Wenche-Iren skrifaði:
Startet strikke denne flotte genseren nå. Legger opp 92 masker på pinne 5,5 og følger mønsterbeskrivelsen for halskant. Etter å ha strikket 9 cm prøver jeg halskanten, men den er alt for liten til å få over hodet. Kan det være feil i mønsteret? Jeg blir da skeptisk til hvordan oppskriften stemmer videre.
20.01.2025 - 18:09DROPS Design svaraði:
Hej Wenche-Iren, Strikker du i DROPS Melody? Hvis du holder strikkefastheden, så bliver den 51 cm, uden at du trækker i den...
23.01.2025 - 14:45
Carine skrifaði:
Hallo, in het telpatroon wordt er gemeerderd op lijn A1 , maar dan klopt het vervolg van het patroon niet meer volgens mij.
11.12.2024 - 17:53
Doris skrifaði:
Stimmt, in dem Link auf die englische Seite ist die Skizze da! Auf der deutschen Seite fehlt sie leider immer noch . Dort ist nur ein Fragezeichen als Platzhalter… Aber egal. Ich habe sie ja jetzt!
22.10.2024 - 09:18DROPS Design svaraði:
Liebe Doris, versuchen Sie den Cache/die Cookies zu leeren, das kann helfen, ich kann sie auf der deutschen Seite sehen. Viel Spaß beim Stricken!
22.10.2024 - 09:29
Doris skrifaði:
Bei der Anleitung fehlt die Skizze mit den Abmessungen für die jeweilige Größe
21.10.2024 - 20:44DROPS Design svaraði:
Liebe Doris, vielleicht war es nur ein vorübergehender Fehler, denn die Maßskizze ist unten auf der Seite zu sehen. Viel Spaß beim Stricken!
22.10.2024 - 09:07
Alejandra García skrifaði:
Sea glass
08.08.2024 - 22:12
One Fine Day#onefinedaysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-35 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-110 lykkjur á hringprjón 5,5 með litnum ljós blár í DROPS Melody. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 3 umferðir sléttprjón, prjónið síðan 2 umferðir í stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan í sléttprjóni þar til kantur í hálsmáli mælist 9-9-10-10-11-11 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjun á umferð er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 31-32-33-36-37-38 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 18-20-24-28-32-36 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 106-112-120-128-136-146 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-5-5-5-5-6 cm frá merki, aukið út um 26-32-36-40-44-46 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 132-144-156-168-180-192 lykkjur. Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 11-12-13-14-15-16 sinnum berustykkið hringinn – jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 36-36-48-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 168-180-204-216-232-248 lykkjur. Ör-2: Aukið út 36-36-36-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 204-216-240-264-280-296 lykkjur. Ör-3: Aukið út 12-12-12-12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 216-228-252-276-294-308 lykkjur. Ör-4: Aukið út 0-8-0-2-0-6 lykkjur jafnt yfir = 216-236-252-278-294-314 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist berustykkið ca 21-22-24-24-26-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð með litnum ljós blár, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 41-45-49-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 67-73-77-86-92-100 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 41-45-49-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 67-73-77-86-92-100 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-174-192-208-224 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið A.2 alls 25-27-29-32-26-28 sinnum hringinn á fram- og bakstykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað í sléttprjóni með litnum ljós blár þar til stykkið mælist 45-47-49-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-32-34-38-40-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 180-194-208-230-248-270 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af með garðaprjóni. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 41-45-49-53-55-57 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-53-59-63-67-69 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Að auki er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Merkiþráðurinn mitt undir ermi er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi og merki mitt ofan á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja undir ermi. Prjónið 1 umferð sléttprjón með litnum ljós blár. Prjónið síðan mynstur, þ.e.a.s. prjónið A.2 hringinn á erminni – lykkja með ör í A.2 á að passa við lykkju með merki mitt ofan á ermi – teljið út að merkiþræði hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er síðan prjónað sléttprjón með litnum ljós blár JAFNFRAMT sem í fyrstu umferð er fækkað um 1-3-3-3-5-5 lykkjur jafnt yfir = 48-50-56-60-62-64 lykkjur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm í öllum stærðum mælt eftir A.2, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 1½-1½-1½-1-1-1 cm alls 3-3-6-7-7-7 sinnum = 42-44-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-42-43-41-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og fellið af með garðaprjóni. Ermin mælist ca 46-45-43-45-43-42 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #onefinedaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.