Ania skrifaði:
Rozmiar 134/140
11.04.2024 - 21:48DROPS Design svaraði:
Witaj Aniu, teraz będziesz musiała patrzeć na schemat A.4, aby dobrze rozmieścić motywy na rękawie. Nowy rząd schematów/motywów wykonujesz co 3-ci rząd (w każdym 3-cim rzędzie) na prawej stronie robótki. Odległość między motywami w rzędzie to 6 oczek w 1-szym rzędzie na prawej stronie i 3 oczka w kolejnym rzędzie na prawej stronie robótki. Możesz używać markerów, aby sobie pomóc rozmieścić motywy. Pozdrawiamy!
12.04.2024 - 08:29
Ania skrifaði:
Niezrozumiałe jest z wzorem azurowym na rękawach od momentu dodawania oczek co 4 rzad, nic kompletnie sie neo zgadza z liczba oczek
11.04.2024 - 21:06DROPS Design svaraði:
Witaj Aniu, jaki rozmiar wykonujesz?
11.04.2024 - 21:23
Florence Gelly Lallier skrifaði:
Pourquoi pas en francais les explications
05.04.2024 - 13:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gelly Lallier, tous nos modèles sont disponibles en français, si besoin, cliquez sur le menu déroulant à gauche de l'icône "imprimante" pour sélectionner "français". Bon tricot!
08.04.2024 - 09:21
Daisy Fields Cardigan#daisyfieldscardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri á ermum og i-cord kanti að framan. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR (I-cord): Í BYRJUN UMFERÐAR ERU PRJÓNAÐAR 2 KANTLYKKJUR ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið næstu umferð slétt. Í LOK UMFERÐAR ERU PRJÓNAÐAR 2 KANTLYKKJUR ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt. Endurtakið þetta í byrjun og í lok hverrar umferðar. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 kantlykkjur. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroffi í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 5-5½-6½-6-6½-7 cm millibili. ATH: Síðasta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á fram- og bakstykki. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma: Merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-94-94-98-98-98 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (= 6 kantlykkjur að framan, þær 2 ystu lykkjur af þessum 6 lykkjum eru prjónaðar eins og kantlykkju), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur í garðaprjóni og 2 kantlykkjur (= 6 kantlykkjur að framan). Þegar stroffið mælist 3 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð frá röngu jafnframt því sem 4 merkiþræðir eru settir í stykkið og aukið út þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, 13-13-13-13-13-13 lykkjur brugðið (framstykki), setjið 1 merkiþráð, prjónið 16 lykkjur brugðið JAFNFRAMT er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setjið 1 merkiþráð, 24-24-24-28-28-28 lykkjur brugðið (bakstykki), setjið 1 merkiþráð, prjónið 16 lykkjur brugðið JAFNFRAMT er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setjið 1 merkiþráð, 13-13-13-13-13-13 lykkjur brugðið (framstykki) og endið með 6 kantlykkjur að framan = 100-100-100-104-104-104 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir laskalínu og mynstur A.1 til A.3 er prjónað yfir lykkjur á ermum. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. ATH! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er prjónuð 1 mynstureining fleiri af A.2 á breiddina á milli A.1 og A.3. Prjónið frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan, 12-12-12-12-12-12 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út fyrir laskalínu, 12-12-12-12-12-12 lykkjur slétt, 6 kantlykkjur að framan. Haldið áfram með kantlykkjur að framan, sléttprjón á framstykkjum/bakstykki, gatamynstri á ermum og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 9-9-7-8-8-7 sinnum (ásamt fyrstu útaukningu) = 172-172-156-168-168-160 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-12-16-14-16-18 sinnum á framstykkjum/bakstykki (5-6-8-7-8-9 sinnum á ermum). ATH! Útaukning á ermum kemur ekki til með að halda áfram eins og útskýrt er í A.1 og A.3 þar sem nú er aukið út í 4. hverri umferð. A.4 sýnir 1 mynstureiningu af mynstri, passið uppá að þetta passi síðar yfir mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 232-244-252-252-264-268 lykkjur í umferð, það hefur verið aukið út 19-21-23-22-24-25 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-15-15-15-16-16 sinnum á ermum. Haldið áfram með kantlykkjur að framan, sléttprjón á framstykkjum/bakstykki og gatamynstri á ermum, án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt eftir stroffi mitt að framan. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-40-42-41-43-44 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), 62-66-70-72-76-78 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-40-42-41-43-44 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-158-166-170-178-186 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni með 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 11-13-16-20-23-24 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist fyrir ermar, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 166-174-182-190-198-206 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, endið með 6 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-50 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 47-49-49-49-51-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-55-57-59-61 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.4, þær lykkjur sem ekki ganga upp í heilt gatamynstur í hvorri hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni. Stillið af að mynstur A.4 passi síðan yfir gatamynstur frá A.1 til A.3. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-4-5½-6-7-8 cm millibili alls 6-6-5-5-5-5 sinnum = 41-43-45-47-49-51 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-24-28-32-36-40 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki eða að óskaðri lengd og það eru ca 3 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 22-27-31-35-37-43 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daisyfieldscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.