DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Safran yarn
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2904.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Daisy Fields

Prjónuð peysa úr DROPS Safran eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 249-7

#daisyfieldssweater

DROPS Design: Mynstur e-367
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-450-450-500 g litur 17, hvítur

Eða notið:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-450 g litur 01, hvítur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd með gatamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2904.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Jafnóðum sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar lykkjur eru í heilt gatamynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar aukið er út, eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja, þessar lykkjur eru kallaðar laskalykkjur í mynstri).

AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU:
Á undan merkiþræði: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt (1 lykkja fleiri).
Á eftir merkiþræði: Prjónið 1 lykkju fram hjá merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt (1 lykkja fleiri).

AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR.
Á undan merkiþræði: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt (2 lykkjur fleiri).
Á eftir merkiþræði: Prjónið 1 lykkju fram hjá merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt (2 lykkjur fleiri).

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-128-136-144-152-160 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Baby Merino. Prjónið stroff þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4 cm. Setjið eitt merki í síðustu umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 merkiþræði í stykkið (án þess að prjóna) þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= hægri öxl að aftan), teljið 20-20-28-28-28-32 (= ermi) og setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 40-44-40-44-48-48 lykkjur (= framstykki) og setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 20-20-28-28-28-32 (= ermi) og setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, síðustu 40-44-40-44-48-48 lykkjur (= bakstykki). Merkiþræðirnir sitja á milli 2 lykkja slétt, þessar lykkjur eru kallaðar laskalykkjur í mynstri og eru prjónaðar í sléttprjóni.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og lesið ÚTAUKNING-1 í útskýringu að ofan.
Prjónið 1 laskalykkju, prjónið sléttprjón og aukið út 5-5-3-3-3-5 lykkjur jafnt yfir næstu 18-18-26-26-28-30 lykkjur, prjónið 2 laskalykkjur, prjónið sléttprjón og aukið út 8-6-8-6-4-4 lykkjur jafnt yfir næstu 38-42-38-42-46-46 lykkjur, prjónið 2 laskalykkjur, prjónið sléttprjón og aukið út 5-5-3-3-3-5 lykkjur jafnt yfir næstu 18-18-26-26-26-30 lykkjur, prjónið 2 laskalykkjur, prjónið sléttprjón og aukið út jafnt yfir 8-6-8-6-4-4 lykkjur yfir næstu 38-42-38-42-46-46 lykkjur og prjónið 1 laskalykkju. Nú eru 146-150-158-162-166-178 lykkjur í umferð (48-50-48-50-52-52 lykkjur á milli merkiþráð á framstykki/bakstykki og 25-25-31-31-31-37 lykkjur á milli merkiþráða á ermum). Prjónið 1 umferð sléttprjón.

UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM:
Nú á að prjóna sléttprjón á framstykki/bakstykki og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, á ermum jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan.
Útaukningin er mismunandi á ermum og á framstykki/bakstykki.

STÆRÐ S og M:
Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 1 laskalykkju, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á eftir merkiþræði – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði (= framstykki), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU á undan merkiþræði og prjónið 1 laskalykkju (= bakstykki) = 154-158 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón.
Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur í annarri hverri umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar aukið hefur verið út 22-25 sinnum fyrir laskalínu er útaukningu lokið á ermum. ATH! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, haldið áfram með mynstur eins og áður, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilt gatamynstur í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið áfram með útaukningu á framstykki/bakstykki og í annarri hverri umferð alls 2-1 sinnum til viðbótar, þar til aukið hefur verið út alls 22-25 sinnum á ermum og 24-26 sinnum á framstykki/bakstykki = 330-354 lykkjur. Það eru 96-102 lykkjur á framstykki/bakstykki og 69-75 lykkjur á hvorri ermi.

STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL:
Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 1 laskalykkju, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á eftir merkiþræði – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði (= framstykki), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU á undan merkiþræði og prjónið 1 laskalykkju (= bakstykki) = 166-170-174-186 lykkjur.
Prjónið 1 umferð án útaukninga. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er prjónað áfram jafnframt því sem aukið er út mismunandi á framstykki/bakstykki og ermum, lesið ÚTAUKNING ERMAR og ÚTAUKNING FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI áður en prjónað er áfram!

ÚTAUKNING ERMAR:
Haldið áfram að auka út 1 lykkju fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-28-27-22 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan), síðan er aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 6-2-4-7 sinnum. Aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 24-30-31-29 sinnum á ermum.
ATH! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur mynstur áfram, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilt mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur fyrir lasaklínu á framstykki/bakstykki – lesið AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR í útskýringu að ofan.
Síðan er aukið út 1 LYKKJA fyrir laskalínu í annarri hverri umferð eins og áður, en í hverri 10-12-6-6 umferð sem er prjónuð (þ.e.a.s. í 5-6-3-3 hvert skiptis sem aukið er út), aukið út 2 LYKKJUR í stað 1 LYKKJA. Prjónið svona þar til aukið hefur verið út alls 29-30-34-36 sinnum (6-5-11-12 af þessum skiptum er aukið út um 2 lykkjur í stað 1 lykkju) = 394-422-470-486 lykkjur. Nú eru 118-120-142-148 lykkjur á framstykki/bakstykki og 79-91-93-95 lykkjur á hvorri ermi = 394-422-470-486 lykkjur í umferð.

ALLAR STÆRÐIR:
= 330-354-394-422-470-486 lykkjur.
Prjónið síðan án þess að auka út þar til berustykkið mælist 17-18-20-21-23-25 cm frá merki eftir kant í hálsmáli.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Prjónið 1 lykkju sléttprjón (þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 67-73-77-89-91-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 98-104-120-122-144-150 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 67-73-77-89-91-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 97-103-119-121-143-149 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Síðan er fram- og bakstykki og ermar prjónað hvert fyrir sig, stykkið er nú mælt héðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-224-256-264-308-324 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi, látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, þeir eru notaðir þegar auka á út lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 5 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverjum 4½-5-4½-5-5-4½ cm alls 4 sinnum í öllum stærðum = 228-240-272-280-324-340 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 26-27-26-27-27-26 cm frá skiptingunni. Prjónið síðan með hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 36-40-44-44-52-56 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 264-280-316-324-376-396 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 67-73-77-89-91-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 75-81-85-99-101-105 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið hringinn í mynstri eins og áður, passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt yfir mynstur sem prjónað var á berustykki, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni – síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi er mynstrið stillt af í samræmi við það. Þegar ermin mælist ca 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 3-5-5-7-7-8 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í ca hverjum11-10-7-3-3-2½ cm alls 4-4-5-9-9-9 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-42-41-40-38-38 cm – stillið af þannig að prjónuð sé 1 umferð án mynsturs. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 3-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-72-76-76 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 47-46-45-44-42-42 cm frá skiptingunni.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat<br />
<br />
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat

2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
Diagram for DROPS 249-7
Diagram for DROPS 249-7
Diagram for DROPS 249-7
Diagram for DROPS 249-7

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag MO skrifaði:

Antwoord op vraag van Mileva: Bonjour Mme Mileva, en taille S on va bien diminuer d\'abord 3 fois tous les 4 tours puis 4 fois tous les 11 cm, autrement dit on va avoir: 2 cm avant de diminuer + 3xtous les 4 tours = 2,5 cm + 4 x tous les 11 cm = 33 cm, \r\n4x elke 11 cm is 44 cm. en geen 33 cm. 11cm mindering, 11 cm mindering, 11cm mindering, 11 cm mindering. dus 4 x 11 cm = 44 cm en geen 33 cm.

27.04.2025 - 22:27

country flag Nicole Putallaz skrifaði:

Bonjour, Les explications concernant les augmentations des différentes tailles pour le raglan ne sont vraiment pas claires. Comme Madame Gondouin (05.07.2024), j’avais beaucoup trop de mailles en taille L au moment de diviser dos, devant et manches. J’ai compris votre réponse et tout défait mon travail. Mais il faudrait vraiment clarifier ces explications pour éviter ce genre de problème. Nicole

22.04.2025 - 18:25

country flag Ilse Nootens skrifaði:

Hallo. In de beschrijving staat bij 'meerderingen voor het lijf' dat je 'iedere 10e, 12e, 6e en 6e' naald 2 raglan steken moet breien in plaats van één. Ik snap dit niet, omdat er twee keer 6e naald staat. Als extra verklaring staat er 'iedere 5e, 6e, 3e en 3e meerdering.' Ook weer die twee keer 3e meerdering. Is het mogelijk dit uit te leggen? Of lees ik het helemaal verkeerd? Alvast bedankt! Groetjes Ilse

12.11.2024 - 22:11

DROPS Design svaraði:

Dag Ilse,

Iedere 10e naald geldt voor maat L, iedere 12e voor maat XL, iedere 6e voor maat XXL en iedere 6e voor maat XXXL. Je meerdert dus iedere zoveelste (afhankelijk van je maat) naald.

13.11.2024 - 19:46

country flag Couedor Johanna skrifaði:

Bonjour équipe de Drops, Un grand merci pour vos lumières! Je tricote la taille L si je récapitule, marqueur du début tour (début manche droite) 1 m d'augmentation puis je fais un tour sans augmentations. Fin de la manche droite 1 m d'augmentation. Pour début devant = 2 m d'augmentation et fin de devant = 2 m d'aug ensuite début manche gauche 1m d'aug, fin MG 1 m d'aug et debut dos 2m d'aug et fin dos 2 m d'aug ?merci!

29.10.2024 - 15:40

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Couedor, après avoir tricoté les 2 premiers tours (vous avez alors 158 m), vous augmentez 8 mailles au total: 1 de chaque côté de chacun des fils marqueurs (de chaque côté des 2 mailles des raglans) = vous avez 166 m, vous tricotez le tour suivant sans augmenter. Puis vous augmentez pour les manches encore 17 x tous les 2 tours + 6 x tous les 4 tours, et, en même temps, vous augmentez 2 m pour le devant/le dos mais tous les 10 tours, vous n'augmentez que 5 mailles soit *(1 tour en augm. 2 m, 1 tour sans augmenter) x 4, 1 tour en augm 1 m, 1 tour sans augmenter*, répétez de *à* jusqu'à ce que vous ayez augmenté 29 fois au total. Bon tricot!

29.10.2024 - 17:22

country flag Couedor Johanna skrifaði:

Bonjour, Pour les augmentations, faut-il augmenter de 2 m quand même quand je suis avant le marqueur même si c'est la fin de ma manche droite? j'avais compris qu'il fallait faire 1m d'augmentation pour les manches mais 2 tous les 6 tours pour le devant et le dos. Merci de votre aide !

28.10.2024 - 09:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Couedor, en XXL et XXXL, vous augmentez ainsi: (1 tour en augm. 2 m au début/fin dos+ devant, 1 tour sans augm, 1 tour en augm 2 m au début/fin dos+ devant, 1 tour sans augm, 1 tour en augm 1 m au début/fin dos+ devant), répétez de (à) jusqu'à ce que vous ayez augmenté 34 ou 36 fois au total selon la taille. En même temps, vous augmentez 1 m pour les manches d'abord tous les 2 tours puis tous les 4 tours (vous augmenterez ainsi soit 12 m (4 m dos, 4 m devant, 2 m chaque manche) soit 8 m (2 m dos, devant et manches). Bon tricot!

28.10.2024 - 13:22

country flag Verens skrifaði:

Ich fange an das passe zu stricken. Bin etwas verwirrt über die Zählweise. Also ich habe für meinem Ärmel 20 Maschen, wenn ich durch die Zunahme von raglan Maschen und nochmal 5 mal durch Umschlag zunehme, komme ich auf insgesamt 27 Maschen statt nur die 25 ? Was mache ich falsch ? Liebe Grüße

20.10.2024 - 09:34

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Verena, so ist es richtig, es sind 27 Maschen zwischen den Markierungen aber die 1. Masche nach der Markierung + die letzte Masche vor der Markierung gehören zum Raglan, dh die Maschen vor und nach jeder Markierung sind die Raglanmaschen, und es wird davor/danach zugenommen. Viel Spaß beim Stricken!

21.10.2024 - 08:57

country flag Saioa skrifaði:

Hay un error en las explicaciones del diagrama. Pone: "deslizar 2 puntos como de derecho, 1 derecho, pasar el punto deslizado sobre el punto trabajado." No hay que deslizar dos puntos sino solo uno.

04.09.2024 - 15:49

country flag Jocelyne HERY skrifaði:

Bonjour, Je voudrais savoir à quelles tailles correspondent les désignations Small, et Médium ? est-ce 38 taille française pour le Small ? et 40 taille française pour le Médium ? Merci de cette précision. Cordialement. Jocelyne HERY

29.08.2024 - 13:54

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Hery, mesurez un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page, vous trouverez ainsi la taille idéale. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

30.08.2024 - 07:56

country flag Liv Ingunn Olsen skrifaði:

Str L. Deling bol- ermer. Har 93 m på erme og 142 på bol. Ta 77 m erme sette på en tråd. Då er det 16 m igjen på erme. Ka gjer eg me dei??På bol skal eg ta 120 m strikke forstykke. Ka med de 16 tilovers på erme og 22 tilovers på bol??

15.08.2024 - 21:14

DROPS Design svaraði:

Hei Liv- Ingunn. Har du blandet litt med størrelsene? Det er skrevet en forklaring til str. S & M og en forklaring til str. L, XL, XXL & XXXL under INFORMASJON FØR DET STRIKKES VIDERE:. Siden du oppgir str. L må du under avsnittet: STØRRELSE L, XL, XXL og XXXL:, ØKNING ERMER: og ØKNING ERMER: forholde deg til det 1.tallet. Altså 118 masker på forstykke/bakstykke og 79 masker på hvert erme = 394 masker på omgangen. Så når beskrivelsen gjelder ALLE STØRRELSER må du forholde deg til det 3. tallet igjen. mvh DROPS Design

19.08.2024 - 12:11

country flag Inger Hushovd skrifaði:

Strikker drops 249-7 Modell e-367, Str. L. Klarer ikke å forstå hvor raglandsøkninger skal gjøres. Har kommet så langt at jeg har satt 4 maskemarkører ved ermer, for og bakstykke. Lagt ut til Blir håpløst å forstå når det hele tiden henvises til tidl. forklaringer. Er det mulig å få en mere detaljert oppskrift på str. L mht raglandsøkninger på bærestykket. Vet hvordan økninger gjøres, men skjønner ikke på hvilke masker jeg skal gjøre det.

08.08.2024 - 16:25

DROPS Design svaraði:

Hei Inger, Her får du forskjellige videoer om øking til raglan. https://www.garnstudio.com/videos.php?c=knitting-videos-raglan&lang=no Håper de hjelper og god fornøyelse!

09.08.2024 - 06:32