Fernanda Camila skrifaði:
Cmmt. PT 2: The raglan increases every 2 rows on the front and back, 13x, and from then on, increases every 4 rows F&B by another 10x (in total there are 23 increases F&B). On the sleeves, increase 18x every 4 rows, always on the right side. And on the neckline, there is 1 increase on each side every 4 rows, 11x. So when it increases in the sleeves, it will inc. in the neckline as well. Increases F&B are 92 (4x23), sleeves are 72 (4x18), and necklines are 22 (2x11), with 94 + 92 +72 + 22 = 280.
05.02.2025 - 14:23DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Fernanda, note that the first increase for raglan (increasing to 104 sts) is included in the total number of times you should increase so that you will increase 12 more times for the body /sleeves then 10 more times for body and 5 more times for sleeves = 1+12+10=23 times in total for body and 1+12+5=18 times in total for sleeves. 94+(4x23)+(4x18)=258 stitches in total + 11x2 sts for V-neck = 280 sts. Happy knitting!
05.02.2025 - 16:21
Fernanda Camila skrifaði:
Cmmt. PT. 1: This jumper is beautiful, I made it for my mom and she loved it! I was also confused on the raglan, then I had an epiphany and understood the instructions. Here's the explanation, example XS: all increases will be on the RIGHT SIDE! We cast on the first stitches, in this case 94, make a row on the wrong side, on the right one the increases begin, there are 10 increases, total 104 stitches. This is row 1 in the total number of increase rows.
05.02.2025 - 14:22
Aila Sävkari skrifaði:
Pääntiehen jää kynnys. V- aukon alussa tehdään 2 s v-aukon lisäyssilmukka 2 oikein ja noiden silmukoiden jälkeen tehdään raglan lisäykset. Olenko ymmärtänyt ohjeen väärin?
17.11.2024 - 08:01DROPS Design svaraði:
Hei, olet ymmärtänyt oikein. Aluksi neulotaan 2 silmukkaa oikein, sitten lisätään 1 silmukka V-aukkoa varten, tämän jälkeen neulotaan 2 silmukkaa oikein ja sitten tehdään ensimmäinen raglanlisäys.
25.11.2024 - 17:28
Daniela Venturini skrifaði:
Sono una principiante e trovo questo bel modello un po difficile. Sarebbe possibile acquistare questo pattern in versione bottom up? Grazie x un riscontro
01.11.2024 - 10:20DROPS Design svaraði:
Buongiorno Daniela, i modelli DROPS sono progettati dalle nostre designer con una specifica costruzione. Sul nostro sito può trovare tantissimi modelli di maglioni lavorati con la tecnica del bottom up. Buon lavoro!
02.11.2024 - 11:58
Kim Mihwa skrifaði:
Thank you.
07.09.2024 - 01:15
Anna skrifaði:
Hallo, ich verstehe leider diesen Teil nicht:. „D.h. am Vorderteil/Rückenteil weiter in jeder 2. Reihe und an den Ärmeln nur noch in jeder 4. Reihe zunehmen (d.h. es werden abwechselnd 4 und 8 Maschen zugenommen). Welche raglanm. Sind denn für vorder und Rückseite und welche für die Ärmel? Ist es vor der ersten Raglanmasche ( R.), nach der zweiten R, vor der 3. R. Und nach der 4. R?
10.07.2024 - 21:54DROPS Design svaraði:
Liebe Anna, ja, das ist korrekt, was Sie schreiben. Vor der 1., nach der 2., vor der 3. und nach der 4. Raglanmasche nehmen Sie weiter in jeder 2. Reihe/Runde zu (Vorder- und Rückenteil) und nach der 1., vor der 2., nach der 3. und vor der 4. Raglanmasche nehmen Sie nur noch in jeder 4. Reihe/Runde zu (Ärmel). Viel Spaß beim Weiterstricken!
12.07.2024 - 10:30
Margaret Bartlam skrifaði:
I'm confused by this instruction "increase for the V-neck inside 2 stitches on each side, every 4th row (every 2nd row from the right side)": should I be increasing for the V neck every 2nd row or every 4th row?
19.06.2024 - 00:38DROPS Design svaraði:
Hi Margaret, You increase every 4th row from the right side. Happy knitting!
19.06.2024 - 07:58
Karin skrifaði:
Stickar st. S. Skall börja vid Raglan och öka 13 gr. Ska det ökas till fram o bakstycket även vid dessa 13 ökningar? Kan inte se att det framgår av beskr.
27.05.2024 - 17:34DROPS Design svaraði:
Hej Karin, ja de første raglanudtagninger (8 för vartannat varv) strikker du totalt 14 gange på . Så fortsætter du med økninger på for og bagstykke på vartannat varv 12 ggr, och samtidigt på ärmarna för vart 4:e varv 6 ggr. Ökningarna till V-hals strikkes samtidigt, dem ser du i stykket under raglan :)
28.05.2024 - 11:14
Marianna Zacharska skrifaði:
Dziękuję za pomoc. Na tym etapie po udzielonej mi odpowiedzi mam 180 0czek. I to już mam na drutach. A dalej? Nie wiem jak to zrobić aby otrzymać razem 368 oczek. Proszę o pomoc. Teraz mam 98 plus 180 czyli razem 278 oczek.
09.04.2024 - 12:24DROPS Design svaraði:
Brawo Marianno, to teraz zostały Ci jeszcze do dodania 3 razy po 2 oczka co 2 rzędy na dekolt = dodanych 6 o. (po czym robótka będzie przerabiana na okrągło). Jednocześnie dodajesz oczka na reglan następująco: 1-sze okrążenie dodajesz jak wcześniej 8 oczek, 2-gie okrążenie przerabiasz bez dodawania, 3-cie okrążenie dodajesz tylko oczka na tył i przód, czyli dodane są 4 oczka, 4-te okrążenie przerabiasz bez dodawania, itd. Czyli w 7 okrążeniach dodasz po 8 oczek (7x8=56), i w 7 okrążeniach dodasz po 4 oczka (7x4=28). To teraz suma: 278 (wyjściowe)+6 (dekolt)+56+28=368 oczek w rozmiarze L. Trzymam kciuki i pozdrawiam!
09.04.2024 - 13:29
Claudia skrifaði:
Hallo, ich finde eure Anleitungen super. Und ich finde es toll das alle kostenlos sind. Aber die Fotos zu den Anleitungen können etwas besser sein. Damit meine ich die Ansichten. 5 Bilder und alle von vorn... Das ist nicht Aussagekräftig. Und das ist bei sehr vielen Anleitungen so. Man sollte mehr Fotos von den Details machen. Dankeschön ☺️ ist nur eine Anmerkung 😔
04.04.2024 - 21:18
Spring Novel#springnoveltop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Muskat eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, stuttum ermum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 249-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 4 laskalykkjum. Laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalykkjum þannig: Á UNDAN laskalykkjum: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR laskalykkjum: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalykkjum: Á UNDAN lasakalykkjum: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR laskalykkjum: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka, jafnframt því sem lykkjum er aukið út fyrir V-hálsmáli og laskalínu. Þegar öll útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, er stykkið sett saman og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið skiptist við klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BERUSTYKKI: Fitjið upp 94-96-98-98-100-102 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (útaukning fyrir V-hálsmáli), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (vinstra framstykki), 1 lykkja slétt (laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 26 lykkjur slétt (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 30-32-34-34-36-38 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (bakstykki), 1 lykkja slétt (laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 26 lykkjur slétt (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (útaukning fyrir V-hálsmáli), 2 lykkjur slétt (hægra framstykki) = 104-106-108-108-110-112 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu og V-hálsmáli, þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana að neðan áður en þú prjónar áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA: Aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 13-14-19-20-18-18 sinnum. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 10-12-10-14-22-26 sinnum á fram- og bakstykki (5-6-5-7-11-13 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 23-26-29-34-40-44 sinnum á framstykki/bakstykki og 18-20-24-27-29-31 sinnum á ermum. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við 2 lykkjur í hvorri hlið, í 4. hverri umferð (önnur hver umferð frá réttu) 11-12-13-13-14-15 sinnum (ásamt útaukningu að ofan). Á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli er stykkið sett saman, prjónað er nú áfram hringinn yfir allar lykkjur og útaukning fyrir laskalínu heldur áfram eins og útskýrt er að ofan. Eftir alla útaukningu eru 280-304-336-368-404-432 lykkjur í umferð. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-19-21-25-29-32 cm frá miðju að aftan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 39-43-47-52-59-64 lykkjur (hálft framstykki), setjið næstu 62-66-74-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið næstu 78-86-94-104-118-128 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 62-66-74-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 39-43-47-52-59-64 lykkjur (hálft framstykki) = 168-184-200-222-252-272 lykkjur í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-200-224-252-272 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-19-19-17-15-14 cm frá skiptingunni. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 84-92-100-112-126-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð frá réttu og aukið út 14-14-14-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 98-106-114-130-146-158 lykkjur. Prjónið stroff, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm, fellið af. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 62-66-74-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist ca 3 cm frá skiptingunni er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í ca hverjum 3-2-3-1½-0-0 cm alls 2-2-2-2-1-0 sinnum (lykkjum er ekki fækkað í stærð XXL) = 64-68-76-84-90-96 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 13-12-11-8-8-6 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þegar aukið er út um 4-4-4-0-2-0 = 68-72-80-84-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 16-15-14-11-9-9 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt að framan. Notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp ca 176 til 200 lykkjur í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Byrjið mitt að framan neðst í hálsmáli og prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið og haldið áfram hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), umferðin endar með 1 lykkju slétt. Setjið 1 merki á milli 2 lykkjur slétt mitt að framan. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, merkið situr hér. Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Það eru enn 2 lykkjur slétt mitt að framan (1 lykkja slétt hvoru megin við merki). Prjónið síðan stroff út umferðina (stroffið á að vera alveg eins hvoru megin við miðjulykkjurnar). Haldið áfram hringinn og fækkið lykkjum við merki í annarri hverri umferð þar til kantur í hálsmáli mælist ca 4 cm. Fellið af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springnoveltop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.