Lisbeth Jonefjäll skrifaði:
Kan jag sticka denna tröja med drops air och en tråd kid silk? Hur är storleken på tröjan?
08.01.2025 - 09:56DROPS Design svaraði:
Hei Lisbeth. Ja (1 tråd Air + 1 tråd Kid-Silk), så lenge du får den oppgitte strikkefastheten i oppskriften. Se målene på målskissen for å finne den størrelsen du ønsker. mvh DROPS Design
13.01.2025 - 11:55
Océane skrifaði:
Bonjour ! Je suis plutôt débutante et je ne comprends pas combien de marqueurs il faut mettre au départ, ni où ?
20.12.2024 - 17:35
Uli skrifaði:
Welche Wolle kann ich alternativ für 252-38 Lost in Mist nehmen, wenn ich kein Polyamid Anteil möchte? Is there a natural alternative vor Fabel, without plastic? Thank you!!!
10.11.2024 - 15:41DROPS Design svaraði:
Dear Uli, DROPS Fabel is specially used for making socks; so sock yarns usually have polyamide to help make it resistant to wear. You could use other Group A yarns such as DROPS Alpaca, DROPS Baby Merino or DROPS Flora. Happy knitting!
10.11.2024 - 21:54
Camilla skrifaði:
Hvis jeg vil erstatte garnet med drops melody hvor mange gram skal jeg så bruge til en str. s?
04.10.2024 - 17:34DROPS Design svaraði:
Hei Camilla. I str. S brukes det 200 gram / 4 nøster DROPS Fabel. 1 nøste Fabel har en løpelengde på 205 meter. 4 nøster x 205 meter = 820 meter. Genseren bruker 820 meter, så dele det på løpelengden til DROPS Melody (140 meter) = 820 / 140 = 5,86, rundet opp til 6 nøster Melody. Altså du trenger 6 nøster a 140 meter av DROPS Melody :) mvh DROPS Design
15.10.2024 - 12:47
Cindy skrifaði:
Super mooie trui🌫️♥️
08.09.2024 - 02:19
Mariana skrifaði:
I love Fabel. I would name it Clouds in the sky
08.08.2024 - 17:05
Lost in Mist#lostinmistsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-76-80-84-88-88 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel í litnum silfurrefur, 1 þráð í DROPS Kid-Silk í litnum natur og 1 þráði í DROPS Kid-Silk í litnum marsipan (= 3 þræðir). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki í stykkið á eftir fyrstu 24-25-26-27-28-28 lykkjum í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt frá stroffi, þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur. Setjið 1. merkiþráðinn við byrjun umferðar, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 24-26-28-30-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru eftir 24-26-28-30-32-32 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA á undan/á eftir 2 laskalykkjum við hvern merkiþráð í hverri skiptingu milli framstykkis/bakstykkis og erma – lesið útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-18-19-21-22-24 sinnum = 208-220-232-252-264-280 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 1-2-2-1-1-1 sinnum til viðbótar = 212-228-240-256-268-284 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-1-1-2-3 lykkjur (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 44-46-48-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 62-68-72-76-82-88 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 61-67-71-75-80-85 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-164-176-192-208 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í þær 8-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-24-26-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 160-172-188-202-220-236 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 44-46-48-52-52-54 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-58-64-66-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4½-4-3½-3-2½-2 cm alls 8-8-9-11-12-13 sinnum = 36-38-40-42-42-44 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 42-44-46-48-48-50 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-42-41-40-39-38 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð DROPS Fabel í litnum silfurrefur, 1 þráð í DROPS Kid-Silk í litnum natur og 1 þráði í DROPS Kid-Silk í litnum marsipan (= 3 þræðir), prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið upp ca 90-96-100-106-110-110 lykkjur í kringum hálsmál, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringnn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið af aðeins laust og brjótið e.t.v. uppá kant í hálsmáli tvöfalt að röngu og saumið niður með nokkrum sporum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lostinmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.