Danielle GUIOD skrifaði:
Bonjour, à quand les explications en français de ce modèle? Merci.
01.09.2024 - 14:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guiod, vous pouvez basculer les explications en français en cliquant sur le menu déroulant à côté de l'imprimante (sélectionnez ensuite français dans la liste), - ou bien cliquez ici pour ce modèle. Bon tricot!
02.09.2024 - 08:45
Anne-Christine Fält skrifaði:
Mycket vacker kofta! Den vill jag sticka!
08.08.2024 - 13:57
One Fine Day Jacket#onefinedayjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-36 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 101 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt ssaman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8-8½-9 cm á milli hnappagata. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjóna er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 101-105-109-113-117-123 lykkjur á hringprjón 5,5 með litnum ljós blár í DROPS Melody. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 lykkjur kantur að framan með i-cord – munið eftir útskýringu að ofan. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og prjónið kant að framan eins og áður. EFTIR UMFERÐ 5: Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan þar til kantur í hálsmáli mælist 9-9-10-10-11-11 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í annarri hlið á stykki (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 87-91-95-99-103-109 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 19-21-25-29-33-37 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 120-126-134-142-150-160 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-5-5-5-5-6 cm frá merki, aukið út um 27-33-37-41-45-47 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 147-159-171-183-195-207 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 11-12-13-14-15-16 sinnum meðfram berustykki, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 36-36-48-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 183-195-219-231-247-263 lykkjur. Ör-2: Aukið út 36-36-36-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 219-231-255-279-295-311 lykkjur. Ör-3: Aukið út 12-12-12-12-8-12 lykkjur jafnt yfir = 231-243-267-291-303-323 lykkjur. Ör-4: Aukið út 0-8-0-2-6-6 lykkjur jafnt yfir = 231-251-267-293-309-329 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist berustykkið ca 21-22-24-24-26-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð frá röngu með litnum ljós blár, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 41-44-46-50-53-57 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 41-45-49-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 67-73-77-87-93-101 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 41-45-49-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 41-44-46-50-53-57 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 165-177-189-207-223-239 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.2 alls 25-27-29-32-26-28 sinnum meðfram fram- og bakstykki, prjónið fyrstu lykkjur í A.2 þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður með litnum ljós blár þar til stykkið mælist 45-47-49-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-30-32-36-42-44 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 193-207-221-243-265-283 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið 3 umferðir sléttprjón og kant að framan eins og áður (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af með brugðið frá röngu. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 41-45-49-53-55-57 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-53-59-63-67-69 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Að auki er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Merkiþráðurinn mitt undir ermi er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi og merki mitt ofan á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja undir ermi. Prjónið 1 umferð sléttprjón með litnum ljós blár. Prjónið síðan mynstur, þ.e.a.s. prjónið A.2 hringinn á erminni – lykkja með ör í A.2 á að passa við lykkju með merki mitt ofan á ermi – teljið út að merkiþræði hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er síðan prjónað sléttprjón með litnum ljós blár JAFNFRAMT sem í fyrstu umferð er fækkað um 1-3-3-3-5-5 lykkjur jafnt yfir = 48-50-56-60-62-64 lykkjur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm í öllum stærðum mælt eftir A.2, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 1½-1½-1½-1-1-1 cm alls 3-3-6-7-7-7 sinnum = 42-44-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-42-43-41-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og fellið af með garðaprjóni. Ermin mælist ca 46-45-44-45-43-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #onefinedayjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.