Stefanie skrifaði:
Størrelse 5-6 år: Masketallet for raglan økning i starten stemmer ikke. Maskemarkører skal plasseres 11-19-23-19-12. Dette er bare 84 masker. Men det bes om å legge opp 88.
15.10.2026 - 20:53
Stefanie skrifaði:
Masketallet for raglan økning i starten stemmer ikke. Maskemarkører skal plasseres 11-19-23-19-12. Dette er bare 84 masker. Men det bes om å legge opp 88.
15.10.2026 - 20:51
Leen skrifaði:
Kloppen de gegevens ivm de pas ? er zouden voor de maat 3/4. 32 steken meer zijn dan voor 5/6?
21.08.2026 - 19:29DROPS Design svaraði:
Dag Leen,
Dit lijkt inderdaad vreemd, maar het klopt wel. In eerste instantie meerder je meer steken, maar daarna weer minder dan de andere maten. Na de laatste meerdering zijn er wel weer meer steken in maat 5/6.
22.08.2026 - 09:10
Charlotte skrifaði:
Jeg synes raglanudtagningerne er meget forvirrende og har nu givet op og fundet en anden opskrift. For mig, som er ret erfaren, giver det ingen mening.
28.07.2026 - 18:48
Ólöf Ósk skrifaði:
Sæl aftur á ég þá að eftir 136 lykkjur að prjóna útaukningu 4 lykkjur frammstykki prjóna síðan eina umferð slétt síðan 4 lykkjur útaukning bakstykki prjona eina umferð slétt síðan að prjóna aukningu = allan hringinn 8 lykkjur framm/afturstkykki og ermar? síða slétt einn hring og byrja aftur? kær kv Ólöf Ósk
30.04.2026 - 14:21DROPS Design svaraði:
Blessuð Ólöf. Þú prjónar eina umferð án útaukningar, næstu umferð með útaukningu á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri), prjónar eina umferð og í næstu umferð þá er útaukning á ermum, fram- og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri). Síðan endurtekur þú þetta. Gangi þér vel.
04.05.2026 - 19:27
Ólöf Ósk Þórhallsdóttir skrifaði:
Hæ ég er að prjóna springs smiles peysuna fyrir 3/4 ára ég er komin uppí 136 lykkjur svo er talað um að auka um 4 lykkjur aðra hvora ferð en fyrir bakstykki/ frammstykki hvað þýðir það ? a eg ekki að auka áfram út í laskalínu? og er þessi aukning bæði að framan og aftan? hvað þýðir þetta bandstrik? kær kveðja virðingarfyllst Ólöf Ósk Þórhallsdóttir
29.04.2026 - 01:56DROPS Design svaraði:
Blessuð Ólöf Ósk. Þegar þú ert komin með 136 lykkjur 3/4 ára þá heldur þú áfram með útaukninguna í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki (útaukning um 4 lykkjur) og í 4. hverri umferð á ermum (= útaukning um 8 lykkjur - ermar og framstykki/bakstykki). Gangi þér vel.
29.04.2026 - 12:42
Jenneke skrifaði:
Ik ben spring smiles aan het breien. Hierin staat bij de raglan het volgende: Iedere 2e naald 4-7-2-5-1-1 keer = 122- en verder. Wat wordt hiermee bedoeld?
12.02.2026 - 10:13DROPS Design svaraði:
Dag Jenneke,
Je meerdert iedere 2e naald (dus de ene naald meerder je wel en de andere naald niet en dit herhaal je steeds) aan beide kanten van de raglanlijnen. Dit doe je in totaal 4-7-2-5-1-1 keer, dus voor de kleinste maat 4 keer, de volgende maat 7 keer enzovoort. Als je dat gedaan hebt, heb je het aangegeven steken voor de maat die je breit op de naald staan.
12.02.2026 - 19:36
Hanne Hæsum skrifaði:
DROPS Children 48-4 #springsmilessweater, DROPS Design: Model z-054-bn BÆRESTYKKE 2. afsnit: Fortsæt med udtagninger men hver 2. gang der tages ud, tages der kun ud på forstykke/bagstykke (4 masker taget ud). Dvs der tages ud på forstykke/bagstykke på hver 2.omgang og på ærmerne på hver 4.omgang. Tag ud på denne måde 10-8-14-12-16-18 gange på forstykke/bagstykke ... SPØRGSMÅL: tages der hver 2. gang kun ud på den ene side af mærkerne? vh Hanne Hæsum
23.01.2026 - 12:29DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Ja, det kan du også si. Når det skal økes på for-og bakstykket tages det ut ved merketråden på den siden av merketråden som "tilhører" for- og bakstykket. mvh DROPS Design
30.01.2026 - 13:05
Gabriella skrifaði:
Buongiorno, avviato il collo la divisione delle maglie non coincide con i punti di partenza. Sto facendo la terza taglia con 88 punti e mettendo i marcatori ne risultano 84. Tra l’altro è strano che i punti sul dietro non siano uguali. Grazie
12.10.2025 - 06:21DROPS Design svaraði:
Buongiorno Gabriella, ha contato anche le 4 maglie in cui deve inserire i segnapunti? Il dietro corrisponde al davanti, in quanto al dietro appartengono le prime e le ultime maglie. Buon lavoro!
12.10.2025 - 09:33
Jill skrifaði:
Very frustrated. Pattern describes where to place stitch markers and then knit the remaining x stitches, but that total stitches does not match number stitches cast on! Also if increases are made using yarn over on all knit row, then instructions should indicate knit row should yarn over before each marker
11.09.2025 - 18:30
Spring Smiles#springsmilessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr tveimur þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-4 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir lykkju með merki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-88-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós blár DROPS Alpaca. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Stykkið er síðan mælt héðan! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert merki er sett í lykkju (ekki á milli lykkja). Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið slétt yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju (slétt lykkja), prjónið slétt yfir næstu 19-19-19-19-21-21 lykkjur (ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, prjónið slétt yfir næstu 19-19-23-23-25-25 (framstykki) lykkjur, setjið 3. merki í næstu lykkju, prjónið slétt yfir næstu 19-19-19-19-21-21 lykkjur (ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, prjónið þær 9-9-11-11-11-11 lykkjur sem eftir eru slétt. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýring að ofan, í annarri hverri umferð alls 4-7-2-5-1-1 sinnum = 112-136-104-128-104-104 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð þannig: Í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og aukið er út á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-8-14-12-16-18 sinnum á framstykki/bakstykki (5-4-7-6-8-9 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 14-15-16-17-17-19 sinnum á framstykki/bakstykki og 9-11-9-11-9-10 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 172-184-188-200-200-212 lykkjur í umferð (47-49-55-57-59-63 lykkjur á milli lykkju með merki á framstykki/bakstykki og 37-41-37-41-39-41 lykkjur á milli lykkju með merki á ermum) og stykkið mælist ca 13-14-15-16-16-18 cm eftir stroff mitt að framan. Prjónið e.t.v. sléttprjón núna án útaukninga að loka máli. Berustykkið skiptist núna fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 26-28-29-31-32-34 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki), setjið næstu 35-37-37-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 51-55-57-61-61-65 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 35-37-37-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón út umferðina (= 51-55-57-61-61-65 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 118-126-134-142-146-154 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 16-19-22-24-28-29 cm frá skiptingunni, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 140-148-156-168-172-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 37-41-45-49-53-56 cm frá öxl. ERMI: Setjið 35-37-37-39-39-41 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-45-47-49-51-53 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð við miðju undir ermi – mitt í 8-8-10-10-12-12 nýju lykkjurnar. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-5-5-5 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 2.-3.-3.-3.-4.-4. hverjum cm alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 31-33-33-35-37-39 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 17-22-25-29-33-36 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-5-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 20-25-28-32-36-39 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springsmilessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.