DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Sea Feather

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 254-5

#seafeathersweater

DROPS Design: Mynstur ks-230
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-225-250-275-300-325 gr litur 28, sjávarblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum á prjón nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.
Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan:
Á UNDAN A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Á EFTIR A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-96-100-108-112-116 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið sléttprjón í 4-4-4-5-5-5 cm. Prjónið síðan 1 umferð brugðið (= uppábrot). Prjónið sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti jafnframt því sem aukið er út um 0-0-0-8-12-16 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 96-96-100-116-124-132 lykkjur. Síðar á að brjóta uppá kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4-4-4-5-5-5 cm.
Byrjið umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-33-38-40-42 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og merkin eiga síðar að passa við miðjulykkju í A.1 og A.2.
Teljið 21-21-21-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-26-30-34 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 25-25-27-32-36-40 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í síðustu lykkju.

Nú er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig:
UMFERÐ 1:
Aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-12-14-18-22 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-12-14-18-22 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu og 24-24-24-32-32-32 lykkjur fleiri í A.1) = 128-128-132-156-164-172 lykkjur.
UMFERÐ 2:
Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan).
UMFERÐ 3:
Prjónið sléttprjón eins og áður, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1 og aukið út fyrir laskalínu þannig:
Aukið út um 1 lykkju eftir / á undan hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4:
Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum).
Haldið áfram með A.2 og prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 5-6-8-12-11-9 sinnum (= 10-12-16-24-22-18 prjónaðar umferðir) = 168-176-196-252-252-244 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Prjónið síðan og aukið út þannig:
UMFERÐ 1:
Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út um 1 lykkju á eftir og á undan hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2:
Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
UMFERÐ 3:
Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út um 1 lykkju á eftir 1. mynstureiningu af A.2, á undan 2. mynstureiningu af A.2, á eftir 3. mynstureiningu af A.2 og á undan 4. mynstureiningu af A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4:
Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-11-11-9-11-13 sinnum (= 40-44-44-36-44-52 prjónaðar umferðir).
Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, það hefur verið aukið út alls 26-29-31-31-34-36 sinnum á framstykki og bakstykki og 16-18-20-22-23-23 sinnum á ermum = 288-308-328-360-384-400 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-26-28-30 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 48-52-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-102-108-118-128-136 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 96-102-108-118-128-136 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun á umferð er í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og erma.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-224-240-264-288-308 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður (nýjar lykkjur í hliðum mitt undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni) þar til stykkið mælist 48-50-51-52-53-55 cm frá merki mitt að framan.
Prjónið 1 umferð eins og áður þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 0-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í hvorri hlið (á milli hverja A.2 í hvorri hlið) og aukið út 12-10-12-14-16-16 lykkjur jafnt yfir á framstykki og á bakstykki (aukið út á milli hverja A.2 á framstykki og bakstykki) = 236-244-268-292-324-340 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 8-8-12-12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá yfir næstu 8-8-12-12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2 = 240-248-272-296-328-344 lykkjur. Prjónið stroff svona í 4-4-5-5-6-6 cm. Fellið af aðeins laust.
Peysan mælist 52-54-56-57-59-61 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 48-52-56-62-64-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-76-80-82 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – byrjun umferðar er við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur alls 1-1-2-4-6-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2½-2½-2-1½-1-1 cm alls 4-5-6-7-6-6 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-39-37-38-35-33 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-64-68 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-43-42-43-41-39 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat
prjónið 1 lykkju brugðið framan í og aftan í sömu lykkju = prjónið 1 lykkju brugðið framan í og aftan í sömu lykkju
prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sama lykkjuboga = prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sama lykkjuboga
þetta er engin lykkja þar sem lykkjan er ekki til, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu = þetta er engin lykkja þar sem lykkjan er ekki til, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 254-5
Diagram for DROPS 254-5

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seafeathersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Maria skrifaði:

Czy karczek w sumie ma mieć 15 łańcuchów. Robiąc próbkę żeby otrzymać te wymiary musiałam użyć druty 3.5cm. Pomimo to karczek wychodzi mi dłuższy niż 22 cm. Co z tym zrobić. Czy dłuższy będzie ok?

16.02.2025 - 23:14

DROPS Design svaraði:

Witaj Mario, zawsze dostosowuj wymiary do siebie. Jak widzisz że karczek będzie za długi, to zakończ go wcześniej. Zwróć tylko uwagę na ogólną liczbę oczek, być może trzeba będzie dodać więcej oczek pod rękawami. Pozdrawiamy!

17.02.2025 - 12:52

country flag Irina Fursman skrifaði:

Hello - could I replace kid-silk with Drops Alpaca silk? If so, would you recommend holding it double as well to obtain the same gauge? Or would you hold it single since it’s a thicker yarn? How well would it do with cables? Thank you in advance for your response. Wishing you a good weekend!

16.02.2025 - 02:05

DROPS Design svaraði:

Dear Irina, DROPS Brushed Alpaca Silk is a group C yarn, so it's double the thickness and you only need 1 thread of this yarn to get the same gauge as 2 threads of DROPS Kid-Silk. The visual effect of the cables should be very similar to the 2 Kid-Silk threads worked together. Happy knitting!

17.02.2025 - 01:32

country flag Daria skrifaði:

Czyli razem 30 okrążeń dobrze rozumiem. Motyw ma 6 okrążeń ( czyli jeden warkocz) razy 5 powtórzeń?

29.01.2025 - 09:29

DROPS Design svaraði:

Dokładnie. Miłej pracy!

29.01.2025 - 09:42

country flag Daria skrifaði:

Dzień dobry, czy robiąc karczek mam powtórzyć tylko okrążenie 1,2,3,4 schematu A2- 5 razy, czy przerabiać cały schemat A2 -5 razy. Czy jeden warkocz składa się z 6 okrążeń schematu A2?

29.01.2025 - 07:43

DROPS Design svaraði:

Witaj Dario, wykonujesz CAŁY schemat A.2, tyle razy, aż 3-cie i 4-te okrążenie (przekładanie oczek na warkocze) zostanie wykonane 5-6-8-12-11-9 razy (wybierz swój rozmiar). Pozdrawiamy!

29.01.2025 - 09:13

country flag Monika skrifaði:

Dzień dobry, przy karczku mamy włożyć markery, które będą środkiem schematuA1/A2. Czwarty marker mamy włożyć w 26 oczko przy rozmiarze S, czyli ostatnie oczko w okrążeniu. Czy tak ma być bo to nie będzie środek schematuA1/A2? Wszystkiego trzy wcześniejsze markery są w środku schematu a czwarty nie. Pozdrawiam

26.01.2025 - 15:22

DROPS Design svaraði:

Witaj Moniko, 4 markery będą na środku schematu A1/A2 (początek okrążenia znajduje się na wysokości prawego ramienia, od strony tyłu). 5-ty marker, najlepiej w innym kolorze jest włożony w oczko na środku przodu - od niego będzie później mierzona długość swetra. Pozdrawiamy!

27.01.2025 - 14:40

country flag Monika skrifaði:

Dzień dobry, Przerabiając w sumie 10 razy dla rozm.S okrążenia1-4, czy to znaczy że tyle razy cały schemat A.2 aż zostanie powtórzony 10 razy okrążenie 1-4. Jeżeli jest to tak to robótka będzie miała więcej niż 22 cm. Pozdrawiam

22.12.2024 - 17:19

DROPS Design svaraði:

Witaj Moniko, zgadza się. Na zdjęciu też to widać (zwykle modelka nosi rozmiar S lub M). Jeżeli sweter jest za długi to znaczy, że w próbka mogła nie być zgodna na wysokość (mniej rzędów na 10 cm niż podane 24 we wzorze). Przy reglanie jest to bardzo istotne. Pozdrawiamy!

23.12.2024 - 09:27

country flag Monika skrifaði:

Bardzo dziękuję!🙂

16.12.2024 - 19:47

country flag Monika skrifaði:

Witam, czy dobrze rozumiem że mamy wykonać schemat A2 do końca i dopiero Przerobić 5 razy 3-cie i 4-te okrążenie?

15.12.2024 - 14:04

DROPS Design svaraði:

Witaj Moniko, wykonujesz CAŁY schemat A.2, tyle razy, aż 3-cie i 4-te okrążenie (przekładanie oczek na warkocze) zostanie wykonane 5 razy w Twoim rozmiarze. Innymi słowy nie wykonujesz tylko 3-ciego i 4-tego okrążenia na przemian. Pozdrawiamy!

16.12.2024 - 08:56

country flag Mylène skrifaði:

Vous devriez mettre la possibilité de voir les questions et les réponses que vous donnez dans la langue que l on peut choisir pour réaliser le pull. Pour moi en Français, ce serai encore plus complet et enrichissant pour tout le monde.

29.11.2024 - 10:48

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mylène, vous pouvez utiliser un traducteur en ligne/automatique pour avoir une idée des commentaires/questions/réponses, ou bien simplement poser votre question ici pour que nous puissions vous aider. Bon tricot!

29.11.2024 - 16:31

country flag Mamy Do skrifaði:

Bonjour Je reviens sur les explications et commentaires concernant le départ du tricot après le col : - doit on comprendre au rang 1 que pour le dos après la série des augmentations du raglan il faut poursuivre en tricotant les mailles restantes ? - après le col faut -il tricoter les mailles jusqu’au marqueur 32 - il serait utile de préciser car on ne retrouve pas les 96 mailles du départ Merci pour ce joli modèle

24.10.2024 - 08:00

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mamy Do, le marqueur après 42 m sert de repère au milieu du devant pour mesurer l'ouvrage, on ne doit pas tricoter ces mailles. Le 1er tour commence par les mailles de la manche, puis A.1 (on doit avoir le 1er marqueur au milieu de A.1) et ainsi de suite; chacun des marqueurs placés (sans tricoter) au tout début de l'empiècement doivent être au milieu soit de A.1 soit de A.2 et on va augmenter pour le raglan comme indiqué pour votre taille avant/après A.1. Quand A.1 est terminé, on tricote et on répète A.2 en hauteur (A.1 ne se tricote qu'une seule fois = il permet d'augmenter les mailles nécessaires aux torsades). Bon tricot!

24.10.2024 - 10:19