Ems skrifaði:
Cable cuddles!
12.08.2024 - 00:27
Annika skrifaði:
Blåvinge
10.08.2024 - 13:25
Lena skrifaði:
Storm sky
10.08.2024 - 10:43
Ju Lia skrifaði:
Plaits of sky
10.08.2024 - 02:59
Jacqueline skrifaði:
Douceur
09.08.2024 - 17:15
Osanna Cremonesi skrifaði:
Fiordaliso
09.08.2024 - 09:33
Judy skrifaði:
Elza
08.08.2024 - 20:52
Belén skrifaði:
Bluets
08.08.2024 - 20:07
Linda skrifaði:
Thunder Sky
08.08.2024 - 19:24
Lisa skrifaði:
Blues rock!
08.08.2024 - 18:41
Sea Feather#seafeathersweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN A.1/A.2: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-96-100-108-112-116 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið sléttprjón í 4-4-4-5-5-5 cm. Prjónið síðan 1 umferð brugðið (= uppábrot). Prjónið sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti jafnframt því sem aukið er út um 0-0-0-8-12-16 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 96-96-100-116-124-132 lykkjur. Síðar á að brjóta uppá kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4-4-4-5-5-5 cm. Byrjið umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-33-38-40-42 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og merkin eiga síðar að passa við miðjulykkju í A.1 og A.2. Teljið 21-21-21-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-26-30-34 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 25-25-27-32-36-40 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í síðustu lykkju. Nú er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-12-14-18-22 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-12-14-18-22 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu og 24-24-24-32-32-32 lykkjur fleiri í A.1) = 128-128-132-156-164-172 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón eins og áður, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1 og aukið út fyrir laskalínu þannig: Aukið út um 1 lykkju eftir / á undan hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum). Haldið áfram með A.2 og prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 5-6-8-12-11-9 sinnum (= 10-12-16-24-22-18 prjónaðar umferðir) = 168-176-196-252-252-244 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út um 1 lykkju á eftir og á undan hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út um 1 lykkju á eftir 1. mynstureiningu af A.2, á undan 2. mynstureiningu af A.2, á eftir 3. mynstureiningu af A.2 og á undan 4. mynstureiningu af A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-11-11-9-11-13 sinnum (= 40-44-44-36-44-52 prjónaðar umferðir). Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, það hefur verið aukið út alls 26-29-31-31-34-36 sinnum á framstykki og bakstykki og 16-18-20-22-23-23 sinnum á ermum = 288-308-328-360-384-400 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-26-28-30 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 48-52-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-102-108-118-128-136 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 96-102-108-118-128-136 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun á umferð er í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-224-240-264-288-308 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður (nýjar lykkjur í hliðum mitt undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni) þar til stykkið mælist 48-50-51-52-53-55 cm frá merki mitt að framan. Prjónið 1 umferð eins og áður þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 0-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í hvorri hlið (á milli hverja A.2 í hvorri hlið) og aukið út 12-10-12-14-16-16 lykkjur jafnt yfir á framstykki og á bakstykki (aukið út á milli hverja A.2 á framstykki og bakstykki) = 236-244-268-292-324-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 8-8-12-12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá yfir næstu 8-8-12-12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2 = 240-248-272-296-328-344 lykkjur. Prjónið stroff svona í 4-4-5-5-6-6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist 52-54-56-57-59-61 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-52-56-62-64-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – byrjun umferðar er við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur alls 1-1-2-4-6-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2½-2½-2-1½-1-1 cm alls 4-5-6-7-6-6 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-39-37-38-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-43-42-43-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seafeathersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.