Kimberly skrifaði:
Is there a video that show how to work the A.1 diagram? I very confused. Thank you!
01.09.2024 - 01:26DROPS Design svaraði:
Dear Kimberly, in this video we show how to work the 2nd symbol in diagram, ie how to increase 2 sts in one stitch as shown on the first row in A.1, repeat the 5 sts in A.1 all the round. Happy knitting!
02.09.2024 - 08:30
Jane Veiby skrifaði:
Jeg strikker denne blus ei str 7/8 år. Efter første A1 mønster omgang strå der at jeg skal have 112 m. Jeg har 132 m. Har regner efter og når jeg regner ud, skal der være 132m. Kan der være fejl i opskriften
01.08.2024 - 11:24DROPS Design svaraði:
Hej Jane, du har 80 masker, strikker A.1=5m 16 gange. Tager 2 masker ud for hver rapport (16x2)=32 nye masker =112 m
06.08.2024 - 13:32
Stine skrifaði:
Lengden på ermet i str 9/10 år gir ikke mening. Først skal det strikkes 3 cm glatt, så felle 2 m hver 8.5 cm x 4, så glattstrikk til ermet måler 33 cm. Men; 3 cm + 4x8,5 = 37 cm, som er ermlengden på størrelsen over.
21.07.2024 - 13:36
Lisbeth Ydesen skrifaði:
Hej jeg har strikket meget i extra fine merino til børn men jeg synes blusen bliver for tung til voksne hvilket garn kan i anbefale istedet for? Vh Lisbeth
21.06.2024 - 14:25DROPS Design svaraði:
Hej Lisbeth, Vi har mange fine bluser i DROPS Merino Extra Fine til voksen, men hvis du synes den er for tung kan du evt strikke den i DROPS Sky som har samme strikkefasthed :)
25.06.2024 - 13:31
Gunilla Johansson skrifaði:
Hej, Har nu stickat denna modell. Första gången jag stickat ett mönster uppifrån och ner, jättekul o inte så svårt som jag trodde..... Nu undrar jag om detta mönster finns i vuxen-storlek? M v h Gunilla
08.03.2024 - 11:00DROPS Design svaraði:
Hej Gunilla, vad roligt att höra :) Ja titta på DROPS 250-19 så känner du igen dig :)
08.03.2024 - 11:38
Bright Strawberry Sweater#brightstrawberrysweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð 3 - 14 ára
DROPS Children 48-6 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður frá miðju að aftan. Lykkjur eru auknar út á berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-72-76-76-80 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff ( 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í 3 cm. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-3-8-4-9-5 lykkjur jafnt yfir = 70-75-80-80-85-85 lykkjur. Setjið 1 merki hér. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá merki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 98-105-112-112-119-119 lykkjur í umferð. Prjónið eina umferð slétt. Í næstu umferð er fækkað um 3-5-7-7-4-4 lykkjur jafnt yfir = 95-100-105-105-115-115 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 7-7-7-8-9-9 cm frá merki. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 133-140-147-147-161-161 lykkjur í umferð. Prjónið eina umferð slétt. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 130-140-145-150-155-160 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-12-12-13-15-15 cm. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 182-196-203-210-217-224 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm, jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 6-8-7-10-5-4 lykkjur jafnt yfir = 176-188-196-200-212-220 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 26-28-29-30-32-33 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 52-56-58-60-64-66 lykkjur (framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð (ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 26-28-29-30-32-33 lykkjur (hálft bakstykki). Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: Það eru nú 116-124-128-136-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27 cm (eða að óskaðri lengd, það eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 12-12-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 128-136-140-152-160-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-6½-8-8½-10-11 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan án úrtöku þar til stykkið mælist 22-27-31-33-37-40 cm frá skiptingunni (eða að óskaðri lengd, það eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 25-30-34-37-41-44 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightstrawberrysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.