-222-242 lykkjur. Prjónið kant að framan, A.2/A.3 og sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 47-49-50-52-55-57 cm frá merki mitt að framan – stillið af að prjónaðar séu minnst 3 umferðir á eftir umferð með snúning í kaðli. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 18-22-22-22-26-30 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 184-200-212-228-248-272 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með I-CORD AFFELLING-1 – lesið útskýringu að ofan. Peysan mælist 49-51-52-54-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-44-48-52-52-54 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-58-64-66-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-7-4-3-3-2½ cm alls 4-5-8-10-10-12 sinnum = 40-42-42-44-46-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-42-42-41-38-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 44-48-48-48-52-52 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með I-CORD AFFELLING-2 – lesið útskýringu að ofan. Ermin mælist ca 45-44-44-43-40-38 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skyfallroadcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.