Moonlit Mountain Cardigan#moonlitmountaincardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-6 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 16 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 23) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-8-8-8½-8½ cm á milli hverra hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum koksgrár í DROPS Air. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 8 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 8 lykkjur í kanti að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 8 lykkjur í kanti að framan með i-cord, prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 8 lykkjur í kanti að framan með i-cord. UMFERÐ 3 (= ranga): 8 lykkjur í kanti að framan með i-cord, prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 8 lykkjur í kanti að framan með i-cord. UMFERÐ 4 (= rétta): Nú er prjónaður rúllukantur þannig: 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið 4 lykkjur slétt, * snúið lykkjunum á hægri prjóni 360 gráður í hring þannig: Leggið þráðinn framan við stykkið, færið hægri prjón frá þér niður undir stykki og síðan að þér upp framan við stykki þannig að stykkið snúist, síðan eru prjónaðar 4 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 8 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju, prjónið 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður = 105-109-113-117-121-125 lykkjur. UMFERÐ 6 (= rétta): 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 8 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 7 (= ranga): 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 6 og 7 þar til stroffið (mælt eftir rúllukant) mælist 4-4-4-5-5-5 cm – endið eftir eina umferð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hlið á stykki (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 89-93-97-101-105-109 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 23-25-27-29-31-33 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 128-134-140-146-152-158 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-4-3-3-5-5 cm frá merki, aukið út um 32-34-38-42-46-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 160-168-178-188-198-206 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 6-8-6½-6½-8½-8½ cm frá merki, aukið út um 33-37-43-49-51-55 lykkjur jafnt yfir = 193-205-221-237-249-261 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, en kantlykkjur að framan eru nú prjónaðar í litnum ljós beige í hverri umferð (ef liturinn ljós beige er ekki notaður í mynstri, er þráðurinn tvinnaður saman á milli kantlykkja að framan og lykkja í mynstri til að koma í veg fyrir göt – og til að sleppa við að þurfa að draga þráðinn yfir allar lykkjur á prjóni, er hægt að gera stakar litlar dokkur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur að framan), þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, en í litnum ljós beige, prjónið A.1 alls 44-47-51-55-58-61 sinnum meðfram berustykki, prjónið A.2, prjónið kant að framan eins og áður í litnum ljós beige. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 36-40-44-48-52-60 lykkjur jafnt yfir = 229-245-265-285-301-321 lykkjur. Ör-2: Aukið út 22-24-28-32-34-38 lykkjur jafnt yfir = 251-269-293-317-335-359 lykkjur. Ör-3: Aukið út 12-12-12-18-18-24 lykkjur jafnt yfir = 263-281-305-335-353-383 lykkjur. Þegar A.1 hefur og A.2 verið prjónað til loka á hæðina mælist berustykkið ca 20-22-23-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. ATH: Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið A.3 og A.4 á sama hátt að réttu máli áður en stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, en skipta verður stykkinu á undan síðasta mynsturbekk í A.3 og A.4. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð (eins og fyrsta umferð í A.3 og A.4, eða eins og næsta umferð í A.3 og A.4 ef A.3 og A.4 byrjaði á berustykki), skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-51-54-58-61-67 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-46-52-59-62-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 79-87-93-101-107-119 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-46-52-59-62-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 47-51-54-58-61-67 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 193-209-225-241-257-281 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu): Prjónið kant að framan, prjónið A.4, prjónið A.3 alls 22-24-26-28-30-33 sinnum, prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður með litnum ljós beige þar til stykkið mælist 46-48-50-50-52-54 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 30-34-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 223-243-259-279-299-327 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-46-52-59-62-65 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5, prjónið að auki þessar lykkjur eins og fyrsta umferð í A.3, eða eins og næsta umferð í A.3 ef A.3 byrjaði á berustykki JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 45-47-53-59-61-65 lykkjur í lok umferðar, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-57-65-71-75-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Að auki er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Merkiþráðurinn mitt undir ermi er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi og merkið mitt ofan á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja undir ermi. Nú er prjónað mynstur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi – lestu því MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. MYNSTUR: Haldið áfram með umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og prjónið A.3 hringinn á ermi – A.3 kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja. Merkið mitt ofan á ermi á að passa við ör í A.3. Prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að miðju undir ermi. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1 cm alls 4-4-7-9-10-11 sinnum = 47-49-51-53-55-57 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 42-40-39-40-38-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Ermin mælist ca 47-45-44-46-44-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonlitmountaincardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.