Bodil Andersson skrifaði:
Jag förstår inte mönstret efter avmaskning för hals med 3 maskor 1 gång, 2 maskor 1 gång och 1 maska 3 ggr. Då har jag 14 maskor + 14 maskor på framstycket, 14 maskor + 14 maskor på varje ärm samt 66 maskor på bakstycket, toralt 122 maskor. Hur gör jag på sadelaxel 2? \r\nHälsningar Bodil Andersson
20.03.2025 - 10:28DROPS Design svaraði:
Hej Bodil. Har du sett att vi har flera videor som visar hur man stickar sadelaxel som kanske kan vara till hjälp? Du hittar de här. Mvh DROPS Design
21.03.2025 - 13:50
Michelle skrifaði:
Hoe kan ik dit patroon in het nederlands vertaald krijgen 🫣
26.12.2024 - 17:41DROPS Design svaraði:
Dag Michelle,
Direct naast (of onder op mobiele weergave) zit een dropdown waar je een andere taal kunt kiezen.
01.01.2025 - 17:19
Joanna skrifaði:
Dzień dobry, mam wątpliwości jak zacząć karczek. Czy dobrze rozumiem, że markery umieszczone mają być jedno oczko od każdego z brzegów przodu i tyłu? Przerabiać „ do środka tyłu”, ale gdzie zacząć? Najpierw napisane jest „przerobić 44 następnych oczek” ( rozmiar L), a jednocześnie poniżej napisane jest „zacząć dokładnie za markerem 1”. Czyli co poprzedza 44 oczka ? Bardzo proszę o dokładny opis pierwszych 2 okrążeń. Dziękuję za pomoc
05.12.2024 - 09:47DROPS Design svaraði:
Witaj Joanno, jak wszystkie części zostaną przełożone na druty, przerób na prawo do środka tyłu i nałóż marker na drut (ma mieć inny kolor niż 4 kolejne na ramionach). Teraz zacznij przerabiać od środka tyłu i przerób 44 oczka, nałóż marker na drut (marker jest włożony między 2 oczkami, nie w oczko), dalej przerabiaj jak we wzorze. Pozdrawiamy!
05.12.2024 - 11:34
Solveig Hallum skrifaði:
Er det riktig at det bare strikkes 25 cm fra og med vrangbord til felling under arm? Det er veldig lite og ser ikke slik ut på modellen. Mvh Solveig
14.10.2024 - 14:38DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, ja i den mindste størrelse bliver det 25 cm. Se også måleskitsen nederst i opskriften :)
16.10.2024 - 15:13
Barbara skrifaði:
Hallo, ich würde mir eine Anleitung für einen klassischen Damenpullover Gr. 32 oder Gr. 34 mit eingesetzten Langarmärmeln wünschen. Mein Problem ist die richtige Abnahme bei der Armkugel und so könnte ich auch Wollreste verarbeiten wenn ich die Teile einzeln stricke. Oder gibt es bei euch ein Modell (Raglanärmel bzw. Rundstricken ist leider nicht geeignet) Danke und lG aus Wien, Barbara
15.09.2024 - 17:46
Marike Pae skrifaði:
I skriver at denne trøje strikkes i 3 tråde kids-silke. Vil det så sige at der skal købes 3 gange mere garn end der er givet i opskriften, dvs 3x 10 garnnøgler på 25 gr for str M, eller har jeg misforstået noget? Bh Marike
01.09.2024 - 13:57DROPS Design svaraði:
Hei Marike. Garnmengden som er oppgitt er den totale garnmengde det brukes med 3 tråder. I str. M trenger du 275 gram (11 nøster av 25 gram). mvh DROPS Design
02.09.2024 - 14:13
Wil skrifaði:
Dankjewel Drops team !
07.08.2024 - 11:26
Carmen skrifaði:
Dice "DESPUES DEL ULTIMO AUMENTO: ....." ¿a que aumento se refiere? (parrafo explicativo antes de "CUELLO DOBLE")
02.07.2024 - 06:19DROPS Design svaraði:
Hola Carmen, se trata de una errata en el patrón en español; la corregiremos lo antes posible. Quiere decir después de la última disminución (de los hombros martillo y el escote).
07.07.2024 - 22:30
Wil skrifaði:
Goedeavond, ik ben een beginnende breister en heb een veel te moeilijk patroon uitgekozen. Het voorpand, achterpand 25 cm lang en de mouw tot 35 cm lengte is gebreid. Maar nu.. er staat : er is ongeveer 29 cm tot de halslijn, betekent dat dan nog eens 29 cm erbij breien aan de mouwlengte? Het is misschien een rare vraag, maar alles uittrekken met Kid Silk en ander patroon nemen gaat niet. De wol is te kwetsbaar. Nog veel dank voor de vorige uitleg!
27.06.2024 - 22:05DROPS Design svaraði:
Dag Wil,
Nee, het betekent dat je straks, nadat de mouwen en de panden samengevoegd zijn nog ongeveer 29 cm moet breien. De 35 cm is dus goed.
07.08.2024 - 09:01
WIl skrifaði:
Ik ben met de mouwen begonnen. Het is mij niet duidelijk hoe ik die mouw moet breien. De meerderingen zitten aan één kant, is het dan de linker of rechter mouw? Ook snap ik niet, er wordt gezegd rondbreien maar wel met naalden zonder knop! Dit zijn toch geen rondbreinaalden? Ik kom er niet uit en ben maar gestopt. Het wordt niet aangegeven om rondbreinaalden te gebruiken. Hoe zit het dan? Waar ik de wol gekocht heb zeggen ze. Beide mouwen hetzelfde breien. Ik word er niet wijzer van.
20.06.2024 - 15:07DROPS Design svaraði:
Dag Wil,
Je breit de mouw in de rondte en je maakt de meerderingen midden onder de mouw, aan beide kanten van de markeerdraad. Midden onder de mouw is waar je, als je de mouwen heen en weer zou breien, een naad zou hebben (dus vanaf de manchet tot de oksel). Beide mouwen zijn inderdaad hetzelfde. Je breit inderdaad met naalden zonder knop in de rondte, dus sokkenbreinaalden. Maar je kunt natuurlijk ook een rondbreinaald gebruiken.
20.06.2024 - 22:14
Moonrise Sweater#moonrisesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með axlarsæti, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 250-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku á ermum og úrtöku á axlarsæti): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við úrtöku á ermum): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við mitt undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrst er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig upp að handvegi þannig að það myndist klauf í hvorri hlið, við handveg er stykkið lagt til hliðar. Ermar eru síðan prjónaðar í hring upp að handvegi, síðan eru stykkin sett inn á sama hringprjón. Á berustykki er lykkjum fækkað fyrir ermar og axlarsæti. Prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni. Í lokin er stykkið saumað saman í hliðum eins og útskýrt er í mynstri og kantur í hálsmáli er brotinn inn að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI. Fitjið upp 106-118-126-134-150-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 30-34-36-36-42-46 lykkjur jafnt yfir – lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur = 76-84-90-98-108-116 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorir hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 25 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu og fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 70-78-82-90-98-106 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-16-14-18-16-18 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 11-10-11-11-12-11 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING og endurtakið útaukningu í hverjum 4½-4-2½-2-1½-1½ cm alls 6-7-9-12-13-13 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 37-36-35-35-34-32 cm. Það eru eftir ca 25-27-29-30-32-34 cm að kanti í hálsmáli – mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg mitt undir ermi (fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 48-52-56-62-64-66 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið. BERUSTYKKI: Nú er framstykkið, bakstykkið og ermar sett inn á sama hringprjón og prjónað er síðan í sléttprjóni jafnframt því sem í fyrstu umferð eru sett 4 merki í stykki, merkin eru sett á milli 2 lykkja og merkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir ermar og axlarsæti – látið merkin fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið þannig: Prjónið að miðju á bakstykki, prjónið næstu 39-41-43-44-45-47 maskorna (= þessar lykkjur tilheyra nú bakstykki), setjið 1. merki hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 2. merki hér, prjónið 78-82-86-88-90-94 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú framstykki), setjið 3. merki hér, prjónið 40-48-52-64-72-78 lykkjur (= þessar lykkjur tilheyra nú ermi), setjið 4. merki hér, prjónið síðan fram að 1. merki (= þessar lykkjur tilheyra nú bakstykki). Það eru 40-48-52-64-72-78 lykkjur á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis (= ermar) og það eru 78-82-86-88-90-94 lykkjur á milli 2. og 3. merkis og á milli 4. og 1. merkis (= framstykki / bakstykki). Byrjið umferð strax eftir 1. merki og prjónið sléttprjón hringinn í 1-0-0-1-0-0 cm, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA ERMI-1: Lestu allan kaflann áður en prjónað er áfram! Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur á ermum eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 2. og 4. merki – lesið ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 0-1-2-7-8-9 sinnum = 236-252-260-248-260-272 lykkjur. ÚRTAKA ERMI-2: Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. merki og fækkið um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. merki – lesið ÚRTAKA-2. Lykkjum er einungis fækkað á ermum (fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 13-15-15-10-12-13 sinnum = 184-192-200-208-212-220 lykkjur (það eru 14-14-14-16-16-16 lykkjur eftir á ermi). Eftir úrtöku fyrir ermi mælist ca 14-16-17-18-20-22 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg. Síðan er lykkjum fækkað fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. AXLARSÆTI-1: Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Fækkið um 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. merki og fækkið um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. merki – munið eftir ÚRTAKA-1. Lykkjum er einungis fækkað á framstykki og bakstykki (fjöldi lykkja á ermum verður sá sami). Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-5-5 sinnum = 152-160-160-168-172-180 lykkjur. Stykkið mælist ca 44-46-47-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Passið uppá að næsta umferð sem er prjónuð sé umferð þar sem lykkjum er ekki fækkað. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af 18-22-22-24-26-30 miðju lykkjur á framstykki fyrir hálsmáli – ATH! Prjónið út umferðina eins og áður og klippið þráðinn hér. Nú á að prjóna stykkið fram og til baka frá miðju að framan og fyrsta umferð er prjónuð frá réttu, JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir axlarsæti og hálsmáli, lestu því næsta kafla áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 3 sinnum. AXLARSÆTI-2: Haldið áfram að fækka um 8 lykkjur fyrir axlarsæti í hverri umferð frá réttu 7-7-7-7-7-7 sinnum til viðbótar, fækkað hefur verið alls 11-11-12-12-12-12 sinnum fyrir axlarsæti og síðasta umferð var prjónuð frá réttu. Á EFTIR SÍÐUSTU ÚRTÖKU: Það eru 62-66-66-72-74-78 lykkjur í umferð (14-14-14-16-16-16 lykkjur á hvorri ermi, engar lykkjur á framstykki og 34-38-38-40-42-46 lykkjur á bakstykki). Berustykkið mælist ca 25-27-29-30-32-34 cm frá þar sem stykkin voru sett saman við handveg og peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Nú á að færa umferðina að miðju að aftan við hnakka, færið lykkjurnar sem voru núna prjónaðar frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón þar til hægt sé að prjóna frá ca miðju að aftan. Notið hringprjón 3,5 og prjónið sléttprjón fram að úrtöku fyrir hálsmáli, prjónið upp ca 34-38-38-40-42-46 lykkjur meðfram úrtöku fyrir hálsmáli og prjónið sléttprjón fram að miðju að aftan = ca 96-104-104-112-116-124 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem í fyrstu umferð er fækkað um 4-8-8-8-8-12 lykkjur jafnt yfir = 92-96-96-104-108-112 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn í 11 cm, fellið af aðeins laust. Brjótið kant í hálsmáli tvöfalt að röngu og saumið niður með nokkrum sporum. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsaumana – byrjið efst við handveg og saumið í ysta lið á ystu lykkju þannig að saumurinn verði flatur, þar til eftir er sú lengd að óskaðri klauf í hvorri hlið (það verður sýnilegur kantur með 8 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki). Saumið op undir ermum við fram- og bakstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonrisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.